Bændablaðið - 15.12.2022, Side 52

Bændablaðið - 15.12.2022, Side 52
52 Bændablaðið | Fimmtudagur 15. desember 2022 Búnaðardeild Sambands íslenskra samvinnufélaga sá um innflutning á Farmall dráttarvélum á þessum árum. Þær voru framleiddar í Ameríku, en í grein í Tímanum í febrúar 1946 kemur fram að örðuglega hafi gengið að afgreiða allar pantanir frá íslenskum bændum vegna verkfalla í verksmiðjunum. Þá var þegar búið að leggja inn 6-700 pantanir af Farmall hjá S.Í.S, en ekki var gert ráð fyrir að tækist að afgreiða nema 300 það árið. Á sama stað er þess getið að norska verksmiðjan sem framleiddi hina svokölluðu „Eylandsljái“ hafi lofað að afgreiða þá nógu snemma til þess að þeir kæmust til bænda fyrir slátt. Kom ný í kassanum Þorgils segir að Gunnlaugi föður hans hafi gengið nokkuð vel að fá dráttarvélina. Útibú Kaupfélags Eyfirðinga á Dalvík afgreiddi hana í viðarkassa og var kaupverðið rúmlega 6.000 krónur – sem samsvarar 608.000 krónum á gengi dagsins í dag samkvæmt verðlagsreiknivél Hagstofu Íslands. Til að setja þessa tölu í eitthvert samhengi var mánaðarkaup nokkurra sveinsstétta árið 1946 í kringum 1.800 krónur og kaupverð á nýrri Chevrolet fólksbifreið 14.500 krónur á gengi þess tíma. Sakka var einn af þremur fyrstu bæjunum í Svarfaðardal sem fengu traktor árið 1946. Þorgils segir að hinir tveir hafi verið Skáldalækur og Ytra- Hvarf. Þetta ár var ekki einungis vélvæðing í formi dráttarvéla, heldur kom líka fötumjaltakerfi og súgþurrkunarbúnaður á Sökku á svipuðum tíma. Allra fyrstu dráttarvélarnar í dalnum voru þó tvær sem Búnaðarfélag Svarfdæla hafði keypt til að nýta í jarðabótavinnu. Sú fyrri, sem yfirleitt var kölluð Surtur gamli, var af gerðinni Fordson og kom árið 1929. Hin var af gerðinni International-Harvester og var nýlega komin áður en bændur byrjuðu að fá vélar í einkaeigu. Afköst vógu upp á móti óþægindum Aðspurður segir Þorgils að mjög slítandi hafi verið að vinna á vélinni. Sætið, sem var vel mótað að sitjandanum, var á fjöðrum sem dugðu illa ef keyrt var ofan í holur, þar sem botninn á sætinu barðist niður í hart stálið fyrir neðan. „Þetta var ekki bjóðandi nokkrum mannsskrokk.“ Afköst vélarinnar vógu hins vegar upp á móti óþægindunum. Áður en Farmallinn kom voru hestar nýttir til að draga sláttuvélar og rakstravélar og flytja heyfenginn heim á bæ. „Þetta voru þáttaskil í heyskap,“ segir Þorgils, enda styttist tíminn við heyannir um 2/3 með komu dráttarvélarinnar, því á sama tíma voru keyptar snúnings- og múgavélar sem tengdar voru aftur í vélina. Greiðusláttuvél fylgdi vélinni og var hún tengd að aftan. Þorgils segir að sérstök skúffa hafi verið tengd við sláttuvélina, sem hann notaði mikið í engjaslætti. Þá féll heyið beint ofan í skúffuna og var skilið eftir þar sem yfirborðið var þurrara. „Ég notaði þessa vél við slátt alveg fram til 1959 – þá fékk ég Fordson Major.