Bændablaðið - 15.12.2022, Síða 26
26 Bændablaðið | Fimmtudagur 15. desember 2022
FRÉTTIR
Frumvarp til aukinnar samvinnu kjötafurðastöðva og sláturleyfishafa:
„Getur aukið hagræði í sláturiðnaði svo um munar“
– segja Samtök afurðastöðva í mjólkuriðnaði og telja svipaðar aðstæður ríkja nú og þegar hagrætt var í mjólkuriðnaði
Breytingar eru fyrir hugaðar
á bú vörulögum sem fela í sér
mögu leika kjöt afurðastöðva
og slátur leyfishafa til aukinnar
samvinnu. Frum varp þess efnis
liggur í Samráðsgátt stjórnvalda
og rann umsagnarfrestur um það
út á mánudaginn, en alls var níu
umsögnum skilað inn.
Eru þær í samræmi við tillögur
spretthóps matvælaráðherra sem
komu fram í júní, vegna alvarlegrar
stöðu í matvælaframleiðslu á
Íslandi. Í frumvarpinu er kveðið á
um breytingar sem eiga að stuðla að
endurskipulagningu og hagræðingu
í slátrun og kjötvinnslu og felast í
heimild afurðastöðva í sláturiðnaði
til að stofna og starfrækja saman
félag um flutning sláturgripa, slátrun,
birgðahald og frumvinnslu afurða,
að tilteknum skilyrðum uppfylltum.
Sameiginleg starfsemi í
samvinnufélagi
Gert er að skilyrði að starfsemin sé í
sérstöku félagi til að tryggja aðskilnað
frá annarri starfsemi og þannig stefnt
að því að afmarka með skýrum hætti
þá þætti sem heimild er að hafa
samstarf um. Slíkt er jafnframt til
þess fallið að auðvelda eftirlitsaðilum
að hafa eftirlit með starfseminni.
Neytendasamtökin segja í umsögn
sinni að frumvarpsdrögin séu
óboðleg og aðför að neytendum.
Samkeppni tryggi lægra verð og betra
vöruúrval. Þau gagnrýna frumvarpið
fyrir að einskorða ekki heimildina
til samvinnu við þær kjötgreinar
sem veikast standa, heldur falli öll
kjötframleiðsla og allar afurðastöðvar
undir heimildina í frumvarpinu. Telja
Neytendasamtökin að mistök hljóti að
hafa verið gerð við frumvarpsgerðina
enda geti það ekki verið markmið að
opna á svo víðtæka heimild.
Svipaðar aðstæður og voru
í mjólkuriðnaði
Samtök afurðastöðva í mjólkuriðnaði
(SAM) telja að frumvarpið geti aukið
hagræði í sláturiðnaði svo um munar.
Hins vegar þurfi að skýra ákveðin
atriði frumvarpsins betur.
Vitna þau til skýrslu Hagfræði
stofnunar Háskóla Íslands frá júní
2015 þar sem fjallað var um árangur í
hagræðingu í mjólkuriðnaði, fækkun
afurðastöðva og raunlækkun á
vinnslukostnaði mjólkurafurða
á árunum 2003 til 2013. Þar var
hagræðið af lækkun vinnslukostnaðar
metið á um þrjá milljarða króna
á verðlagi ársins 2013, sem hafi
skilað sér til bænda og neytenda.
„Ákvæði 71. gr. búvörulaga var
innleitt á grundvelli hagsmunamats
löggjafans um að rekstrarörðugleikar
í landbúnaði kölluðu á aukið svigrúm
afurðastöðva í mjólkuriðnaði til að
sameinast og semja um tiltekna
verkaskiptingu.
Að mati SAM eru svipaðar
aðstæður uppi nú varðandi
kjötafurðastöðvar,“ segir í umsögn
SAM.
Núgildandi samkeppnislög
heimila hagræðingu
Samkeppniseftirlitið leggst gegn
þeim hugmyndum sem fram koma í
frumvarpsdrögunum, um undanþágu
frá grunnreglum samkeppnislaga.
Telur það að undanþágan sem
ráðgerð er í frumvarpsdrögunum
sé umtalsvert víðtækari heldur en
drögin gefa til kynna við fyrstu sýn
og nái einnig til samrunareglna. Til
grundvallar liggi áform um verulega
samþjöppun og einhverja einokun á
landfræðilegum mörkuðum, án þess
að hagsmunir bænda, sjálfstæðra
vinnsluaðila eða neytenda séu
tryggðir.
Núgildandi samkeppnislög
heimili hagræðingu og því sé ekkert
til fyrirstöðu að ákvæði 15. greinar
um undantekningar til samstarfs
fyrirtækja og samrunareglur laganna
geti skapað grundvöll til hagræðingar
á vettvangi kjötafurðastöðva, liggi
til þess rök og hagsmunir bænda,
annarra viðskiptavina og neytenda
séu tryggðir.
