Bændablaðið - 15.12.2022, Blaðsíða 28
28 Bændablaðið | Fimmtudagur 15. desember 2022
LÍF&STARF
Móðir Höllu, Guðmunda Davíðs
dóttir, var ein með fimm börn, þegar
Halla var nokkurra mánaða, þegar
Eiríkur Steingrímsson, faðir hennar,
lést. Eiríkur var eina barn móður
sinnar, Höllu Eiríksdóttur, sem létti
undir með ekkju sonar síns með því
að taka Höllu unga að sér nokkra
mánuði á ári.
„Ég elst því upp við það hjá
ömmu að það sé talað við mig
eins og ég sé samtíða manneskju
fædd 1898. Amma var frá Fossi
á Síðu og ég var öll sumur þar. Á
Fossi var stundaður hefðbundinn
búskapur með sauðfé og mjólkurkýr.
Þetta var eins og lítið þorp, fjórir
ömmubræður með fjölskyldur og
fjórar fjölskyldur vestan megin við
lækinn, flest allt frændfólk mitt. Þar
þreifst hin mannlega flóra eins og
hún er, með mismunandi skoðunum,
búskap og öllu sem fylgir.“
Hún líkir sumardvölunum að
Fossi við ævintýri. „Þetta var
endapunktur á veröldinni, rútan gekk
ekki lengra. Sannarlega var okkur
kennt að umgangast náttúruna af
virðingu og við máttum alls ekki fara
á ákveðna staði sem huldufólkið átti.
Bræður ömmu voru harðduglegir
bændur og miklir veðurmenn.
Alltaf var talað um veðrið út frá
skynfærunum. Það síaðist inn að
nota skynfærin til að meta hvernig
dagurinn yrði.“
Á veturna dvaldi hún frá sex ára
aldri í Gunnarsholti, þar sem móðir
hennar bjó með Páli Sveinssyni
landgræðslustjóra og tveimur yngri
bræðum Höllu. Þar segist hún
minnast þess hvernig landgræðslan
og skógræktin tókust á um fjármagn
eins og í dag. „Í minningunni var
stjúpi minn oft á ferðalögum um
landið að tala við bændur og fá þá
til liðs við sig og landgræðsluna.
Á þessum árum voru Rangárvellir
svartur sandur með grænum
túnum en nú hefur ásýnd landsins
gjörbreyst.
Áburðardreifing með flugvélum
var á þessum tíma að hefjast og
urðu síðar mjög umfangsmiklar.
Sauðfjárbúskapur var stundaður
fyrstu árin en stofninum var öllum
lógað því það þótti ekki jafnræði í
samkeppni að ríkið væri að keppa
við bændur. Ég tók þetta mjög nærri
mér og fannst heimurinn óréttlátur
á þessum aldri. Holdanautabúskapur
var verulegur og nautakjöt daglegt
fæði sem í minningunni var bara
alls ekki gott, soðið eins og hvert
annað kjöt.“
Þegar Páll lést flutti Halla með
móður og systkinum til Reykjavíkur.
Þar tók við hefðbundin skólaganga
og svo hjúkrunarnám. Hún fór þó
reglulega austur að Fossi.
„Þegar ég var farin að fullorðnast
þá sé ég hlutina öðruvísi. Hvernig
ég upplifiði þekkingu í landbúnaði
þar sem verkþekkingin og skóla
bókarþekking náðu lítið saman
meðal bænda. Þá finnst mér ég líka
skynja þetta andrúmsloft meðal
bænda, sem einkennist af vonleysi
og depurð. Sú eilífa einsemd sem þeir
búa við í vinnu sinni fór að segja til
sín. Gegnum árin þyngdi hjá sumum,
og svo mikið að einn frændi minna
tók sitt eigið líf.“ Viðburðurinn hafði
mikil áhrif á hana og hefur það verið
keppikefli Höllu undanfarið að setja
andlega heilsu á dagskrá innan
félagskerfis bænda.
