Bændablaðið - 15.12.2022, Side 32
32 Bændablaðið | Fimmtudagur 15. desember 2022
Í Ásahreppi í Rangárvallasýslu
er ræktunarbúið Fákshólar.
Ræktendur þar eru Helga Una
Björnsdóttir og Jakob Svavar
Sigurðsson en þau hafa undanfarin
ár verið að stimpla sig inn í hóp
okkar fremstu hrossaræktenda.
Þau Jakob og Helga Una voru
hvort með sína ræktunina áður en þau
sameinuðust undir nafni Fákshóla.
Helga Una ræktaði hross kennd við
Syðri-Reyki í Húnavatnssýslu þar
sem hún er fædd og uppalin.
„Hrossaræktin hefur alltaf
verið mér hugleikin. Það er ekkert
skemmtilegra en að para saman
hryssu og stóðhesta, sjá folaldið
fæðast og fá síðan að fylgja því eftir.
Sjá hvernig pörunin heppnaðist og
hvort afkvæmið hafi erft ákveðna
eiginleika frá foreldrum sínum,“
segir Helga Una. Fyrsta hrossið
sem hún ræktaði er Bikar frá Syðri-
Reykjum en það vakti mikla athygli
á Stóðhestaveislu árið 2013 og síðar
á keppnisbrautinni og áttu þau Helga
farsælan feril þar til hún seldi hestinn
til Noregs árið 2013.
Jakob Svavar kenndi hrossin sín
við Steinsholt í Hvalfjarðarsveit.
Jakob bjó þar lengi og starfaði við
tamningar og hrossarækt þangað til
að hann festi kaup á Fákshólum árið
2016. Frá Steinsholti hafa komið
eftirtektarverð hross og má þar
kannski fremstan nefna Hálfmána
frá Steinsholti en hann og Jakob voru
margverðlaunaðir á keppnisbrautinni
m.a. Íslandsmeistarar í samanlögðum
fjórgangsgreinum árið 2021.
„Ég man nú ekki hvenær ég
ræktaði mitt fyrsta hross. Ég eignaðist
tvær hryssur frá Ketilsstöðum 1997
en ég hafði verið að vinna þar og
hreifst af hryssunum. Það var svo í
kringum 2000 sem ég fer að halda
þeim fyrst.
Ég var með aðra þeirra sem
nemendahest á Hólum, Birnu frá
Ketilsstöðum, en hún er mamma
Hálfmána. Hin reyndist ekki nógu
vel í ræktun og ég á ekkert eftir
hana. Kannski hélt ég henni líka
undir vitlausa hesta, eins og getur
komið fyrir,“ segir Jakob en Birna
eignaðist m.a. þrjár fyrstu verðlauna-
dætur undan Skýr frá Skálakoti; þær
Sif, Töru og Tíbrá. „Við eigum því
miður bara eina hryssu útaf henni
en ég seldi allar þessar hryssur.
Við ætluðum alltaf að eiga Töru í
ræktuninni en stundum þarf maður
bara að selja. Við eigum eina hryssu
undan Töru og Blakk og það væri
mjög gaman að hún yrði nógu góð
og við gætum sett hana í ræktunina
hjá okkur,“ bætir hann við.
Rækta undan ólíkum hryssum
Jakob og Helga Una eru sammála því
að þau leitist ekki eftir einhverjum
ákveðnum stofnlínum eins og margir
ræktendur gera. Hryssurnar séu allar
úr ólíkum áttum og alls konar ættir
að baki þeim.
„Við höfum viðað að okkur
góðum hryssum héðan og þaðan en
við leggjum áherslu á að góð ætt
sé á bakvið þær. Við erum bæði
með alhliða- og klárhryssur. Allar
hryssurnar sem við erum að nota
eru mikið góðar á tölti. Engin sem
við erum að rækta undan er ekki
með gott tölt. Flestar með 9,0 eða
meira. Maður horfir líka til annarra
ræktenda og sér hvað þeir eru með
og hvað hefur verið að virka hjá
þeim. Þó að maður hafi kannski
haldið upp á einhverja hryssu og
langi að eiga út af henni þá gerist
það að afkvæmin eru ekki að gera
sig. Þá verður það bara að hafa sig
þó maður tapi því út,“ segir Jakob.
Þau Jakob og Helga héldu tíu
hryssum í sumar en þau eru vanalega
að fá eitthvað á milli sex til tíu folöld
á ári. „Við eigum einhverjar hryssur
til helminga og þá er talan svolítið
misjöfn á milli ára. Við höfum ekki
enn fengið svona stóra árganga til
tamningar en ég held að tíu sé alveg
nóg fyrir okkur. Þetta er næg vinna.
Við höfum líka alltaf verið að selja
svolítið úr hverjum árgangi,“ segir
Helga Una.
Vilja einfalda hesta
með gott geðslag og tölt
Ræktunarmarkmiðið hjá þeim er að
rækta góða hesta en hvað sé góður
hestur getur verið afstætt. Misjafnt
er hvað fólki finnst og því vilja þau
bæði meina að mikilvægt sé að halda
í fjölbreytileikann í stofninum.
„Fyrst og fremst erum við að
vonast eftir að hrossin sem við fáum
séu hestar sem nýtast og það getur
verið breiður hópur af hrossum,“
segir Jakob og Helga Una skýtur inn
í að þau vilji að hrossin séu einföld,
með gott geðslag og gott tölt.
