Veiðimaðurinn - 01.12.1958, Síða 59

Veiðimaðurinn - 01.12.1958, Síða 59
hafði þreytt iiskinn góða stund, fór hann að taka í fastara lagi á honum, og þó ekki meira en óhætt mátti telja, á maðktekn- um fiski. En þá veittu þeir því athygli, að fiskurinn var eitthvað undarlega „tek- inn“. Þeir sáu ekki betur en að öngullinn með máðkinum dinglaði laus við hlið laxins, og í sömu svifum hætti allt við- nám og fiskurinn fór leiðar sinnar. Þegar farið var að athuga, hvernig á þessu stæði, kom í ljós, að girnið nteð flugunni, sem Magnús missti í laxinum daginn áður, hafði nú vafist utan um sökkuna hjá fé- laga hans. Var þetta því sami laxinn, en hann hafði ekki snert við maðkinum, Iieldur var flugan enn föst í honum. Með þessum hætti losnaði hann þó við hana! LAXAR GANGA Á LAND. SÁ undarlegi atburður gerist stundum, að laxar ganga á land. Eru til um það vel staðfestar frásagnir, bæði innlendar og erlendar. Fyrir einu eða tveimur árurn voru þeir Sæmundur Stefánsson, stórkaupm., Kol- beinn Jóhannsson, endurskoðandi og Arnbjörn Oskarsson, forstjóri, við veiðar í Svalbarðsá í Þistilfirði. Bar þá svo við einn daginn, er Kolbeinn var að kasta nokkru neðar í ánni en félagar hans, að þeir sáu lax koma strikandi upp ána á ofsalegum hraða. Héldu þeir fyrst að fisk- urinn væri á eftir beitunni hjá Kolbeini, eða hefði þegar tekið hana, en svo reynd- ist ekki. Laxinn þurfti ekkert slíkt sam- band. Hann strikaði beint upp á land rétt hjá Kolbeini. FYRIR nokkrum árum var Óskar Árnason, fyrrv. rafstöðvarstjóri á Seyðis- firði, að veiðum í Kaupamannapolli í Norðurá, ásamt öðrum manni. Sáu þeir þá úti í rniðri á, fram af neðstu bryggj- unni á Almenningnum, fisk, sem þeim virtist hegða sér mjög einkennilega. Hann spann sig beint upp úr vatninu nokkrum sinnurn, buslaði og brölti, tók síðan roku beint að landi og upp á þurri og bylti sér góða stund. Þar misstu þeir sjónar á honum, eða hættu að veita hon- um athygli, og gerðu ráð fyrir að hann hefði brölt út í ána aftur. En þegar þeir komu yfir ána, fundu þeir hann dauðan uppi á þurru. Ég hef ekki haft tækifæri til þess að heyra sögu þessa af munni Óskars sjálfs, en athugull og sannorður maður, sem var með honum í þessari veiðiferð, hefur sagt mér hana, og veit ég því að lnin er sönti. Ritstj. JÓLAKORT S.V.F.R. RÉTT þykir að rninna félagsinenn í Stangaveiðifélagi Reykjavíkur og aðra veiðimenn á jólakortin, sem S. V. E. R. hefur látið gera. Þau eru fyrst og fremst ætluð veiðimönnum, sem vilja skiptast á jólakveðjum, en að sjálfsögðu er hægt að nota þau fyrir kveðjur til annarra líka. Jólakort, sem minnir okkur á stundirnar \ ið árnar, hlýtur að vera mjög kærkomin kveðja í skammdeginu. Kortiu eru til sölu í flestum bókabúð- um og sportveiðarfæraverzlunum. Ættu félagsmenn að vera samtaka um að styðja sitt eigið félag og kaupa kortin, því and- virði þeirra er varið til að bæta aðbúð okkar við veiðiárnar. Veimmaðurinn
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Veiðimaðurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.