Veiðimaðurinn - 01.12.1958, Side 5

Veiðimaðurinn - 01.12.1958, Side 5
útlit þeirra laxa, sem við sáum bylta sér og stökkva í ánni, spegilfagra og fulla af lífsþrótti sl. sumar, myndi fyrsta hugsun okkar ekki verða sú, að bjóða þeim agn. Þeir hafa nú hrygnt og eiga fyrir hönd- um erfiða og hættusama ferð, sem vafa- laust verður hin siðasta þeirra rnargra. Þrótturinn er lítill og hætturnar margar. Straumþungi árinnar getur jafnvel orðið þeim ofraun, þegar undan honum skal synda, og þótt allt. gangi slysalaust niður að ósnum, sitja ýmsir óvinir á fleti fyrir, þegar þangað kemur. Helzt vildum við mega gefa þessum löxum æti, fita þá og styrkja áður en þeir halda af stað til sjáv- ar, svo að þeir næðu aftur fullum þrótti áður en þeir færu út. í hafið. Og bak við þessa umhyggju liggur ekki fyrst og fremst sú von, að þeir komi aftur i ána og við getum veitt þá næsta sumar, held- ur þykir okkur beinlinis vænt um fisk- inn, af þvi að við erum i nánum tengsl- um við líf hans og umhverfi, enda þótt við undir vissum kringumstæðum höfurn ánægju af að leika okkur rneð lif hans og taka það. Og hversu undarlegt, sem þetta kann að vera frá sumra sjónarmiði, þá eru ýmsar mótsagnir mannlegs eðlis engu auðskildari en þessi arf ur frá okkar fyrstu feðrum. Sú gát.a verður sennilega seint ráðin, hvers vegna sumar tegundir fiska hlutu það eðli, að vilja lifa bæði i vatni og sjó, en margir hafa haft gaman af að glima við hana og þá ekki sizt, hvernig þeir rata aftur heim til átthaganna. Við það eru vísindamenn víðsvegar um heim að glima dag hvern á rannsóknarstofum og tilraunastöðvum fiskifræðinganna. En frá sjónarmiði okkar veiðimanna er þó ef til vill skemmtilegast af þessu öllu, að velta þvi fyrir sér, hvers vegna fiskurinn lætur ginnast af flugum okkar og öðrum gervi- beit um. Það væri ekki ónýtt, að geta sjálf- ur orðið að fiski, svo sem eina viku á sumri — á milli veiðiferða — án þess að glata sínu mannlega minni. Sá mundi vera orðinn margs visari nœst þegar hann kœmi að ánni til að veiða. Hœttan er ef til vill sú, að hann vissi þá svo mikið, að hann langaði ekki framar til að veiða. En svo mikið vildum við liklega fæstir vita! Náttúruskoðun, i hvaða mynd sem er, heillar menn þvi meir, sem þeir leggja meiri stund á hana, og hjá því getur vart farið, að þeir, sern stunda stangaveiði ár- um eða áratugum saman, komist að ein- hverju leyti inn á þá braut. Og þeim tirna getur ekki talizt illa varið, sem við notum til þess að öðlast skilning á lifinu umhverfis okkur, hvort sem það eru fiskar eða aðrar lífverur, sem áhuginn beinist að. Við erum allir með einhverj- um hætti tengdir þessu lifi, gegnum þá sameiginlegu uppsprettu, sem við sjálfir og það allt er runnið frá, og við ættum að leggja stund á að styrkja, fremur en veikja, þann þráð. Stjé>rn S.V.F.R. gekkst hér á dögunum fyrir skemmtikvöldi í Þjóðleikhúskjallar- anum. Þar voru m. a. sýndar kvikmynd- ir frá veiðiám, þar sem margir hafa átt unaðslegar stundir. Eg geri ráð fyrir að fleirum en mér hafi fundizt þeir lifa upp aftur liðna atburði um leið og myndum þessara gamalkunnu og kæru staða brá fyrir á tjaldinu. Það var ánægjuleg kvöld- stund, En við eigum þessar myndir allar og margar aðrar á hugartjaldi okkar, og á k.yrrum stundum geta þær orðið býsna Veiðimaðurinn 3

x

Veiðimaðurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.