“ Dráttarvélin var með bensín- mótor og útbúin aflúrtaki að aftan og reimskífu. Hún var ekki með neinu vökvakerfi, heldur pústlyftu. Afgasið var leitt í sérstakan þrýstikút á stærð við 20 lítra mjólkurbrúsa, sem gat þá lyft kjálka sem á var fest tönn framan á vélinni. Sá ókostur fylgdi notkun pústlyftunnar að mjög dró úr afli þegar lokan var sett fyrir pústið – því voru þeir Farmallar sem komu síðar útbúnir vökvakerfi. Aðspurður segir Þorgils að lyftigetan hafi verið nálægt 200 kílóum. Þar sem tönnin var ekki mjög breið var brugðið á það ráð að festa á hana planka til þess að hægt væri að ýta görðuðu heyi saman í beðjur. Handafli var svo beitt til að moka heyinu upp á vagna. Ekki voru einungis aukin afköst með tilkomu mótordrifinnar sláttuvélar, heldur var smíðaður heyvagn á fjórum hjólum sem auðveldaði heyflutninga. Aðspurður segir Þorgils að þessar vélar hafi búið yfir mikilli dráttarhæfni, þó þær væru ekki með nema 17 hestafla bensínmótor. Heimkeyrslan að Sökku er nokkuð brött, en vélin réði ágætlega við að draga vagn sem Þorgils giskar á að hafi verið upp undir tvö tonn. Plankar til að losa úr engjum Þorgils segist aldrei hafa lent í alvarlegum skakkaföllum. Stundum kom fyrir að vélin festist þegar verið var að slá á blautum engjum. Þá var brugðið á það ráð að festa planka við annað afturhjólið sem náði að þrýsta vélinni upp úr mýrinni. Þorgils segir hins vegar að þessi aðferð hafi verið varasöm ef ekki var kunnað til verka. Einhverju sinni lenti Þorgils í því að mótorinn þyngdist og var alltaf að drepa á sér. Þá kom í ljós að gleymst hafði að fylla á kælivökvann – en það virtist ekki gera stimplunum mein. „Hún var jafn góð á eftir – það var svo gott í þessu.“ Farmallinn var í reglulegri notkun fram til 1990. Undir lokin var hún aðallega notuð til að snúa heyi með litlum heytætlum. Gunnsteinn Þorgilsson, sem hefur tekið við vörslu vélarinnar, segir að einnig hafi hún verið notuð um þetta leyti til að taka upp kartöflur með gamaldags hestaplógi. Þegar vélinni var lagt var hún gangfær og er hún varðveitt í vélaskemmu á Sökku. /ÁL „Þetta voru þáttaskil í heyskap“ – Einn af þremur fyrstu traktorunum í einkaeigu í Svarfaðardal SAGA VÉLAR Þorgils Gunnlaugsson, sem verður 91 árs í janúar, man vel eftir komu fyrsta traktorsins á Sökku í Svarfaðardal árið 1946, þá 14 ára gamall. Mynd / Aðsend Í Búfræðingnum árið 1947 var sýnd mynd af greiðusláttuvél sambærilegri þeirri sem fylgdi með Farmallnum á Sökku. Mynd / Timarit.is S.Í.S. sá um innflutning Farmall dráttarvéla á þessum árum. Eftirspurn meðal íslenskra bænda var mun meiri en Sambandið gat annað. Auglýsing úr Tímanum 1949. Mynd / Timarit.is Farmallinn var í reglulegri notkun fram á 10. áratuginn. Hennar síðustu verk voru m.a. að snúa heyi og taka upp kartöflur. Nú hefur sonur Þorgils tekið við vörslu dráttarvélarinnar og er hún geymd í vélageymslu á Sökku. Mynd / Aðsend Eftir seinni heimsstyrjöld byrjaði að koma skriður á vélvæðingu í íslenskum landbúnaði. Þorgils Gunnlaugsson man vel eftir því þegar nýr Farmall A kom á Sökku í Svarfaðardal árið 1946, þegar hann var fjórtán ára. Sú vél breytti miklu þegar kom að heyskap, en fram að því höfðu verið notaðar hestasláttuvélar og handafl.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.