Veiðimaðurinn - 01.12.1958, Page 29

Veiðimaðurinn - 01.12.1958, Page 29
undirlínunni, þá fyrst tekur liann á rás eft.ir fiskinum. Hleypur nú sem hann eigi lífið að leysa og vindur sem mest hann rná inn á hjólið, en er allan tímann út í ánni. Það er einkennilegt, hvað sumum mönnum þykir gaman að ösla úti í ánum, þegar þeir eru að þreyta fisk, eða ef til vill vita þeir það ekki, hve miklu léttara er að fóta sig á þurru landi en hálum steinum! Leikurinn l>erst nú alla leið niður að fossi, og geta nrenn þá gert sér í hugar- lund stærð skepnunnar. Nú, eins var með okkur. Við héldum auðvitað að þetta væri minnst 20 punda lax. Þannig hagar til þarna, eins og flestir vita, að girðing er alla leið frá flúðunum fyrir ofan fossinn og niður undir sjó. Innan hennar er algjör friðhelgi þess, sem er að veiða, eða svo er til ætlast. Brá nú maðurinn sér inn fyrir girðing- una, en fiskurinn fékk sér fljóta ferð nið- ur fossinn. Hvað áttum við nú til bragðs að taka, til að missa ekki af endalokunum? Jú, við afréðum að gerast hrotlegir og fara inn fyrir. Nú, það stóð heldur ekki á því! Um leið og við höfðum klöngrast yfir, æpti náunginn til okkar: „Viljið þið gjöra svo vel að hypja ykkur út fyrir“. Þetta voru einkennileg viðbrögð hjá veiðimanni. í staðinn fyrir að miklast af því, að hafa sett í fisk og hann ekki í minna lagi, þá ætlar hann sér að reka vitnin í burtu! Þetta þótti okkur meira en lítið undarlegt, svo við fórunr hvergi, heldur gengum ennþá nær, til að missa ekki af neinu. En í augnaráðinu, sem okkur var sent, fólst ótvíræð ítrekun þess, að við værum óvelkomnir. Okkur fannst þetta nú orðið hálfgert þóf, því kviðurinn á fiskinum snéri nú miklu oftar upp en bakið. En náunginn ætlaði víst niður í sjó, því áfram hélt hann. Niður kvarnirnar og niður undir brú. Vorurn við þá komnir upp á gömlu brúna, en náunginn og fiskurinn undir hana, svo við sáum þá ekki. Eru þeir þarna í hvarfi litla stund, en birtast aftur og var þá ca. 6 punda lax hangandi við hlið náungans! Þar með hafði hann snúið á okkur og eyðilagt, fyrir okkur hámark ánægjunnar, þ. e. a. s. þegar fiskinum er landað. Er við hittum veiðifélaga okkar daginn eftir, þá kvaðst hann einnig hafa farið inn að ám daginn áður, um það leyti, sem veiði var að ljúka. Kom hann þá að þessum sama náunga í Efri-Móhyl og var hann þar með fisk á, en svo óheppilega hafði viljað til, að krækst liafði óvart í bak fisksins! Sagði náunginn það sinn sjötta fisk þann daginn. En er við litum í veiðibókina voru þar aðeins fimm bók- aðir! Hversu oft skyldu veiðimenn hafa verið minntir á það, að færa rétt í veiði- bækurnar? Einkennilegt hvað menn láta sig rnuna mikið um lítið. Það sem hér hefur verið nefnt um klaufalega og óviðeigandi hegðun við árn- ar, er ekkert einsdæmi. Um það mætti skrifa nrargar sögur, en það er afar leið- inlegt, að þurfa að gera slíkt, og það í málgagni þeirra nranna, er vilja standa öðrum framar á þessu sviði. En hvernig eigum við að bæta veiðimenningu okkar, Vmpm^imfNN 27

x

Veiðimaðurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.