Hagræðing í allri keðjunni
Bændasamtök Íslands segja í
sinni umsögn að þeirra sýn sé að
með færri og stærri einingum sem
sjá um slátrun og vinnslu afurða
raungerist stærðarhagkvæmni sem
skili sér til bænda í fleiri greiddum
krónum. Færri krónur þurfa þá að
fara í milliliði og fleiri krónur fari
til frumframleiðenda. Til að það
markmið náist, sem jafnframt skili
sér til neytenda, þá verði að eiga sér
stað hagræðing í allri keðjunni frá
bónda í búð.
„Sé gengið út frá því að verð til
neytenda sé við sársaukaþröskuld
þannig að ókleift sé að hækka
verð til frumframleiðenda frá
þeim enda virðiskeðjunnar, og
að afkoma frumframleiðenda sé
óásættanleg þar sem verð til þeirra
sé of lágt, þá verði einfaldlega að
beina sjónum að því sem fram fer
þarna á milli. Þar er um að ræða
nokkra þætti virðiskeðjunnar,
þ.e. söfnun sláturfjár, slátrun,
geymsla, frumvinnsla, fullvinnsla,
pökkun og dreifing. Samkvæmt
greiningum frá Deloitte, KPMG
og SI á rekstrarumhverfi sláturhúsa
getur samþjöppun á markaðnum
leitt af sér 0,91,9 milljarða króna
hagræðingu,“ segir í umsögn
Bændasamtaka Íslands.
„Aumkunarverður
pilsfaldakapítalismi“
Í umsögn Félags atvinnurekenda
(FA) er ítrekuð sú afstaða, sem fram
hefur komið í umsögn félagsins
um áðurnefnd frumvarpsdrög 17.
maí 2021, að það sé algjörlega
ótækt ef sérhagsmunahópar geta
með þessum hætti pantað hjá
stjórnvöldum undanþágur frá
samkeppnislögum af því að þeir
telji rekstur sumra fyrirtækja í
tilteknum greinum ekki ganga
nógu vel. Slíkt skapi afar varasamt
fordæmi og geti rutt brautina
fyrir „heldur aumkunarverðan
pilsfaldakapítalisma“.
Að mati FA er grundvallaratriði
að margvíslegir möguleikar séu
á samstarfi framleiðenda búvöru
og samstarfi eða jafnvel samruna
afurðastöðva að óbreyttum lögum,
án undanþágna frá bannákvæðum
10. og 12. gr. samkeppnislaga.
Tiltekur félagið nýlegt dæmi af
samruna kjötafurðastöðvanna
Norðlenska, Kjarnafæðis og
SAH afurða, sem rök fyrir því að
möguleikar til hagræðingar á þessum
markaði, innan ramma núgildandi
samkeppnis og búvörulöggjafar, séu
fyrir hendi. /smh
Hagaðilar hafa skilað inn umsögnum sínum í Samráðsgátt stjórnvalda um frumvarpsdrög sem heimila aukna
samvinnu kjötafurðastöðva og sláturleyfishafa. Mynd / Bbl
Fjölgar mest í Árneshreppi
Þjóðskrá hefur birt íbúafjölda
landsins eftir sveitarfélögum í
desember 2022.
Þegar horft er til hlutfallslegrar
breytingar á íbúafjölda á tímabilinu 1.
desember 2021 til 1. desember 2022
hefur íbúum Árneshrepps fjölgað
mest síðastliðið ár, eða um 22,0%,
en íbúum þar fjölgaði um níu. Á sama
tímabili fjölgaði íbúum á landinu um
3,4%. Árneshreppur er fámennasti
hreppur landsins og telur 50 íbúa.
Hlutfallslega fjölgaði íbúum
næstmest í Kjósarhreppi, 16,7%, eða
um 41. Einnig var töluverð hlutfallsleg
fjölgun í Ásahreppi, eða um 12,3% og
Bláskógabyggð, eða 10,5%. Af 64
núverandi sveitarfélögum þá fækkaði
íbúum í 9 sveitarfélögum en fjölgaði
eða stóð í stað í 55 sveitarfélögum.
Íbúum Reykjavíkurborgar
fjölgaði um 4.003 á tímabilinu frá 1.
desember 2021 til 1. desember 2022
og íbúum Kópavogsbæjar fjölgaði
á sama tímabili um 813. Íbúum
Akureyrarbæjar fjölgaði á tímabilinu
um 300 og í Reykjanesbæ hefur
fjölgað um 1.628 íbúa, eða um 8,0%.
Íbúum Seltjarnarnesbæjar fækkaði
hins vegar um 64, eða 1,4%.
Samkvæmt tölum Þjóðskrár
fjölgaði íbúum í öllum landshlutum.
Hlutfallslega mest hefur fjölgunin
verið á Suðurnesjum, eða um 6,6%
sem er fjölgun um 1.927 íbúa. Íbúum
á Suðurlandi fjölgaði um 4,3%
á tímabilinu, eða um 1.406 íbúa.
Samtals fjölgar íbúum á landinu öllu
um 11.319 frá 1. desember 2021, sem
er um 3,4%. /VH
Árneshreppur er fámennasti hreppur landsins og telur 50 íbúa. Horft yfir
Norðurfjörð að Reykjaneshyrnu. Mynd / Svanlaug Sigurðardóttir