Veiðimaðurinn - 01.12.1951, Page 17

Veiðimaðurinn - 01.12.1951, Page 17
á kviðnum, og er sem hluti af líkama þeirra. Hann gerir þeim sundið erfitt fyrst í stað, en án hans yrðu þeir hungur- morða. Smá eru þessi seiði og glær í gegn, en við getum auðveldlega greint gegnum glærleikann, hve hjartað slær sterklega og hve öruggt það veitir blóðinu gegnum tálknin og hinar hárfínu æðar, sem kvísl- ast um líkamann. Nýtt líf hefur vaknað af svefni í myrk- um klakkössunum. Á undursamlegan hátt hefir það sprungið út, í allri sinni dýrð og æskunnar þrótti .... Fyrir handan hæðina rennur áin í sólskininu. Hún er nýleyst úr fjötrum vetrarins og bíður fósturbarnanna. Hún verður þeim eflaust bæði góð og slæm eins og skapið hrekkur til, en það verður að fela Iienni áframhaklið. Fela henni þau í þrjú löng ár, og þá fyrst eru seiðin komin svo á legg, að þau geta hugsað til langferðar út í öldur Atlantshafsins. * Stiklað hefir verið á stóru um merki- legan þátt í lífi laxanna og lítillar ár. Rakið nokkuð hvernig það starf fer fram, og hvernig árangri má ná, ef vel er á haldið. Árangur af klaki og fiskirækt kemur oftast ekki í ljós fyn- en eftir nokkuð langan tíma, og fyllir ekki strax í þau skörð, er höggvin eru. Menn missa því oft sjónar af nytsemd þess. Nógu al- menn og traust þekking á lífsháttum láðs- og lagardýra, verður ávallt undir- staða þess, að kunna að umgangast þau, og hafa af þeim not og gleði, og geta gripið inn í líf þeirra á réttan hátt, til bjargar, þegar að þrengir. Allir dáumst við að styrkleika og feg- urð laxins, þegar hann stiklar sterklega strauminn eða grípur flugu veiðimanns- ins og gerir honum heitt í hamsi. Á slíkum stundum hættir okkur við að gleyma ýmsum staðrevndum um feril og afkomu þessara glæsilegu fiska. Okk- ur hættir við að gleyma því, að á lífsferli jjeirra, eru maxgar hættur fyrir stofninn, að liann þarf svo að segja að framselja sig og sína. Trúnað árinnar, er oft reynist svikull, þarf hann að hafa um afkomu hrogna og seiða, og gangan við bæjardyr manna verður honum oftast þung í skauti. Sé þetta haft í huga, er engin hætta á ferðum. Það eru ýmsar leiðir til að styrkja veikustu þættina, þótt aðeins hafi verið drepið á eina þeirra hér að framan. Enn- þá eru þó of fáir, sem hyggja að þessum málum sem skyldi. Ennþá eru of margir veiðieigendur, sem fremja rányrkju fyrir vesælar krónur, með þungum álögum á veiðiárnar ár eftir ár, án þess að hrevfa luind né fót, til að auka öryggi fiski- stofnsins. Ágirnd og hreppapólitík hald- ast í hendur og kæfa að mestu hverja viðleitni. í landi því, sem hefir einna flestar lax- og silungsár í Norðurálfu og mergð vatna, eru ekki fleiri klakstöðvar en telja má á fingrum annarrar handar, og yrði þó afgangur, og af þeim aðeins ein einasta með nokkurri getu. Til saman- burðar, svo aðeins sé nefnt eitt dæmi, voru í Noregi fvrir heimsstyrjöldina, á annað hundrað klakhús stór og smá. Það er eflaust gott að stofna sem flest fiskiræktar- og veiðifélög, en þá má ekki fiskiræktin detta framan af og veiðifélag- ið eitt verða eftir. Það er tvöföld skömm að skýla aðgerðarleysi og sleifarskap bak við fagrar nafngiftir. 15 VZIDIMABUKINN

x

Veiðimaðurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.