Bændablaðið - 15.12.2022, Blaðsíða 1
54
23. tölublað 2022 ▯ Fimmtudagur 15. desember ▯ Blað nr. 624 ▯ 28. árg. ▯ Upplag 33.000 ▯ Vefur: bbl.is
Kornrækt:
Stærra ræktarland og meiri uppskera
Land til kornræktar á Íslandi var aukið um
12 prósent í ár miðað við umfangið á síðasta
ári. Samþykktar jarðræktarumsóknir fyrir
kornrækt árið 2022 voru fyrir rúmlega 3.450
hektara lands, miðað við 3.036 hektara árið
2021. Þá var kornuppskera alls um 9.500 tonn
af þurru korni, sem er rúmlega tvö þúsund
tonnum meira en á síðasta ári. Að meðaltali
eru það 3,1 tonn á hektara.
Horfa þarf aftur til ársins 2014 til að finna
svipað umfang kornræktar. Fordæmalausar
hækkanir á kjarnfóðri á síðustu tveimur árum
hafa vafalaust haft hvetjandi áhrif á bændur til
aukinnar framleiðslu á sínu fóðurbyggi.
Hækkandi fóðurverð og hlýtt sumar 2021
Eiríkur Loftsson, jarðræktarráðunautur
Ráðgjafar miðstöðvar landbúnaðarins, segir það
líklega rétt að heldur meira umfang kornræktar
í ár megi skýra af hækkandi fóðurverði á
heimsmörkuðum.
„Það má ætla að hlýtt sumar 2021 hafi hvatt
bændur til aukinnar ræktunar. Á undanförnum
árum hefur þróunin verið sú að þeir bændur
sem hafa náð tökum á kornræktinni og eru með
góða aðstöðu til að nýta kornið til fóðurs hafa
gert hana að föstum þætti í sinni fóðuröflun
og í sumum tilvikum aukið hana að ákveðnu
marki. Alltaf bætast þó í hópinn aðilar sem prófa
ræktun á korni tímabundið og halda henni svo
áfram,“ segir hann.
Betri uppskera sunnanlands
Eiríkur telur að uppskeran hafi almennt verið
betri sunnanlands en norðan þetta árið, bæði
að magni og gæðum. Miklu skiptir að geta sáð
snemma á vorin til að eiga möguleika á góðum
árangri að hausti. „Norðanlands var hiti heldur
lágur og ekki síður sólarleysi, sem gerði það að
verkum að kornið þroskaðist seint.
Því varð tíminn til þess stuttur sem gerði
það að verkum að kornið náði sums staðar ekki
þroska og á einhverjum stöðum var það slegið
sem grænfóður. Í einhverjum tilvikum spillti
næturfrost í ágúst einnig kornþroska. Sumir
bændur náðu þó góðu korni fyrir norðan. Á
haustin er allra veðra von og urðu einhverjir
bændur fyrir talsverðum skakkaföllum þar sem
korn tapaðist í hvassviðri,“ segir Eiríkur.
Eðlilegt að stefna að meiri kornrækt
Í fæðuöryggisskýrslunni, sem skilað var til
stjórnvalda í febrúar á síðasta ári, kemur fram
að þótt Ísland sé á jaðarsvæði kornræktar
megi rækta hér töluvert af korni til fóðurs
og manneldis. Eðlilegt sé að stefna að því
að rækta meira til fóðurs en gert hefur verið
hingað til og æskilegt sé að hefja kynbætur
á korni til manneldis.Í nýrri stöðuskýrslu
starfshóps um eflingu kornræktar á Íslandi
er lagt til að engar skerðingar verði á
jarðræktarstyrkjum vegna kornræktar,
svo hvatar séu til staðar til að stækka
umfang ræktunar og greinin geti orðið að
undirstöðuatvinnugrein í landbúnaði. Fjallað
er um stöðuskýrsluna á blaðsíðu 8.
/smh
28
Bændablaðið óskar lesendum sínum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári. Við förum bjartsýn inn í nýtt ár og njótum útsýnisins úr nýjum höfuðstöðvum Bændasamtakanna í Borgartúni,
á meðan við hugsum með hlýhug til gömlu Bændahallarinnar. Jólablaðið að þessu sinni er stærsta tölublað Bændablaðsins frá upphafi – 112 síður. Teikning /Þorsteinn Davíðsson
Að hafa trú á
eigin sannfæringu
Hringrásarlausn fyrir
lífrænan heimilisúrgang
32
Góð úrvinnsla lykilatriði