„Við höfum verið að halda
undir ólíka hesta og er ég þeirrar
skoðunar að fjölbreytileikinn sé af
því góða. Það er kannski ekki rétt að
úthrópa einhvern hest fyrir einhvern
eiginleika sem kannski ekki öllum
hugnast. Fjölbreytileikinn er
mikilvægur og margir af bestu
einstaklingunum hafa roðið til
þegar maður blandar mjög ólík
hross saman. Stundum er maður
heppinn og fær það besta frá báðum
foreldrum,“ bætir hann við.
Að velja stóðhest fyrir hryssuna
sína getur verið vandaverk enda
mikið úrval af góðum stóðhestum á
landinu. Þegar Helga og Jakob velja
stóðhesta horfa þau í ættirnar og
velja hesta sem eru með sömu sterku
eiginleika og hryssurnar.
„Ef við erum með frábæra
tölthryssu þá viljum við að það sé
frábært tölt í stóðhestinum. Ekki
bara að horfa á að bæta hitt og bæta
þetta heldur líka velja stóðhesta sem
styrkja góðu eiginleikana,“ segir
Jakob og bætir við að síðan sé þetta
bara stórt lottó.
Jakob og Helga nota bæði alhliða
og klárhesta, þótt undanfarin ár hafi
þau kannski meira verið að horfa á
klárhestana. Þau hafa þó lítið notað
hesta sem bera CA arfblendna
arfgerð og velja klárhesta sem eru
AA arfgerð, þ.e.a.s. bera skeiðgenið.
„Við horfum mikið á arfgerðirnar
AA og CA. Við höfum ekki verið að
nota neina CA hesta og eigum enga
hryssu með þá arfgerð. Við höfum
alveg hugsað út í það en ekki látið
verða af því. Ég notaði mikið Auð frá
Lundum á sínum tíma, hann er CA
hestur, og það kom vel út hjá mér.
Mér persónulega finnst bara mörg af
þessum CA hrossum ekki alveg nógu
skemmtileg. Þetta er samt klárlega
eiginleiki sem við viljum ekki að detti
úr stofninum og ég er ekkert endilega
að segja að ég ætli aldrei að nota CA
hest. En ég held við séum heilt yfir
sammála um að fara ekki mikið í þá
línu. Mér finnst eins og maður þurfi
að vera með heppnina enn þá meira
með sér ef maður fer í CA hestana,“
segir hann og Helga Una jánkar því.
Uppeldið og úrvinnslan mikilvæg
Fjölmargir þættir spila inn í farsælt
ræktunarbú. Ekki er nóg að eiga
góðar hryssur og nota á þær væna
stóðhesta heldur þarf líka að vera með
vandað uppeldi og faglega úrvinnslu.
„Gott atlæti er mikilvægt fyrir
hrossin alla tíð,“ segir Helga Una og
Jakob bætir við:
„Ég held að það sé einn stærsti
þátturinn að það sé góð úrvinnsla
úr hrossunum. Víða eru góð hross
sem fá aldrei tækifæri og ná ekki að
sýna hvað í þeim býr. Úrvinnslan má
heldur ekki taka of mikinn tíma. Við
viljum að hross búi að eðlisgæðum.“
Jakob og Helga Una reka stóra
tamningastöð á Fákshólum en ásamt
því að vera með hross frá sér sjálfum
temja þau, þjálfa og sýna hross fyrir
aðra hesteigendur. Þau hafa í gegnum
tíðina fengið að kynnast mörgum
ólíkum hrossum, bæði stóðhestum
og hryssum, og þau þekkja því oft
stóðhestana vel sem þau nota sem
gefur þeim ákveðið forskot á aðra
ræktendur.
„Við erum heppin með það að
við fáum mikið af góðum hestum
í þjálfun og við notum mjög mikið
hesta sem við höfum sjálf þjálfað,
einfaldlega því við höfum meiri
upplýsingar um þá hesta. Það gefur
okkur, og þeim sem eru að lifa og
hrærast í hrossarækt, sýningum og
keppnum, meiri innsýn en kannski
fyrir hinn almenna leikmann,“ segir
Jakob.
Mörg spennandi hross á járnum
Það er margt spennandi á járnunum
hjá þeim Jakobi og Helga Unu í
vetur. Fram undan er Meistaradeildin
í hestaíþróttum þar sem þau keppa
fyrir lið Hjarðartúns. Næstkomandi
sumar er svo Heimsmeistaramót en
þau eiga bæði sæti í landsliði Íslands.
LÍF&STARF
Hrossaræktarbúið Fákshólar:
Góð úrvinnsla lykilatriði
– Helga Una Björnsdóttir og Jakob Svavar Sigurðsson eru hrossaræktendur og knapar í fremstu röð
Hulda Finnsdóttir
hulda@bondi.is
Helga Una Björnsdóttir og Jakob Svavar Sigurðsson festu kaup á Fákshólum í Ásahreppi árið 2016. Milli þeirra er
hryssan Hrefna sem er í miklu uppáhaldi. Mynd / HF
Vagnhöfði 7, 110 Reykjavík | Sími: 517 5000 | stalogstansar.is
stalogstansar.is
VARAHLUTIR Í
KERRUR
2012
2021
Framhald á næstu opnu.