Bændablaðið - 15.12.2022, Page 55
55Bændablaðið | Fimmtudagur 15. desember 2022
Furðulegur krabbakaktus
Blómstrandi krabbakaktus er ekki
síður tákn jólanna hjá mörgum en
jólastjarnan.
Kaktusinn góði er ólíkur flestum
öðrum frændum sínum að því leyti
að hann blómstrar í skammdeginu
og þolir ekki beina sól.
Kaktusinn, sem ég legg til að
verði kallaður krabbakaktus hér
eftir, flokkast í nokkur afbrigði sem
meðal annars ganga undir heitum
eins og haust-, nóvember- og
jólakaktus. Enginn skyldi þó örvænta
vegna nafnanna því munurinn á
afbrigðunum er lítill og varla nema
fyrir kaktusanörda að velta sér
upp úr slíku. Tegundin er það
sem kallast stöngulkaktus, líkist
helst krabba og er með flötum
og liðskiptum greinum, sem
minna á blöð. Blómin sem vaxa á
stöngulendunum eru fimm til átta
sentímetra löng og lúðurlaga og hægt
að fá yrki í ýmsum blómlitum, rauð,
gul, hvít, bleik, lillablá og tvílit.
Annað sem er áhugavert við
krabbakaktusa, nafnið sem ég
ætla að nota, er að þeir líkjast ekki
hefðbundnum kaktusum og þeir
blómstra þegar dag fer að stytta.
Tegundin tilheyrir ættkvísl sem
kallast Schlumbergera og inniheldur
sex til níu tegundir sem upprunnar
eru í fjalllendi á suðausturströnd
Brasilíu og fjölda manngerðra yrkja.
Í upprunalegum heimkynnum
sínum vaxa Schlumbergera-tegundir
svipað ásætu í röku loftslagi og í
skugga á trjám eða grjóti og eru með
fremur rýrt rótarkerfi.
Vegna þessa þarf að vökva krabba-
kaktusa oftar en aðra frændur hans
í kaktusaættinni. Krabbakaktusar
eru með viðkvæma húð og þola illa
beina sól og margir kannast við að
blöðin á þeim verði rauð og þorni
vegna sólbruna. Krabbakaktusar
eru nægjusamar plöntur og því ekki
nauðsynlegt að umpotta þá nema á
nokkurra ára fresti og nóg að sáldra
þunnu og fersku moldarlagi yfir
yfirborðslagið í pottunum sem þeir
standa í á vorin. Krabbakaktusar
verða fallegri eftir því sem þeir
standa lengur í sama pottinum og
á sama stað. Þeir geta líka orðið
eldgamlir og því ættargripir sé vel
um þá hugsað.
Eftir blómgun leggjast krabba-
kaktusar í eins konar hvíld og því
gott að draga úr vökvun þeirra þar
til sólin er farin að skína og fyrstu
krókusarnir farnir að skjóta upp
kollinum. /VH
Blómin sem vaxa á stöngulendunum eru fimm til átta sentímetra löng og
lúðurlaga og hægt að fá yrki í ýmsum blómlitum, rauð, gul, hvít, bleik, lillablá
og tvílit. Mynd / wikipedia.org