Veiðimaðurinn - 01.12.1958, Page 14

Veiðimaðurinn - 01.12.1958, Page 14
SéO yfir streng efri hluta Berghyls. Bœrinn Norð- tunga i baksýn. að jakahrannirnar næðu brúninni hér á hylnum". „En segðu mér eitt: Náði flóðið ekki langt upp í Sleggjulækinn?“ „Jú, flóðið náði langt upp í lækinn, og liann varð með öllu ófær, nema fuglinum fljúgandi. Þú sérð fossana í gilinu héðan, þeir mynduðu eina samfellda heild, bví- líkt var vatnsmagnið". „En klakstöðin okkar?“ „Klakstöðin. Áin og lækurinn hafa séð fyrir henni.“ „Við, sem ætluðum að setja laxa-seiði í lækinn í sumar, til að bæta upp fyrir fólkinu á Sleggjulæk allan silunginn, sem við höfum fengið að veiða hjá því tindanfarin sumur“. „Já, þannig höfðum við hugsað, en mér hefir dottið eitt ráð í hug: Ef við segðum fóstra mínum alla söguna um „klakhúsið", þá myndi hann gefa okkur tíma og holl ráð til að byggja það að nýju.“ „En segðu mér annars, hvenær kom Englendingurinn í sumar?“ „Þú meinar liann Ratchlif, jú hann er kominn fyrir nokkru og er farinn fram 12 að Víghól með allan sinn farangur og hann Blesa sinn. Þú hefðir átt að sjá, þeg- ar þeir hittust, hesturinn tók sprettinn hneggjandi, þegar liann kallaði á hann, lagði hausinn \ inalega upp á öxlina á gamla manninum, nuddaði flipanum um háls lians og höfuð, en við það datt gamla flugnahúfan af höfði Englendingsins í poll á bæjarhlaðinu og skitnaði út, en ekki var hægt að sjá að þeim brigði við þetta. Mér skildist að Ratchlif segði, að Þverá myndi þvo fyrir sig flugurnar.“ „Jæja frændi, mig er farið að langa til að sjá fyrsta laxinn á sumrinu. Gæti ekki hafa komið ganga í ána í nótt?“ „Við skulum athuga það. Ef við förum upp á brúna sjáum við um allan hylinn niður að Kirkjustreng, en hver er að koma þarna? Mér sýnist það vera Run- ólfur. Nú, hann er að sækja okkur“. „Komið þið drengir, ég bíð eftir ykkur hér upp á brúnni“. „Hefir ekki komið lax í hylinn í nótt fóstri?" „Mér datt nú einmitt í hug áð athuga það. Hann rigndi svo mikið á Tvídægru og Kjarardal í gær, enda sýnir áin það nú þegar, að nýja vatnið hefir örfað göng- una. F.g sé í hylnum eina átta laxa, fjórir eru þarna neðan við mesta straumkastið, tveir neðan við stóra botnsteininn og aðrir tveir liggja neðst í hylnum, ofan við brotið. Það má segja að þú sért eng- in fiskifæla, Jörgen. Átta laxar fyrsta morguninn, sem þú kemur að Berghyl!“ „En fóstri, hvaða hvíta umgjörð er þarna á einum laxinum, sem liggur neðan til við straumkastið? Það er hvít rák aftan við tálknlokin og þvert yfir hausinn". Veidimaðurlnn

x

Veiðimaðurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.