Bændablaðið - 15.12.2022, Qupperneq 36
36 Bændablaðið | Fimmtudagur 15. desember 2022
LÍF&STARF
Matvælaframleiðsla:
Deila eldhúsi og eldmóði
Gróskan í smáframleiðslu
matvæla er mikil hér á landi. Í
Eldstæðinu við Nýbýlaveg hafa
á fjórða tug matarfrumkvöðla
og smáframleiðenda aðstöðu,
svokölluðu deilieldhúsi, til að
þróa og framleiða matvörur sínar
í fullvottuðu atvinnueldhúsi.
Eva Michelsen er upphafskona og
eigandi deilieldhússins. Hún kynntist
hugmyndinni um deilieldhús í
Bandaríkjunum, má víða finna
slíka aðstöðu. Með reynslu við að
koma á fót og reka samstarfsrými
á borð við Hús sjávarklasans og
Lífsgæðasetrið í St. Jó fannst
henni augljóst tækifæri felast í að
koma deilanlegu atvinnueldhúsi á
koppinn. Stofnkostnaður matvæla-
framleiðanda er enda gífurlegur,
þar sem framleiða þarf matvæli
í fullvottuðu atvinnueldhúsi og
bæði búnaður og geymslurými er
áhættusöm fjárfesting ef rennt er
blint í sjóinn.
„Hér þarf framleiðandinn ekki að
leggja út stórar fjárhæðir, nema hann
þurfi einhvern sértækan búnað. Hér
er aðgengi að öllum helstu tækjum og
tólum, kæli- og þurrlager, skrifstofu-
og fundaraðstöðu.
Hér eru þrjár vinnustöðvar sem
gerir það að verkum að ákveðið
samfélag hefur skapast og allir
hjálpast að. Þess utan rek ég bók-
haldsstofu og hef því getað aðstoðað
fólk á þeim vettvangi líka,“
segir Eva. Framleiðendur þurfa
því aðeins að afla sér starfsleysis,
hafi þeir áhuga á að koma
hugmynd að vöru inn á markað í
Eldstæðinu, en auk þess heldur Eva
inntökunámskeið þar sem hún fer
yfir allar reglur til að tryggja að
öllum lögum um matvælaframleiðslu
sé fylgt í hvívetna. Í dag hafa
38 matarfrumkvöðlar aðstöðu
í Eldstæðinu og telst Evu til að
um 80 framleiðendur hafi nýtt
sér aðstöðuna síðan hún opnaði í
september árið 2020. „Þetta er eins
konar útungunarvél. Sumir halda
áfram að stækka það mikið að þau
geta tryggt sér rekstrargrundvöll
á eigin spýtur. Dæmi um það eru
Ketó eldhúsið, Sjávarbúrið og
Ella Stína. Aðrir átta sig á því að
matvælaframleiðsla hentar þeim ekki
og taka þá upplýsta ákvörðun um að
bakka út.“
Sjálf er Eva með sína hliðarbúgrein
með rekstri Eldstæðisins, þar sem
hún framleiðir konfekt, handgerðar
kökur og annað góðgæti undir
merkinu Michelsen konfekt.
/ghp
Fjölskyldufyrirtækið Bökum saman útbýr vörur sínar í Eldstæðinu, en þær
innihalda hráefni í réttum hlutföllum svo hægt sé að baka með auðveldum
hætti. Til hliðar hefur fyrirtækið verið að útbúa góðgæti eftir pöntunum og
var Álfheiður Vilhjálmsdóttir í óðaönn að baka sörur.
Anna Marta hefur nýtt sér aðstöðu Eldstæðisins í tvö ár. Hún vinnur sem
þjálfari og leiðbeinandi um hollar lífsvenjur en framleiðir líka vegan, sykur- og
glútenlaus döðlumauk og pestó en var í óðaönn að útbúa súkkulaðið Dásemd.
Eva Michelsen sá augljóst tækifæri í að koma á fót deilieldhúsi að amerískri fyrirmynd og hefur haft erindi sem
erfiði því um 80 smáframleiðendur og matarfrumkvöðlar hafa nýtt sér Eldstæðið. Myndir / ghp
Dund í kófi varð að
götubitaverðlaunum
Jakob Wayne Robertson mun helga sig áströlskum bökum í vetur.
Jakob Wayne Vikingur Robertson
framleiðir ástralskar bökur í
nafni Arctic Pies á Eldstæðinu.
Þegar þremur vinum, Jakobi,
Landon Habkouk og Lee Nelson,
leiddist ládeyðan í kófinu fóru þeir
að mundast við að elda bökur frá
heimalandinu. Smjördeigsbökurnar,
sem gjarnan eru fylltar með kjöti
af einhverju tagi, eru eins konar
þjóðarréttur í Ástralíu. „Þetta er
kannski eins og pylsur eru fyrir
Íslendingum. Hins vegar getur þú
fengið bæði gæðabökur, með góðum
hráefnum á veitingastað, en líka
bensínsstaðabökur sem skyndibita.“
Þegar bökunum fór að fjölga
fram yfir næringarþörf félaganna
létu þeir vita af sér á Facebook-
grúppum Ástrala, Nýsjálendinga,
Breta og Suður-Afríkubúa á Íslandi
og eftirspurn eftir bökum varð til.
Félagarnir ákváðu því að stofna
fyrirtæki kringum bökugerðina að
gamni.
„Ég fann Eldstæðið fyrir slysni
á netinu en þá var það bara að
opna. Við vorum með þeim fyrstu
hingað inn. Hér gátum við prófað
okkur áfram og þróað bökurnar, en
við vissum í raun ekkert hvað við
værum að gera,“ segir Jakob.
Fyrirtækið var í raun rekið á
tveimur litlum samlokugrillum, sem
sérsniðin voru að bökubakstri. „Við
gátum gert átta bökur á 20 mínútum
og þannig tókum við þátt í pop-up
mörkuðum hér og þar.“
Í dag bakar Jakob hins vegar allt
deig frá grunni, ásamt því að fylla
bökurnar með ýmsu góðgæti. Þess
má t.d. geta að vegan baka frá Arctic
Pies var valin besti grænmetis-
göturéttur ársins á götubitahátíðinni
Reykjavík Street Food í sumar.
Þar hlaut fyrirtækið einnig önnur
verðlaun fyrir besta götubitann og
óhætt að segja að áströlsku bökurnar
falli í góðan jarðveg.
Viðtökurnar hafa orðið til þess
að Jakob ætlar eingöngu að einbeita
sér að framleiðslunni í vetur. Hann
segir samfélag Eldstæðisins eina af
forsendum þess að slíkt verkefni
gangi upp. „Ég væri eflaust ekki
í þessu nema ég væri með þennan
stað. Ég hef lært svo mikið, Eva er
rosalega hjálpleg, hér er öll aðstaða
sem ég þarf. Svo er mikil samvinna
meðal þeirra sem nýta aðstöðuna,
það er mjög gott að ráðfæra sig við
þau og geta aðstoðað aðra. Þetta er
eins og lítil fjölskylda.“
/ghp