Veiðimaðurinn - 01.12.1958, Qupperneq 53

Veiðimaðurinn - 01.12.1958, Qupperneq 53
ig hann fór að því, einn síns liðs, að ná dýrinu á vald sitt, í orðsins fyllstu merk- ingu, og leiða það fram hjá fylgsni mínu! — Óskeikul þekking lians á hverju smá- einkenni eða vísbendingu, já, jafnvel hugsunurn dýranna, sem við vorum að eltast við, — allt væri þetta efni í þykka bók. En þetta var útúrdúr. Ég ætlaði að segja þér frá einu mjög sérstæðu atviki, sem jafnframt var eina skiptið, sem Jhá- poo veitti mér hlutdeild í leyndardómum sínum og jafnvel ennþá undarlegri hlut- um, í sambandi við hina furðulegu dán- argjöf til mín. Vildi ég þó feginn hafa orðið af þeirri fræðslu. Það var á miðjum „hitatímanum“. Við höfðum þá í nokkra daga verið að eltast við risavaxið, mannska;tt tígrisdýr, sem hafðist við í frumskógum Mánjród, sem liggur að ánni Tapti. Það hélt sig nálægt hinum liálfræktuðu spildum, sem voru þarna meðfram árbakkanum, eins og smá- eyjar í hafi frumskógarins, sem á þessum árum þakti allt umhverfið. Það sást hjá þessum blettinum í dag og hinum á morgun, átti til að hremma fólk um há- bjartan daginn og skjótast svo. með bráð- ina inn í hávaxið gras og gróðurþykkni, þar sem heita mátti ógerningur að kom- ast að því. Sjálfur Jhápoo stóð ráðþrota og átti fullt í fangi með að dylja gremju sína bak við dulfræðibrynjuna. Loks kom þar, að skyldustörf mín kölluðu mig til fjarlægs landshluta. Ég var að horfa á þjóna mína búa út farangurinn og fella tjöldin. Jhápoo sat afsíðis og Jióttist vera annars hugar, til þess að dylja vonbrigði sín, en á því, hvernig hann hreyfði var- irnar, var mér ljóst, að hann var að lesa hryllilegustu bölbænir tungu sinnar yfir ætt og uppruna mannætunnar. Nú vildi svo einkennilega til, að ein- mitt í þessurn svifum, rétt undir kvöldið, kom einn þorpsbúinn æðandi til þess að segja okkur, að tigrisdýrið liefði fvrir lít- illi stundu ætlað að hremma rnann, rétt við bækistöðina, en mistekist það. Mað- urinn var á ferð í uxakerru framhjá þykku skógarbelti á bakka þverár einnar, sem heitir Kókri, þegar dýrið skauzt fram úr þykkninu og ætlaði að klófesta öku- manninn. En uxarnir sveigðu svo snöggt til hliðar, að hann hrökk niður úr sæt- inu og lienti sér samstundis fram af bakk- anum út í hyl, sem þarna er í ánni. Við vorum fljótir að tygja okkur, og innan lítillar stundar var hann lagður af stað með byrði sína þessi eini gamli fíll, sem hin föðurlega ríkisstjórn hafði fengið mér til umráða á erfiðum ferðalögum um frumskóginn. Jhápoo var alltaf frernur andvígur Javí, að nota fílinn, en nú var bæði mjög skammt til myrkurs og skóg- urinn með eindæmum þykkur, svo ég mátti til með að stjórna förinni af ííls- baki og láta gamla manninn rekja slóðina gangandi, undir vernd hlaðins riffilsins. Ósennilegt var að dýrið hefði farið langt á svona stuttum tíma, en það var nálega ógerningur að rekja slóð Jiess, því rétt áður hafði geisað þrumuveður og síð- an komið brennandi sóiskin, svo jarðveg- urinn var orðinn þurr og grjótharður. Ryk sást hvergi. Þótt skógurinn vaéri þétt- ur þarna á bröttum og bugðóttum bakka Kókri-árinnar, var svæðið fremur lítið o" hægt að rannsaka það til hlítar á fílnum. Eftir erfiða tveggja klukkustunda leit var ftl Veummaburinn
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Veiðimaðurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.