Veiðimaðurinn - 01.12.1958, Qupperneq 62
Frá aðalfundi
S.V.F.R.
S.V.F.R. hélt aðalfund sinn í Sjálf-
stæðishúsinu laugardaginn 29. nóv. sl.
Formaður félagsins, Viggó Jónsson,
minntist í byrjun fundarins látinna fé-
laga, eins og venja er til, en þeir voru ó-
venjulega margir að þessu sinni, eða tíu
á starfsárinu. Því næst flutti formaður
skýrslu stjórnarinnar og var hún mjög
ítarleg.
Veiðin í ám félagsins var nokkuð mis-
jöfn, fór sumstaðar langt fram úr því,
sem búist var við, einkum í Miðfjarðará,
en annarsstaðar varð hún talsvert minni
en menn höfðu vonað, t. d. í Elliðaánum.
Þar gekk laxinn óvenjulega seint, eins og
menn muna, og síðan háði vatnsleysið
veiðinni mjög mikið.
Veiðin í einstökum ám, ásamt Meðal-
fellsvatni, var sem hér segir:
Elliðaárnar ........ 948 laxar
Bugða ................. 172 -
Laxá í Kjós ........... 805 —
Meðalfellsvatn .......... 9 —
Laxá í Leirársveit .... 433 —
Norðurá ............... 786 —
Fáskrúður ............. 290 —
Miðfjarðará .......... 1418 —
Samtals 4861 laxar
Rétt er áð taka frarn, að ekki hafa fé-
lagsmenn S.V.F.R. veitt alla þessa laxa,
því svo sem kunnugt er, hafa önnur félög
sumar árnar að nokkru leyti.
Veiðifyrirkomulag var með sama
liætti c.g áður, nema að nú var aftur leyft
að tveir félagsmenn væru saman um
stöng, þar sem það fer ekki í bága við
samninga.
Þetta var fyrsta árið, sem veitt var eftir
hinni nýjn veiðilöggjöf, og þótt enn sé
of snemmt að dæma um áhrif hennar,
virðist þó margt benda til þess, að breyt-
ingarnar, sem gerðar voru á lögunum,
reynist til mikilla bóta.
F'élagið tók Reyðarvatn og Uxavatn á
leigu sl. sumar, en ekki virðist reynslan
benda til þess að áhugi félagsmanna fyrir
veiði vatnasilungs sé svo mikill, að ástæða
sé til að endurnýja þá samninga.
Félagið bauð í tvær ár, sem losnuðu úr
leigu á árinu, Hrútafjarðará og Kjallaks-
staðaá, en fékk hvoruga. Hvorug þeirra
er mikil veiðiá, og varla gerlegt að taka
þær fyrir liærri leigu en stjórn S.V.F.R.
bauð.
Nýr samningur var gerður um t,axá
í Kjós og vatnasvæði hennar, til 5 ára.
Umsjónarnefndirnar, sem stjórnin
skipaði sér til aðstoðar unnu ágætt starf.
Elliðaáarnefndin sá um lagfæringar á
veiðistöðum og hreinsun árfarvegarins.
Haldið var áfram gróðursetningu trjá-
plantna við Norðurárhúsið og unnið að
lagfæringum á lóðinni ásamt ýmsu öðru.
Unnið var að stækkun o° endurbótum á
o
veiðiskúrnum við Laxá í Kjós og mun
þeim viðgerðum verða lokið fyrir veiði-
tíma í vor. Við Laxá í Leirársveit var
einnig unnið að fegrun umhverfis húsið.
Nokkur skriður komst á klakmálið, og
verður sagt nánar frá framkvæmdum og
áformum á því sviði í næsta blaði.
A aðalfundi 1957 voru félagsmenn
60
Vkibimaðurinn