Bændablaðið - 15.12.2022, Page 12

Bændablaðið - 15.12.2022, Page 12
12 Bændablaðið | Fimmtudagur 15. desember 2022 FRÉTTIR Fuglaflensa: Breiðist út eins og eldur í sinu Bráðsmitandi afbrigði fuglaflensu, H5N1, breiðist hratt út um heiminn og hefur valdið dauða hundruð þúsunda villtra fugla og hundruð milljóna alifugla. Skortur á eggjum og alifuglakjöti er fyrirsjáanlegur um jólin og eftir áramót. Fugla- flensa hefur ekki greinst í alifuglum á Íslandi. Tilfelli fuglaflensu í alifuglum hafa aldrei verið fleiri á Bretlandseyjum en á árinu sem senn er á enda. Stjórnvöld á Bretlandseyjum hafa þrátt fyrir það gefið út yfirlýsingu þar sem varað er við að tilfellunum eigi enn eftir að fjölga þar sem eftir er vetrar. Um 100 milljón alifuglum lógað Það sem af er þessu ári hefur rúmlega hundrað milljón alifuglum verið lógað og fargað í heiminum vegna fuglaflensu og þar af tæpleg fjórum milljónum á Bretlandseyjum. Fyrstu vikuna í nóvember síðastliðinn voru sett lög þar sem bændum og öðrum sem stunda alifuglaeldi var gert skylt að halda fuglanna innandyra þar til annað verður tilkynnt. Á sama tíma var slakað á heilbrigðisreglum um sölu á frosnum alifuglaafurðum. Stjórnvöld á Bretlandseyjum hafa einnig látið vinna kort sem er aðgengilegt á netinu og sýnir bú þar sem fuglaflensa hefur komið upp og vaktsvæði kringum þau. Á kortinu er einnig að finna upplýsingar um býli sem eru undir sérstöku eftirliti vegna hættu á að flensan geti borist þangað. Samkvæmt kortinu er fuglaflensa algengust á alifuglabúum um mitt England og á austurströnd þess. Svipaða sögu er að segja frá meginlandi Evrópu þar sem útbreiðsla fuglaflensu hefur aldrei verið meiri en á þessu ári. Flensan hefur fundist á alifuglabúum í 37 löndum og um 48 milljón fuglum verið lógað í kjölfarið. Þrátt fyrir að fuglaflensa hafi greinst í villtum fuglum á Íslandi hefur hún ekki greinst í alifuglum hér. Skortur á kalkúni Mikil útbreiðsla flensunnar hefur orðið til þess að skortur er á kalkúni á Bretlandseyjum og víða í Evrópu þar sem kalkúnn er hefðbundinn jólamatur margra fjölskyldna. Á sama tíma hefur kalkúnakjöt hækkað talsvert í verði. Samkvæmt tölum frá Banda ríkjum Norður-Ameríku hefur fuglaflensa komið upp í öllum ríkjum álfunnar og rúmlega 50 milljón alifuglum verið lógað á þessu ári. Auk þess sem tugþúsundir villtra fugla hafa drepist vegna flensunnar. Aðgerðir í Bandaríkjunum til að halda flensunni niðri hafa leitt til þess að verð á alifuglakjöti, sérstaklega kalkún, og eggjum hefur hækkað um allt að 21%. Pelíkanar drepast í Perú Í nýlegri frétt frá Perú segir að ríflega 13 þúsund fuglar, þar af 5.500 pelíkanar, hafi fundist dauðir við strendur landsins á nokkrum vikum og er dauði þeirra rakinn til fuglaflensu. Yfirvöld í Ekvador hafa lýst því yfir að þar í landi verði að minnsta kosti 180 þúsund alifuglum lógað á næstunni til að reyna að hefta útbreiðslu flensunnar. Frá Asíu berast þær fréttir að fuglaflensa hafi undanfarið breiðst hratt út í Japan, Suður-Kóreu og löndum í Suðaustur-Asíu. Tilfellum í Ástralíu hefur einnig verið að fjölga. 868 smit í mönnum Þrátt fyrir að fuglaflensa sé enn sem komið er ekki talin alvarleg ógnun við heilsu manna hvetur Alþjóðaheilbrigðisstofnunin, WHO, til þess að farið verði með gát í kringum smitaða fugla og að þeim verði fargað svo fljótt sem hægt er. Samkvæmt tölum WHO eru 868 staðfest tilfelli um að smit í fuglum hafi borist í menn frá 2003 þar til 3. nóvember 2022. Af þeim létust 456. Viðvaranir WHO Þrátt fyrir að tiltölulega fáir menn hafi látist af völdum fuglaflensu hafa margir vísindamenn áhyggjur af því að vírusinn sem henni veldur geti stökkbreyst og valdið sýkingum í fólki. Sumir segja að um tifandi tímasprengju sé að ræða. Í dag á veiran erfitt með að berast milli manna þar sem hún smitast með snertingu. Stökkbreytist