Fylgir eftir hugsjónum
Halla flutti úr borginni austur
til Egilsstaða árið 1989. „Ég var
starfandi sem hjúkrunarfræðingur
og mér fannst það að vera einstæð
móðir í Reykjavík í vaktavinnu vera
eins og hvert annað hundalíf. Þannig
einn daginn sagði ég bara upp og
ákvað að flytja út á land.“
Hjúkrunarforstjórastaða á heilsu
gæslunni á Egilsstöðum varð hennar.
Fyrsta dag í starfinu átti hún að taka
við tilsögn um verkefnin en þess í
stað þurfti hún að bregðast við 40
manna rútuslysi. Hún segir það
hafa verið henni ákveðin eldskírn
og metnaður hennar fyrir bættri
heilbrigðisþjónustu í dreifbýli
skilaði sér í ýmsum breytingum
sem hún átti þátt í að koma á, s.s.
því að hjúkrunarfræðingar væru
þátttakendur í bráðaþjónustu.
Það á líka við um baráttumál
hjúkrunarfræðinga en Halla er
varaformaður stjórnar Félags
íslenskra hjúkrunarfræðinga.
„Ég hef alltaf verið viljasterk
og skoðanarík og langað að koma
hlutum í annan farveg, frekar en
að láta kyrrt liggja. Það hentar mér
ekkert voðalega vel að sitja bara í
eldhúshorni og tala um vandamál.
Miklu betra er þá að koma sér
þangað sem hægt er að breyta því.“
Leið hennar að fremsta bekk
í félagsmálum bænda er nokkuð
týpísk, þegar rökfastar konur eru
annars vegar. „Ég byrjaði að fara
á bændafundi með manninum og
þurfti náttúrlega að segja eitthvað
því ég hafði skoðanir.“
Þannig endaði hún sem
varamaður hjá Búnaðarsambandi
Austurlands, sem fléttaðist svo
áfram svo að endingu varð hún
formaður í nokkur ár.
Framhald á næstu opnu.
Hákonarstaðir á Jökuldal:
Að hafa trú á eigin sannfæringu
– Halla Eiríksdóttir spjallar um æskuna, ástina, búskapinn og hagsmunabaráttuna
Hún veit fátt skemmtilegra en að stússast með dyntóttum forystukindum
milli þess sem hún reynir að hafa jákvæð áhrif á samfélag bænda. Halla
Eiríksdóttir, hjúkrunarfræðingur og sauðfjárbóndi að Hákonarstöðum
á Jökuldal, vinnur nú ötullega að því að koma á framfæri málefni sem
stendur henni nær – andlegri heilsu bænda.
Guðrún Hulda Pálsdóttir
gudrunhulda@bondi.is
Halla býst við að þau Sigvaldi verði jafnvel síðustu sauðfjárbændurnir á Hákonarstöðum miðað við stöðuna í
sauðfjárrækt. Þau eru þó á þeirri vegferð að þróa ferðaþjónustu þar sem byggir á sauðfjárbúskap. Myndir / Aðsendar
Smalamennska í ægifögrum Jökuldal.
Halla sinnir ungviðinu að Fossi á Síðu um 1985. Hún líkir sumardvölum á Fossi
við ævintýri þar sem hún lærði að umgangast náttúruna og nota innsæið.
Mynd / Páll Stefánsson
STÁLGRIND TIL SÖLU!
495 fm2 (18x27,5m)
Nánari upplýsingar veitir
Gísli Már 842-5462 | gislia@veritas.is
<
< <
<
6 m
< <
6 m
< <
6 m
< <
3
.2
m
<
<
5.5 m
<
<
5.5 m
<
< 5.5 m
<
<
5.5 m
<
<
5.5 m
<
<
18 m
27.5 m
<
<
4
.1
m
5.
5.
5.
5.5