Bændablaðið - 15.12.2022, Blaðsíða 59
59Bændablaðið | Fimmtudagur 15. desember 2022
Bruderleikföngfjölbreytt úrval fyrir litlu bændurna
Draper
verkfæri
fjölbreytt úrval og gott verð
SLEÐImeð dráttarspólu
Redback
leðurskór
Þægilegir skór, auðvelt
að smeygja sér í og úr
Sendum um
allt land
FB Reykjavík
Korngarðar 12
570 9800
FB Verslun Selfossi
Austurvegi 64a
570 9840
FB Verslun Hvolsvelli
Dufþaksbraut 1
570 9850
www.fodur.is
fodur@fodur.is
Fyrirgæludýrinúrval af allskonar
handa bestu vinunum
*
Kuldagallarogvinnufatnaður
Gleðilega hátíð
Helluhraun 4, Hafnarfirði
sími 565 2727 & 892 7502
www.rag.is
SERES 3 kemur
vel útbúinn.
Verð kr. 5.350.000
VIÐ AUGLÝSUM
ALDREI
„VERÐ FRÁ“
Tangarhöfða 1 - 110 Reykjavík - 551-5464 - www.wendel.is - wendel@wendel.is
Gleðilega hátíð
og gæfuríkt komandi ár
með þökk fyrir viðskiptin
á árinu sem er að líða.
Starfsfólk A.Wendel ehf.
silungsvötnum, né átti það ís- eða
kæliskáp nútímans.
Vaninn var að salta, þurrka eða
kæsa þann mat sem til féll, með
það fyrir augum að geta neytt hans
sem lengst. Lítið var oft um nýmeti
en svona var nú lífið.
Herramannsmatur
Auður er einnig hrifin af hákarli
svo og signum fiski sem hún
vandist ung á og tekur Einar
Georg undir það. Siginn fiskur
er herramannsmatur segir hann
og sammælist Auði er kemur að
hversu oft kæsta skatan var borðuð
í hans ungdæmi.
Ólst Einar upp á Húsavík,
að sama skapi hrifinn af skötu
síðan hann var barn og kannast
heldur ekki við að hún hafi verið
sérstaklega borðuð við önnur
tilefni en Þorláksmessuna.
Vel kæst skata, miðlungs sterk
þykir þeim báðum best, hamsatólg
kartöflur og rúgbrauð. Vestfirskur
hnoðmör hefur verið á borðum
og ilmur hans í bland við skötuna
hefur glatt matargesti sem hafa
snætt þennan dýrindis málsverð
Auði og Einari til samlætis.
Að ná andanum er ekki allra
Minnast matargestir þess að eitt
árið var skatan svo herfilega kæst
að illa gekk að draga andann milli
bita. Þau eldri taka lítið undir það,
skatan sé alltaf ljúffeng og bendir
Auður á að þar sem hún er keypt í
tunnu sé ekkert hægt að hafa áhrif
á hversu kæst hún er.
Vel mætti borða hana oftar finnst
þeim báðum og væri gaman ef slíkt
væri í boði. Matargestir þeirra
rifja þá upp annan sið er fylgir
jólahaldinu í bland við skötuátið
þarna á bæ, en er Auður var barn
var vani að púa vindla á jólunum.
Vindlalykt í bland við aðra
gleður því viðstadda, sem hvattir
eru til að púa vindil sem liggur
í öskubakkanum. Annars reykir
enginn gestur, en unglingar sem
viðstaddir eru hafa gjarnan stolist
til að prófa að púa svosum eins og
einu sinni eða tvisvar.
Eða þrisvar. Jólalykt og venjur
eru því tengdar hverju heimilishaldi
fyrir sig og pínulítið sparilegt að
finna vindlalyktina í bland við ilm
jólagrenis. Skötu/hnoðmörsilmur
ofan á allt saman getur mögulega
valdið andarteppu en þá er víst
alltaf hægt að opna út á svalir og
fá sér hákarlsbita í eftirrétt.
Að lokum, fyrir þá sem vilja
reyna sig við hnoðmör og skötu
Hér á eftir verður örstutt kennsla
varðandi hnoðmörsgerð og hvernig
sjóða skuli skötu svo vel fari.
Verði ykkur að góðu! /SP
Þorláksmessuskata
Nú á dögum er Þorláksmessu-
skatan vanalega keypt í fötum.
Þegar matreiðsla hefst, skal taka
hvern bita fyrir sig og skola.
Láta svo suðuna koma upp á
vatninu áður en bitarnir eru settir
út í, en þá freyðir síður ofan á
fisknum – áætluð suða er um
15-20 mín.
Með skötunni, auk vestfirsku
hnoðmörsins, hamsatólgar eða
viðbits á borð við smjör, má
bjóða veislugestum upp á soðnar
kartöflur og nýtt rúgbrauð með
smjöri. Brennivínsstaup, jólaöl
og ískaldan vatnssopa.
Hnoðmörsgerð
Í ársritinu Hlín, sem Sambands-
fjelag norðlenskra kvenna gaf
fyrst út árið 1917 (og var ritstýrt í
heil 44 ár af frú Halldóru Bjarna-
dóttur,1873–1981, kennara,
skólastjóra og Kvennalistakonu)
má finna ýmsar nytsamlegar
uppskriftir til viðbótar við
almennt fræðslu- og skemmtiefni.
Til dæmis af dýrindis vestfirsku
mörfloti.
Mörflot. (Vestfirskt).
Mörinn, viku eða hálfsmánaðar
gamall, er malaður í stórri
kjötkvörn eða fleðaður í þunnar
fleður, svo hnoðaður með
höndunum þangað til komin
er velgja í hann og hann er
hættur að loða við trogið. Hann
er barinn saman eins og skaka
(tafla) og þess gætt, að ekki
sjeu í henni holur. Töflurnar eru
hafðar 5 pund á þyngd. Þegar
líður á veturinn, áður en vorhitar
byrja, er gott að láta töflurnar í
saltpækil, þeim hættir annars við
að þrána, þegar hitnar. Mjer hefur
fundist venjuleg tólg svo fitulítil,
að ekki væri vanþörf á viðbiti með
henni. Alt öðru máli er að gegna
með mörflotið, það er, að dómi
okkar Vestfirðinga, feitt og gott
viðbit. Með blautfiski er það brætt
sem venjuleg feiti, en ætli maður
að hafa það með harðfiski, er það
brætt, en látið storkna aftur og er
þá ágætt viðbit.
Ágætir menn nútímans vilja
benda á að gæta þess vel að
mörinn blotni ekki þegar hann
er tekinn af vömbinni og gott
sé að láta hann hanga miðað
við hina vanalegu sláturtíð, eða
út október. Athuga skuli fiðrun
(myglumyndun) en hún er talin
æskilegur bragðauki – varast skuli
hins vegar þráa. Fiðrun á sér stað
þegar hitastigið er mátulegt svo
einnig skuli hafa auga með því.