Bændablaðið - 15.12.2022, Side 42
42 Bændablaðið | Fimmtudagur 15. desember 2022
LÍF&STARF
Bragi Hannibalsson, fyrrverandi
skriftvéla- og rafeindavirki, hefur
verið aðalforgöngumaðurinn á
bakvið stikurnar á hættulegasta
kaflanum á gönguleiðinni yfir
Fimmvörðuhálsinn. Með góðri
samvinnu við velunnara og
sjálfboðaliða hefur verið byggð
upp vel merkt leið sem eykur
öryggi allra sem ganga um svæðið.
Þegar gengið er frá Skógum til
norðurs í átt að Þórsmörk er mjög
mikilvægt að göngumenn rati að
Heljarkambi, sem er eina leiðin á
mjög stóru svæði þar sem fært er
niður að Básum. Þar sem oft er allra
veðra von og gjarnan lélegt skyggni
á þessum slóðum getur skapast mikil
hætta fyrir ferðalanga. Þarna voru
stikur frá gamalli tíð, en vegna
snjóþyngsla voru þær oft á kafi í
snjó langt eftir sumri.
Dóttir lenti í lífsháska
Dóttir Braga fór þessa leið um
miðjan júní 1988 ásamt tveimur
öðrum ungmennum, sem öll voru
vön útivist og rötun eftir áttavita.
Þau lögðu af stað snemma dags við
Skóga, en er þau voru komin norður
á brúnir Goðalands var veðrið orðið
afar slæmt, hífandi rok og ausandi
rigning, og tókst þeim ekki að finna
Heljarkamb þrátt fyrir mikla leit.
Síðar kom í ljós að þau höfðu komið
fram á brúnirnar sitt hvorum megin
við Heljarkamb svo litlu munaði
að þau fyndu hann. Þeim tókst að
brjótast niður eftir stórhættulegu
gljúfri (Hrunagili) niður á Krossár
aura. Þremenningarnir voru á göngu
fram undir morgun næsta dags í
slagviðri og telur Bragi að þau hafi
verið afar heppin að komast lifandi
til byggða. Þetta atvik opnaði augu
hans fyrir því hversu varasöm leiðin
um Fimmvörðuhálsinn er og að
nauðsynlegt væri að bæta stikun.
Nokkrum árum síðar varð Bragi
málkunnugur Lovísu Christiansen,
sem þá var formaður Útivistar, og
reyndi að sannfæra hana um að
láta félagið sjá um að stika alla
leiðina. Meðal þeirra var mikill
áhugi en þau sáu sér ekki fært að
fara í framkvæmdir á eigin spýtur
– og fengu því Braga til að gerast
forgöngumaður verkefnisins. Útivist
lagði því til mannskap og efni – til
hálfs á móti Braga – og var fyrsta
vinnuferðin farin í september 1995.
Ferðafélag Íslands hefur einnig lagt
til fjármagn til efniskaupa.
Frá Baldvinsskála að
Heljarkambi
Á einni helgi náðist að stika nær alla
leiðina sem nær frá Baldvinsskála að
Heljarkambi. Þetta er u.þ.b. fimm
kílómetra kafli og eru stikurnar alla
jafna með 50 metra millibili – sem
gerir nálægt 100 stykki. Þrátt fyrir
að ekki sé lengra á milli hverrar
stiku hefur Bragi verið uppi á
Fimmvörðuhálsi í það mikilli þoku
að þegar hann stóð mitt á milli
tveggja, sást hvorug.
Í grunninn eru stikurnar þær
sömu og Vegagerðin notar á
snjóþungum heiðum þar sem
járnrör eru rekin ofan í jörðina og
gulir plasthólkar festast ofan á.
Bragi hefur hins vegar ekki stungið
járnrörunum niður, heldur hannað
tvær tegundir undirstaða sem nýtast
við mismunandi aðstæður.
Önnur aðferðin felst í að hlaða
vörðu í kringum járnrörin. Til þess
að varðan sé stöðug er hún hlaðin
inn í nethólk, sem er 70 sentímetrar
í þvermál og einn metri á hæð. Hann
notar lóðanet til að gera hólkinn, en
þau eru þannig gerð að mjög auðvelt
er að þræða endana saman.
Hinar undirstöðurnar byggjast
á því að festa fjögur þykk
steypustyrktarjárn á stuttan stálhólk
sem mynda þá kross. Endunum er
haldið niðri með þungu grjóti og
stöðugleikinn aukinn með stífum
úr flatjárni. Þessi aðferð gagnast vel
til að koma fyrir stikum uppi á fönn.
Á stuttum kafla fer leiðin um bratta
klöpp – þar hefur Bragi borað fyrir
stálteinum sem stikurnar festast á.
