Veiðimaðurinn - 01.12.1951, Blaðsíða 34

Veiðimaðurinn - 01.12.1951, Blaðsíða 34
Nokkrnr rúsínur í jologroutino. „The Wise Fishermen’s Fmcyclopedia" heitir bók, sem gefin er út í New York á þessu ári. Bókin er með fjölda af myndum, en annars með þéttprentuðu lesmáli, alls 1336 síður, og er þar víst drepið á allt, sem að stangarveiði lýtur. Þar er sérstök grein um íslenzku veiðiárnar, eftir Capt. T. Edwards, en eins og ýmsum veiðimönnum hér er kunnugt, dvaldi hann hér við laxveiðar um tíma, sumarið 1949, í boði Stanga- veiðifélags Reykjavíkur, og segist hann skrifa greinina með hliðsjón af þeirri revnslu og upplýsingum, er hann fékk þá. Lesendur Veiðimannsins hafa eflaust gaman af að njóta einhvers af þeim fróð- leik, sem greinin hefur að bjóða, og fara því hér á eftir nokkur sýnishorn af efn- inu, í lauslegri þýðingu. Fyrst eru nöfn á nokkrum veiðiám: Vididalsa, Laxamyri River, Nordura River, Meda, Laxa Dolum, Laxasouth, Valnadalso, Rango River, Hitora. Um Norðurá (Nordura River) segir hann, að þar byrji veiði ekki fyrr en komið sé nokkuð fram í júlí. Veiði þeirra félaganna þar í fjóra daga var ekki nema 23 laxar, en nokkuð bætti þó úr að þeir voru 20 pund að meðalþunga! í Laxá í Dölum (Laxa Dolum) voru þeir félagar aðeins hálfan dag, en þar var veiðin aftur á móti svo ör, að þeir gáfust fljótlega upp við að telja laxana, sem þeir veiddu. 1 Langá veiddu nokkrir kunningiar hans fyrir nokkrum árum, 611 laxa á 21 degi. Meðalþungi þeirra var 6 pund. í Laxasouth (á sennilega að vera Laxá í Hreppum) veiddi einn kunningi hans 75 laxa á tveim dögum, og var meðal- þunginn 15 pund. Brúará, sem er hálfgerð jökulsá, er full af laxi. Meðalþungi er 16 pund!! Stærðin á löxum í hinum ýmsu ám, er mjög misjöfn. Sumsstaðar eru þeir 5—7 pund en annarstaðar 18 pund og þaðan af stærri. Flestar ár á íslandi eru fullar af sjó- birtingi, en íslendingar nenna ekki að veiða hann, vegna þess, hve mikið er af laxinum. Sjóbleikja gengur mikið í sumar árnar í júlí og ágúst og er 4—7 pund. Algeng dagveiði er 40—50 bleikjur. Á íslandi er aðallega veitt með flugu, og best reynast flugur með dökkum búk. Annars er íslenzki laxinn ekki vandæt- inn, því hann tekur yfirleitt allt, sem honum er boðið með sæmilegri fram- reiðslu. Þó heldur hann alveg sérstak- 32 Veiðimaðurinn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Veiðimaðurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.