Veiðimaðurinn - 01.12.1951, Qupperneq 30
Hvaða skilningarvit var hér að verki?
Eítirfarandi grein er þýdd úr nýút-
komnu Tirne. Auk þess sem þar er sagt
frá merkilegum rannsóknum, sem marg-
ir menn hafa gaman af að frétta um, þá
virðist hún sýna það, að eitthvað fleira
en þefnæmið vísi laxinum leiðina til
heimkynna sinna.
Ritstj.
í síðustu viku syntu 15 silfurgljáandi
laxar, í sólskinsskapi, í tilraunatjörn einni
við háskólann í Washington. Uggar
þeirra báru það með sér, að þeir voru
farnir að hugsa urn ,,hjónaband“ og
hrygningu. Þetta voru sögulegir fiskar —
fyrstu laxarnir, sem gengu úr sjó í til-
búna tjörn.
Þessir 15 fiskar voru úr liópi 26 þús-
und seiða, sem klakið var út í fiskirann-
sóknarstöð háskólans. Seiðin voru merkt
á uggunum og síðan sleppt í tjörnina.
Þegar þau höfðu verið þar í liálfan
mánuð, var þeim sleppt í skurð, sem þau
fóru eftir niður í Settle’s Lake Union og
þaðan út í Kyrrahafið. Dr. Lauren R.
Donaldsson, forstöðumaður fiskirann-
sóknardeildarinnar, beið þess með ó-
þreyju, hvort nokkuð af þeim kæmi aftur.
Það hafði oft tekist að venja seiði úr
einni á til þess að ganga í einhverja aðra,
en það hafði aldrei heppnast enn, að fá
þau til að ganga aftur í svona ónáttúr-
legan poll.
En þessi tveggja vikna dvöl virtist hafa
nægt til þess að telja, a. m. k. nokkrum
28
seiðum, trú um að þetta væri heimkynni
þeina. Þau komu aftur úr liafi um
Puget-sundið, og hin dularfulla eðlis-
ávísun* vísaði þeim veginn heim. Þau
fóru um tilbúna fiskistiga upp í Lake
Union, og þegar þau fundu sína alma
mater hröðuðu þau för sinni, stikluðu
stigann og syntu upp í tjörnina sína.
Merktir laxar, sem skipta hundruð-
um og eru að meðaltali um 10 pund,
liafa veiðst á þessum slóðum. Dr. Donald-
son gerir sér vonir um að 1 % verði kom-
ið í leitirnar eftir nokkrar vikur, og er
það mjög góður árangur. Þessi átthaga-
tryggð fósturbarnanna markar tímamót
í sögu uppeldisrannsóknanna, að áliti dr.
Donaldson. í stað þess að rannsaka ferðir
fisksins í straumhörðum og erfiðum ám,
geta vísindamennirnir nti athugað hann
eins og hver önnur auðsveip rannsóknar-
stofu-dýr.
Dr. Donaldson vonar að mönnum tak-
ist að ala upp lax í „búum“ nálægt sjó,
svo seiðin þurfi ekki að fara langa leið
þegar þeim er sleppt. Með því móti séu
þau losuð við hinar margvíslegu hættur,
sem verða á leið þeirra um langar ár.
Þegar þau komi aftur úr hafi sem full-
vaxnir laxar, þurfi þeir ekki að eyða
kröftum sínum og holdum á því að berj-
ast gegn straumi og torfærum. Þeir geti
synt beint upp í æskutjarnir sínar.
# Leturbr. hér.
Veioimaðuunn