Veiðimaðurinn - 01.12.1958, Qupperneq 25
ÞÓRARINN SVEINSSON, lœknir:
j5n störi ör Norðurö.
í SKEMMTILEGRI grein í Veiði-
manninum, nr. 44, getur Ásgeir Bjarn-
þórsson listmálari um stóra laxa, veidda
í Norðurá. Þar minnist hann á, að capt.
Aspinall liafi veitt stóran lax í Myrkhyl.
Það vill nú svo vel til, að ég var við-
staddur, er capt. Aspinall veiddi þennan
lax. Því miður liefi ég ekki aðgang að
veiðiskýrslum frá Norðurá á þessvt tíma-
bili og er efins um, að þær séu til. Get ég
því ekki fyrir víst sagt, hvaða ár þetta
var, en mig minnir, að það væri 1932.
Dag þann, er laxinn var veiddur, var
veðri svo háttað, að á var sunnangola og
rigning öðru hvoru. Hafði gengið mikil
rigning undanfarið, en var í uppstyttu.
Mikill vöxtur var í ánni, og taldi capt.
Aspinall óveiðandi vestanverðu við
Myrkhyl, nema þá niðri í rennum. Hins-
vegar hafði hann oft fengið góða veiði
að austanverðu, við lík skilyrði, og hélt,
hann nú þangað, eftir að liafa veitt nokk-
uð á eyrinni, neðan við Laxfoss.
Meðfram austurbakkanum við Myrk-
hyl eru djúpar rennur og klapparhryggir,
eins og þeir þekkja, er þar hafa verið.
Skaga smá nef fram í ána á tveim eða
þrem stöðum. Ofan við efsta nefið hóf
Aspinall veiði sína, enda þótt lionum
þættu litlar líkur fyrir veiði þar, vegna
straumflugs í ánni. Miðað við svona
Capt. Aspinall með einn vœnan úr Norðurá. Þvi
miður mun engin mynd vera til af honum hér
með þann stóra.
mikið vatn, var hann með mjög litla
flugu, Blue Charm nr. 5 eða 6. Hann
hafði ekki kastað mörgum köstum, er
þriflega var tekið á móti, og síðan var
blátt strik niður allan liyl. Varð hann
því að hraða sér fljótt í land og hlaupa
Veimmadurinn
23