Veiðimaðurinn - 01.12.1951, Side 14

Veiðimaðurinn - 01.12.1951, Side 14
ánni. Stórfelldar breytingar höfðu orðið allt í kringum hana. Raforkuver með stíflugörðum girtu bakka árinnar og rennsli. Við ósinn voru komnar skipa- stöðvar og grjótnám. Brýr og vegir teygðu armana yfir ána og meðfram henni. Nú voru truflanir orðnar miklar á göngu lax- anna. Þá þurfti að flytja á bílum mílu vegar, svo þeir kæmust alla leið til hrygn- ingarstöðvanna. Vatnsmagn árinnar var nú einnig eilíf- um breytingum undirorpið, og fyrir kom að sum svæði þornuðu að mestu, svo lax- inn gat tæplega fleytt sér. Netaveiði var nú að vísu löngu lögð niður, en mikið stunduð stangaveiði, sem fór minkandi ár frá ári. Örlög laxastofnsins virtust ráðin. Löng- um hafði þessi litla á verið talin ein af beztu laxveiðiám, sinnar stærðar, í Evrópu. Þessi virtust ætla að verða enda- lok hennar, þótt hún væri perlan, í ekki of mörgum djásnum borgarinnar. Þetta var að vísu ekki einsdæmi: Marg- ar eru þær árnar, er renna í námunda við stóra bæi og borgir, sem hafa orðið fyrir barðinu á siðmenningunni, sem við köllum. Fiskstofn þeirra hefir horfið og tærleiki þeirra sjálfra breytzt í skólp. Menn gættu þess ekki í önn dagsins, að gera þurfti margvíslegar ráðstafanir til verndar þessum ám, um leið og byggð- in færðist nær. Og enn leið tíminn. Margir sáu hætt- una, er ánni var búin, en flestir létu það afskiptalaust. Ennþá var þó vatn árinnar að mestu óspillt, og ennþá leituðu nokkrir laxar æskustöðvanna. Það mátti því enn bjarga laxastofninum frá tortfmingu. Og þetta var gert. Fyrir tuttugu árum var klakstarfið hafið og það bjargaði ánni — máske á síðustu stundu? Hvergi veit ég nytsemi klaks hafa sannast eins áþreifanlega og í Elliðaánum við Reykja- vík. Það undraverðasta var, hvað þetta var í raun og veru einfallt og hve litlu þurfti til að kosta. Allur útbtinaður var einfaldur og jafn- vel fátæklegur, en skilyrði að ýmsu leyti hagstæð. Þótt reynsla manna væri lítil og margt færi forgörðum fyrir hand- vömm og þekkingarskort, þá var eins og slegið hefði verið með töfrasprota. í fvll- ingu tímans fór laxstofninn að aukast og það miðaði óðum í rétta átt. Nú er orðið langt síðan stofnin náði sér að fullu og Elliðaárnar eru jafn lax- ríkar og þær áður voru. Frá klakhúsi Reykjavíkurbæjar við Elliðaár hafa einnig verið fluttar milljón- ir laxaseiða í aðrar ár, sem hætt voru komnar, eða með öllu laxlausar. Ómetan- legt er það starf, er fram hefir farið í þessu litla jarðhúsi á þeim tuttugu árum, sem liðin eru. Dýralifið á láði og legi hefir oft fjötr- ast, við gerð hinna miklu mannvirkja nú- tímans. Það hefir verið sagt með nokkr- um rétti, að forráðamönnum og verk- fræðingum slíkra stórvirkja, þætti smátt um þann þáttinn, er að dýralífinu vissi, en það var lán Elliðaánna, að sá maður- inn, sem réði þar mannvirkjum mest, var ekki í hópi slíkra manna. Forsjá árinnar varð í höndum raf- magnsstjórans, Steingríms Jónssonar. — Hans starf var auðvitað, að nytja orku hennar til fullnustu, — en hann átti sér alltaf ofurlitla hugsjón í sambandi við ána. Hún var fyrir honum dálítið meira 12 VlIDIMABUKlNN

x

Veiðimaðurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.