Bændablaðið - 15.12.2022, Page 40
40 Bændablaðið | Fimmtudagur 15. desember 2022
Á seinni árum hefur Páll Eggert,
sonur Ólafs, komið inn í búskapinn
á Eyri og séð um korn- og repju-
ræktunina ásamt föður sínum – og
hliðarafurðir repjunnar – sem einnig
er mikilvægur liður búrekstrarins í
átt að sjálfbærni.
Gera þarf eitthvað róttækt
í kornræktarmálunum
„Jú, jú, ég fylgist nokkuð vel með
umræðunni, en nú þurfa stjórnvöld
að fara að gera eitthvað róttækt til
að lyfta greininni upp á eitthvert
almennilegt plan í stað þess að tala
endalaust um hlutina.
Nú þarf að láta verkin tala því
þessi kreppa sem við erum í núna
er ekkert að hverfa,“ segir Ólafur
og rifjar upp að ekki er langt síðan
að nokkuð blómleg kornrækt var
í sveitum undir Eyjafjöllum eftir
fjármálakreppuna 2008. „Þá fundum
við fyrir miklum áhuga bænda á að
auka verulega kornrækt sína. Síðan
lenda bændur kannski í tjóni, eitt eða
tvö ár, og þá gefast margir upp.“
Hærri beinni styrki
Ólafur telur að styrkja þurfi korn-
ræktina mun meira með beinum
hætti. „Við erum að fá helmingi
minna hér heima en til dæmis í
Danmörku og annars staðar. Þannig
að við erum langt frá því að vera
samkeppnisfær hér í framleiðslunni.
Jafnvel þótt innflutt kornvara hafi
hækkað mjög mikið í verði, sem
gerir samkeppnina fyrir innlendu
framleiðsluna aðeins hagstæðari,
þá megum við ekki gleyma því að
önnur aðföng til ræktunarinnar, eins
og sáðvara, olía og áburður, hafa
einnig hækkað mikið.
Hann segir að við þurfum að
grípa strax til aðgerða, vera viðbúin
því að eitthvað enn verra gerist
á heimsmörkuðum, því það taki
tíma að þróa hagkvæma búgrein
kornræktar. „Við búum vissulega við
góð skilyrði hérna við sjávarsíðuna
undir Eyjafjöllum, en ég held að
önnur svæði Íslands séu mörg hver
stórlega vanmetin. Það hefur sýnt sig
að korn er hægt að rækta í flestum
árum víða á landinu, ég hef ekki
áhyggjur af því. Það vantar hins vegar
mikið upp á að það séu stöðugar
markaðsforsendur fyrir íslenska
kornið, ef til dæmis uppskeran
stendur ekki undir væntingum hvað
varðar gæði. Þú situr þá uppi með
allt tjónið.“
Betri skilyrði til kornræktar
Að sögn Ólafs eru veðurfarsleg
skilyrði að verða betri fyrir korn-
ræktina. „Það vex allt betur hér á landi
núna; trjágróður og gras – bændur slá
orðið þrisvar og allt er eftir þessu.
Landið er líka til staðar, svakalega fínt
ræktarland víða á láglendi á Íslandi.
Í fjármálahruninu voru hér bara
tveggja vikna olíubirgðir á tímabili
og við áttum varla gjaldeyri til að
kaupa kjarnfóður. Þá ruku allir af
stað í kornræktina. Svipað gerðist
í Covid-faraldrinum, að farið er
að huga inn á við – og svo núna
vegna stríðsátakanna. Hugarfarið
hérna heima getur ekki sveiflast
svona með ástandi heimsmála
hverju sinni – að við séum alltaf í
hálfgerðri tilraunastarfsemi varðandi
okkar fæðuöryggis- og orkumál,“
segir Ólafur.
Tilfinningalegt tjón
Á þessari stundu í viðtalinu við Ólaf
er Páll Eggert kominn inn í samtalið
og bendir á að það sé líka stundum
þannig að tilfinningatjónið vegi
þyngra en það fjárhagslega þegar
illa gengur í kornræktinni. „Þegar
bændur fá kannski tvö leiðinleg ár í
röð, og votviðrasamt haust, þá bara
nenna menn ekki að standa í þessu
næsta ár. Sæmileg kúabú ættu alveg
að ráða við slík áföll endrum og
sinnum. Öðru máli gegnir auðvitað
um þá sem eingöngu eru í kornrækt.
Í sumum löndum tíðkast það
að kornbændum er tryggð afkoma
þó þeir lendi í áföllum, eins og í
Ástralíu til dæmis þar sem stundum
er ekki hægt að sá í tvö, þrjú ár
vegna þurrka. Það þyrfti að skoða
einhvers konar afkomutryggingu
fyrir greinina hér,“ segir Páll.
„Í Noregi hefur verið mörkuð
stefna um að þeir rækti allt sitt korn
og hveiti sjálfir og mér sýnist þeir
vera komnir vel áleiðis með það,“
bætir Ólafur við.
Kostir og gallar alls staðar
Ólafur bendir á að það séu ekki
alltaf kjöraðstæður á Þorvaldseyri
þó kornakrarnir séu vissulega vel í
sveit settir. „Eins og annars staðar
eru ókostir líka hérna hjá okkur,
hér er oft hvassviðri og talsvert
votviðrasamt – en hér vorar fyrr og
sumrin kannski lengri. Síðasta vor
var til dæmis gott, sumarið frekar
kalt en haustið svo mjög gott.
Til lengri tíma hefur það alveg
sýnt sig að þetta margborgar sig en
það hefur auðvitað tekið tíma að
byggja ræktunina upp. Við höfum
gert mistök líka og þurft að prófa
okkur áfram með ýmislegt. Til
dæmis notuðum við í byrjum bara
heimasmíðaðar þurrkunargræjur,
súrþurrkunarblásara með heitu
lofti. Um 1990 fáum við fyrstu
hefðbundnu þurrkturnana sem við
settum inn í fjóshlöðuna og svo þessa
LÍF&STARF
Stöðug og farsæl kornrækt á Þorvaldseyri í rúm 60 ár:
Eyrarbúið nær sjálfbært um
fóðurframleiðslu fyrir nautgripina
Feðgarnir Ólafur Eggertsson og Páll Eggert Ólafsson við kornþurrkstöðina
á Þorvaldseyri. Myndir / smh
Eggert Ólafsson hóf kornrækt á Þorvaldseyri undir Eyjafjöllum árið
1950 og stóð fyrir stofnun kornræktarfélags bænda á svæðinu. Bygg
hefur verið ræktað á Þorvaldseyri samfellt frá árinu 1960 og síðustu 34
árin undir stjórn Ólafs, sonar hans. Um 160 tonna uppskera fékkst af
byggi og repju þetta haustið, sem er meira en venjulega – en mikið þarf
að gerast í tíðarfari undir Eyjafjöllum til að hagga þeim fasta í búrekstri
Eyrarbúsins á Þorvaldseyri.
Sigurður Már
Harðarson
smh@bondi.is
Ólafur skoðar repjufræin, en um sex tonn voru skorin upp síðasta haust.
Páll Eggert Ólafsson dælir repjuolíunni á dráttarvélina.