Bændablaðið - 15.12.2022, Page 1

Bændablaðið - 15.12.2022, Page 1
54 23. tölublað 2022 ▯ Fimmtudagur 15. desember ▯ Blað nr. 624 ▯ 28. árg. ▯ Upplag 33.000 ▯ Vefur: bbl.is Kornrækt: Stærra ræktarland og meiri uppskera Land til kornræktar á Íslandi var aukið um 12 prósent í ár miðað við umfangið á síðasta ári. Samþykktar jarðræktarumsóknir fyrir kornrækt árið 2022 voru fyrir rúmlega 3.450 hektara lands, miðað við 3.036 hektara árið 2021. Þá var kornuppskera alls um 9.500 tonn af þurru korni, sem er rúmlega tvö þúsund tonnum meira en á síðasta ári. Að meðaltali eru það 3,1 tonn á hektara. Horfa þarf aftur til ársins 2014 til að finna svipað umfang kornræktar. Fordæmalausar hækkanir á kjarnfóðri á síðustu tveimur árum hafa vafalaust haft hvetjandi áhrif á bændur til aukinnar framleiðslu á sínu fóðurbyggi. Hækkandi fóðurverð og hlýtt sumar 2021 Eiríkur Loftsson, jarðræktarráðunautur Ráðgjafar miðstöðvar landbúnaðarins, segir það líklega rétt að heldur meira umfang kornræktar í ár megi skýra af hækkandi fóðurverði á heimsmörkuðum. „Það má ætla að hlýtt sumar 2021 hafi hvatt bændur til aukinnar ræktunar. Á undanförnum árum hefur þróunin verið sú að þeir bændur sem hafa náð tökum á kornræktinni og eru með góða aðstöðu til að nýta kornið til fóðurs hafa gert hana að föstum þætti í sinni fóðuröflun og í sumum tilvikum aukið hana að ákveðnu marki. Alltaf bætast þó í hópinn aðilar sem prófa ræktun á korni tímabundið og halda henni svo áfram,“ segir hann. Betri uppskera sunnanlands Eiríkur telur að uppskeran hafi almennt verið betri sunnanlands en norðan þetta árið, bæði að magni og gæðum. Miklu skiptir að geta sáð snemma á vorin til að eiga möguleika á góðum árangri að hausti. „Norðanlands var hiti heldur lágur og ekki síður sólarleysi, sem gerði það að verkum að kornið þroskaðist seint. Því varð tíminn til þess stuttur sem gerði það að verkum að kornið náði sums staðar ekki þroska og á einhverjum stöðum var það slegið sem grænfóður. Í einhverjum tilvikum spillti næturfrost í ágúst einnig kornþroska. Sumir bændur náðu þó góðu korni fyrir norðan. Á haustin er allra veðra von og urðu einhverjir bændur fyrir talsverðum skakkaföllum þar sem korn tapaðist í hvassviðri,“ segir Eiríkur. Eðlilegt að stefna að meiri kornrækt Í fæðuöryggisskýrslunni, sem skilað var til stjórnvalda í febrúar á síðasta ári, kemur fram að þótt Ísland sé á jaðarsvæði kornræktar megi rækta hér töluvert af korni til fóðurs og manneldis. Eðlilegt sé að stefna að því að rækta meira til fóðurs en gert hefur verið hingað til og æskilegt sé að hefja kynbætur á korni til manneldis.Í nýrri stöðuskýrslu starfshóps um eflingu kornræktar á Íslandi er lagt til að engar skerðingar verði á jarðræktarstyrkjum vegna kornræktar, svo hvatar séu til staðar til að stækka umfang ræktunar og greinin geti orðið að undirstöðuatvinnugrein í landbúnaði. Fjallað er um stöðuskýrsluna á blaðsíðu 8. /smh 28 Bændablaðið óskar lesendum sínum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári. Við förum bjartsýn inn í nýtt ár og njótum útsýnisins úr nýjum höfuðstöðvum Bændasamtakanna í Borgartúni, á meðan við hugsum með hlýhug til gömlu Bændahallarinnar. Jólablaðið að þessu sinni er stærsta tölublað Bændablaðsins frá upphafi – 112 síður. Teikning /Þorsteinn Davíðsson Að hafa trú á eigin sannfæringu Hringrásarlausn fyrir lífrænan heimilisúrgang 32 Góð úrvinnsla lykilatriði
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.