Bændablaðið - 15.12.2022, Page 7
7Bændablaðið | Fimmtudagur 15. desember 2022
LÍF&STARF
M iklir annríkisdagar standa
nú yfir hjá sauðfjárbændum.
Allflestir haustrýja sínar
ær, og svo er fengitíðin að hefjast.
Jólabók sauðfjárbænda, Hrútaskráin,
er komin út og yfir henni er legið og
hún lesin af ástríðu. Tilhleypingar voru
á stundum býsna strembinn tími. Óskar
Sigurfinnsson í Meðalheimi á Ásum orti:
Fengitíminn fer í hönd,
flestir þessu kvíða,
hrútar slíta hlekkjabönd,
hver á öðrum ríða.
Og þótt næsta vísa Óskars hafi áður birst,
þá fer hún samt með:
Erfitt verkið á mig fær,
ekki skal þó súta
bardaga við blæsma ær
og blóðmannýga hrúta.
Á árinu 1958 orti Óskar þessa hringhendu
hughreystingu:
Horfna gleði og gamanmál
getur skeð mig dreymi,
vínið meðan vermir sál
vorar í Meðalheimi.
Á tilhugalífsárum Óskars sendi hann
tilvonandi konu sinni, Guðnýju
Þórarinsdóttur, þessa hugljúfu ástarvísu:
Þó ég heima kúri á kveldin
hvergi gleyma mun ég þér.
Læt mig dreyma ástareldinn
er þú geymir handa mér.
Benjamín Jóhannesson orti svo fagurlega:
Þó mér ói allsstaðar
eyðsla og sóun hverskonar,
til að róa taugarnar
tek ég þó í nasirnar.
Hér er ástarvísa eftir Árna Böðvarsson:
Margar hafa frá því fyrst
fórnað til mín brosi sínu,
en þú varst ein, sem eignaðist
ögn af hjartablóði mínu.
Bóndi að norðan var staddur í Reykjavík.
Sagðist hann miklu heldur kjósa að ferðast
með áætlunarbílnum heldur en með flugvél.
Þá orti Halldóra B. Björnsson:
Þórarinn á við þraut að glíma,
þekkir úrræðin tvö,
að vera hræddur í hálfan tíma
eða hristast allur í sjö.
Ósk Skarphéðinsdóttir orti þessa óskavísu:
Oft þó hafi illu kynnst,
á það hiklaust treysti,
að búi í hvers manns eðli innst
einhver góður neisti.
Ungur maður kom að máli við Pétur á
Hallgilsstöðum og hóf mál sitt á hendingu:
Gráhærður með gull í tönn ...
Svo þagnaði hann svo að Pétur lauk vísunni:
glennir ‘ann á sér trýnið.
Drjúgur er í dagsins önn,
þótt drekki ‘ann brennivínið.
Pétur var svo á fundi Sjálfstæðismanna í
Reykjavík þar sem Jón á Akri og Páll S.
Pálsson létu fjúka í kviðlingum. Pétur kvað:
Víst er engum varnað máls,
víða er eldur falinn,
Jón frá Akri og Páll S. Páls
perlum dreifa um salinn.
Að lokum yrkir svo Pétur frá Hallgilsstöðum
um eigin yrkingar:
Ef að Peli yrkir ljóð
allir fá að heyra.
Það er líkt og faðma fljóð
og fá svo ekkert meira.
Með kærum jóla- og nýársóskum,
Árni Geirhjörtur.
Umsjón:
Árni Geirhjörtur Jónsson
kotabyggð1@gmail.com
311MÆLT AF
MUNNI FRAM
Af vettvangi Bændasamtakanna:
Litið bak við tjöldin við
gerð fræðslumyndbanda
Á dögunum fóru fram upptökur á fræðslumyndböndum fyrir
verkefni hjá Bændasamtökum Íslands sem nefnist Bændageð.
Í þessum myndböndum er farið yfir helstu áhættuþætti
andlegrar heilsu fyrir bændur og aðstandendur þeirra
þar sem bændur og sérfræðingar eru til viðtals.
Verða þessi myndbönd aðgengileg fyrir félagsmenn Bændasamtaka
Íslands og verður hægt að horfa á þau á sínum eigin forsendum á þeim
tíma sem hentar viðkomandi.
Upptökurnar mörkuðu upphaf þessa mikilvæga verkefnis og verður
afraksturinn tiltækur snemma á næsta ári. /gbb
Bændablaðið mun koma út tuttugu og
þrisvar sinnum á árinu 2023.
Blaðið kemur að jafnaði út hálfs
mánaðarlega á fimmtudögum, nema þegar
frídagar og sumarlokun hliðra útgáfudögum.
Æskilegt er að hafa samband tímanlega ef
koma á auglýsingu eða aðsendri grein í
blaðið. Netfang ritstjórnar er bbl@bondi.is
en auglýsingadeildar augl@bondi.is. Efni
blaðsins birtist á vefsíðunni bbl.is milli
útgáfudaga en þar er einnig að finna PDF
útgáfu blaðsins. Þá má enn fremur nálgast
Bændablaðið á Facebook og Instagram, en
þar birtast gjarnan myndskeið sem tengjast
efni blaðsins. Útgáfudagar blaðsins árið
2023 verða eftirfarandi:
• 12. janúar
• 26. janúar
• 9. febrúar
• 23. febrúar
• 9. mars
• 23.mars
• 4. apríl (ath. þriðjudagur)
• 27. apríl
• 11. maí
• 25. maí
• 8. júní
• 22. júní
• 6. júlí
• 20. júlí
• 24. ágúst
• 7. september
• 21. september
• 5. október
• 19. október
• 2. nóvember
• 16. nóvember
• 30. nóvember
• 14. desember
Útgáfudagar Bændablaðsins 2023
Upptökurnar fóru fram í huggulegu rými í Bæjarbíói í Hafnarfirði. Kristín Linda Jónsdóttir, sálfræðingur og fyrrum bóndi, var til viðtals.
Regína Ólafsdóttir sálfræðingur fjallar um sálræna kvilla bænda út
frá faglegum forsendum.
Halla Eiríksdóttir og Regína Ólafsdóttir ræða saman um helstu
áhættuþætti andlegrar heilsu bænda.
Halla Eiríksdóttir, hjúkrunarfræðingur og
bóndi, í förðun fyrir upptökur.
Leikstjórinn Reynir Lyngdal stýrir upptökum
á fræðslumyndböndunum.
Atli og Klara í Syðri-Hofdölum taka þátt í
jafningjafræðslunni.