veira þannig að hún geti borist með andrúmslofti aukast líkurnar verulega á að hún berist í menn og stökkbreytist mögulega í þeim í hættulegan stofn sem gæti valdið heimsfaraldri. Sérfræðingar Alþjóðaheilbrigðis- stofnunarinnar, WHO, segja að afleiðingar þess ef veiran stökkbreytist og verði smitandi með lofti geti afleiðingarnar orðið skelfilegar og að dánartíðin á heimsvísu gæti legið á milli 5 til 150 milljón manns. Fari allt á versta veg og svart sýnustu spár ganga eftir er líklega best að lýsa mögulegu ástandi með fleygri setningu Ólafs Ragnars Grímssonar, fyrrverandi forseta: „You ain't seen nothing yet“. Alþjóðadýraheilbrigðisstofnunin telur að hröð útbreiðsla fuglaflensu í heiminum sé afleiðing alþjóðlegra viðskipta, búskaparhátta og fars villtra farfugla milli varps- og vetrarstöðva sinna. /VH STIGA ST5266 P 40 ár á Íslandi Hágæða snjóblásarar Fjölbreytt úrval Askalind 4 | Kópavogi | Sími 564 1864 | vetrarsol.is VETRARSÓL er umboðsaðili Gulltryggð gæði Vegna mikillar útbreiðslu fuglaflensu er víða hætta á skorti á kalkúni til jólanna og öðru alifuglakjöti og eggjum eftir áramót. Mynd / usu.edu Verð á eggjum hefur víða hækkað. Minnsta ríki BNA leyfir sölu Rhode Island, minnsta ríki Bandaríkja Norður-Ameríku, hefur stigið það skref, líkt og mörg önnur ríki í ríkjabandalaginu, að leyfa neyslu á kannabis í afþreyingarskyni. Sala á efninu var leyfð undir ákveðnu eftirliti frá og með 1. desember síðastliðinn. Í ríkinu eru sex sölustaðir með leyfi til að selja kannabis og fyrstu vikuna frá 1. til 7. desember nam salan 1,6 milljónum bandaríkjadala, eð rúmlega 228 milljónum íslenskra króna. Samkvæmt fulltrúa eftirlitsaðila var tæplega helmingurinn seldur til afþreyingar en ríflega helmingurinn til þeirra sem nota kannabis í lækningaskyni. Samkvæmt lögum í Rhode Island var ræktun á kannabis leyfð fyrir 21 árs og eldri í maí síðastliðinn. Um síðustu mánaðamót var sala þess leyfð að ákveðnum skilyrðum uppfylltum. Í lögunum er gert ráð fyrir að búið verði að náða þá sem dæmdir hafa verið fyrir kannabisneyslu fyrir 1. júlí 2024. /VH Landbúnaður í Evrópu: Mælaborð fæðuöryggis Framkvæmdastjórn Evrópu- sambandsins hefur hleypt af stokkunum nýju mælaborði þar sem farið er yfir stöðu fæðuöryggis í aðildarríkjunum. Þar koma ekki fram vísbendingar um að framboð af matvælum muni skerðast. Hins vegar hefur dregið úr aðgengi borgaranna að fæðu á viðráðanlegu verði. Nú verður með auðveldum hætti hægt að fylgjast með stöðu fæðuöryggis á mælaborðinu á heimasíðu framkvæmdastjórnarinnar. Þar verða dregin saman áhrif mismunandi þátta, eins og veðurfars og þurrka, flutnings- og orkukostnaðar, dýrasjúkdóma og hugsanlegra viðskiptatakmarkana. Einnig verður tekið sérstakt tillit til hversu sjálfbært sambandið er þegar kemur að hrávöru fyrir landbúnaðinn, eins og stöðu innflutnings á tilbúnum áburði. Í fréttatilkynningu frá framkvæmdastjórninni kemur fram að þökk sé sameiginlegu landbúnaðarstefnunni (CAP) sé sambandið að mestu sjálfbært þegar kemur að landbúnaðarafurðum, því sé framboði af fæðu ekki ógnað. Helsta áskorunin sé hins vegar hækkað matvælaverð innan ESB. Því mun mælaborðið sýna þróun verðbólgu á mismunandi fæðutegundum í aðildarríkjunum og skoða hversu hátt hlutfall ráðstöfunartekna borgaranna fer í matvælakaup. Með þessu er vonast til að ná fram auknu gagnsæi um stöðu matvælaöryggis og framboðs af matvælum. Því verður hægt að bregðast skjótar við ef stefnir í óefni. Upplýsingarnar verða uppfærðar með reglulegu millibili og er stefnt að frekari þróun mælaborðsins á árinu 2023 með því að auka myndræna framsetningu. /ÁL Á heimasíðu framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins verður hægt að nálgast mælaborð fæðuöryggis. Mynd / Guillaume Périgois
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.