Fjögurra metra háar undir fönn
Flestar stikurnar eru með 150
sentímetra löngu plaströri sem fest
er ofan á áðurnefnda járnhólka.
Bragi lét hins vegar sérframleiða
lengri plastpípur til að nota á
snjóþyngstu svæðunum.
Þó svo að þær stikur standi fjóra
metra upp úr jörðinni fara þær oftar
en ekki á kaf í snjó og sjást ekki
fyrst á vorin.
Til þess að gæta öryggis eru
vegstikurnar sem Vegagerðin notar
hannaðar til þess að brotna
auðveldlega á samskeytunum við
árekstur. Sá eiginleiki er óheppilegur
uppi á Fimmvörðuhálsi og því hefur
Bragi hannað nýja festingu. Í staðinn
fyrir að nota stutt sívalningslaga
stykki sem fer inn í stálrörið og
plastpípuna setur hann breiðan
plasthólk utan um samskeytin og
skorðar með hosuklemmum.
Fóru á kaf í gosinu
Bragi hefur fengið sjálfboðaliða til
að hjálpa til við viðhald á hverju
ári. Hann hefur líka betrumbætt
hönnunina með tíð og tíma til
þess að stikurnar þoli betur öll
veður. Oftar en ekki þarf að rétta
einhverjar við eða laga festingar.
Mesta tjónið varð þó þegar gaus á
Fimmvörðuhálsi og hraun fór yfir
hluta gönguleiðarinnar.
Hann stikaði nýja leið meðfram
hrauninu í samvinnu við Útivist. Sá
kafli hefur oft reynst til vandræða
þar sem leiðin er krókótt og vegna
mikillar snjósöfnunar eru stikurnar
oft á kafi langt fram eftir sumri.
Þegar gengið er að sunnan virðist
augljósasta leiðin að fara beint
yfir hraunið, en þá endar fólk oft
við bratta hraunbrún og getur þurft
talsvert klöngur til að komast niður.
Bragi hefur fundið heppilega leið
yfir hraunbreiðuna sem sveigir fram
hjá áðurnefndri ófæru og er hann að
vinna í því um þessar mundir að fá
heimild til að stika þann kafla.
Útivist:
Hugsjónamaður um öryggi á Fimmvörðuhálsi
– Hefur stikað gönguleiðina frá 1995
Bragi Hannibalsson hefur verið aðalforgöngumaðurinn á bak við stikurnar
á hættulegasta kaflanum á gönguleiðinni yfir Fimmvörðuháls. Hér er hann
ásamt Bryndísi, dóttur sinni (t.v.), og tveimur hollenskum sjálfboðaliðum,
með plaststikur á leiðinni í vinnuferð árið 2017. Mynd / Úr einkasafni
Ástvaldur Lárusson
astvaldur@bondi.is
Mjög mikilvægt er að göngumenn finni rétta leið yfir Fimmvörðuhálsinn, því
annars geta þeir lent í ógöngum. Bragi hefur af eigin hugsjón viljað tryggja
öryggi allra sem eiga leið um svæðið. Mynd / Ferðafélagið Útivist
HURÐIR
Tunguháls 10, 110 Reykjavík, sími 567 3440, vagnar@vagnar.is, vagnar.is
• Stuttur afhendingartími
• Hágæða íslensk
framleiðsla
• Val um fjölda lita í
RAL-litakerfinu
• Vindstyrktar hurðir
Bílskúrs- og iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir með gönguhurð
Bílskúrshurðir
Hurðir í trékarma
Tvískiptar hurðir
Smíðað eftir máli
Fyrsta flokks þjónusta og ráðgjöf
Í kringum 450.000 tonn af
úkraínsku korni eru flutt land-
leiðina í gegnum Pólland í hverjum
mánuði, sem er 50% aukning
samanborið við mitt þetta ár.
Úkraína er einn stærsti
framleiðandi korns og olíufræs í
heimi, en eftir innrás Rússa í byrjun
árs hefur flutningur sjóleiðina í
gegnum Svartahaf dregist mjög
saman. Reuters greinir frá. Eftir að
hafnir Úkraínu voru alfarið lokaðar
í hálft ár, var gert samkomulag
við Rússa í júlí um að heimila
skipaflutning. Rússar hafa þó ekki
virt samninginn að fullu og því hefur
sjóleiðin reglulega lokast undanfarna
mánuði. Því er unnið að því að greiða
fyrir flutningi landleiðina til að auka
öryggi til langframa ef aðgangur að
Svartahafshöfnum heldur áfram að
vera skertur. /ÁL
Aukning hefur verið á flutningi korns landleiðina frá Úkraínu.
Mynd / Marina Yalanska
Úkraínustríðið:
Flutningur í gegnum Pólland