Veiðimaðurinn - 01.12.1951, Qupperneq 18
ÞORGILS INGVARSSON:
Kafli úr sendibréfi.
Ejtirfarandi grein (eða sendibréf), er sérstaklega athyglisverð fyrir
þrennt.
í fyrsta lagi: Hún sannar, hve veiðarfærin geta enzt, efvel er farið með
þau, en það skiptir miklu máli nú, eins og verðlag er orðið á öllu, sem
að veiðiskap lýtur.
í öðru lagi: Hún sýnir að höfundur hennar hefur „bókhald“ sitt i
góðu lagi. Það má lesa á milli linanna, að hann hafi átt margar ánægju-
stundir, utan veiðitimans, við að ditta að dóti sinu og skrifa „skýrslur“
sinar.
í þriðja lagi: Hér er minnst á mál, sem veiðimenn velta oft fyrir sér,
þ. e. hversvegna laxinn tekur þessa fluguna, en ekki hina og ekki nema
vissar stærðir af sömu flugunni. Tilraun sú, sem hér er sagt frá er mjög
skemmtilegt athugunarefni, c
um það mál. — Ritstj.
Kæri herra............!
Ég þakka yður innilega fyrir bréiið,
ásamt meðfylgjandi línu; hún er að vísu
full grönn fyrir mig, sem flugulína, en
að öðru leyti virðist hún vera prýðileg.
Eins og ég sagði yður, var gamla línan
mín orðin 16 ára gömul, en hún var uop-
haflega vönduð („Corona“); auk þess sem
ég hef reynt að fara vel með hana, þó það
hafi ekki ævinlega lánast sem skyldi. Á
þessa línu hef ég dregið 588 laxa og um
800 silunga (bleikju og sjóbirting). —
Línan er sæmileg ennþá; ég hafði enda-
skipti á henni fyrir 4—5 árum, er búinn
að slíta af hvorum enda 3—4 yards, en
upphaflega var hún 40 y., svo eftir eru
ekki nema 32—33 y.
f þessu sambandi vil ég taka fram, að
það marg borgar sig að kaupa vönduð-
ustu línutegund, þó dýr sé, en hirðingin
verður að vera góð.
16
væn gaman að flem vildu sknfa
Laxaaflinn skiptist þannig á beitu.
302 laxar á flugu 1295 kg. meðalþ. 4,3 kg.
267 - - maðk 1040 — - 3,9-
19 — - spón 91— — 4,8 —
Silungarnir eru flestir veiddir á maðk,
rúmir 100 á flugu. Áætlaður þungi þeirra
er 700 kg.
Á þessu tímabili og við þennan veíði-
skap hef ég misst og eyðilagt 48 flugur,
en auk þess á ég nokkrar (10—15 stk.),
sem eru algjörlega upp étnar og einskis
virði, þó ég hafi ekki tímt að henda þeim.
Á eina og sömu fluguna fékk ég 29 laxa
(Black Doctor nr. 3) á tveim sumrum.
17 fluguköst hef ég notað á tímabilinu,
sum þeirra voru algjörlega ónýt (3), en
önnur ótrúlega sterk; á eitt þeirra dró
ég 41 lax, og var einn þeirra 14 kgr. F.g
hef notað langmest af „Red-Loop“ kóst-
um, sem talin munu vera sæmileg vara,
en þó frekar ódýr, miðað við önnur dýr-
VlIOIMAOUKlNN