Bændablaðið - 15.12.2022, Page 65

Bændablaðið - 15.12.2022, Page 65
Bændablaðið | Fimmtudagur 16. desember 2021 65 Lögvíma er ný bók eftir Þorstein Úlfar Björnsson sem fjallar um löglegu vímuefnin sem margir nota, áfengi, tóbak, kaffi og sykur. Flestir hafa takmarkaða hugmynd um hvað þessi efni eru í raun og hvað þau eru að gera neytendum. Mörg okkar hafa alist upp við þessi efni í umhverfi okkar og að það sé sjálfsagt að neyta þeirra í einhverjum mæli. Hver eru áhrifin? En hvernig virka þau? Hvaða áhrif hafa þau? Eru þau slæm fyrir okkur? Hver er saga notkunar? Þessum spurningum og fleirum veltir höfundur bókarinnar fyrir sér og reynir að svara og víst er að svörin eiga eftir að koma mörgum á óvart. Þorsteinn segir að sennilega séu fáir sem gera sér grein fyrir því að þeir eru vímuefnaneytendur vegna þeirrar einföldu athafnar að þeir fá sér kaffi, te eða kóladrykk. „Sum vímuefni eru svo algeng og svo sjálfsögð að við skynjum þau ekki sem slík þar sem þau eru fyrir framan okkur allt lífið. Við ölumst upp við þau og neyslu þeirra.“ Lengi í vinnslu Að sögn Þorsteins er bókin búin að vera lengi í smíðum, vel á annan áratug, enda alltaf að koma fram ný vitneskja um viðfangsefnið sem þarf að endurnýja og skipta út. „Ég hef skrifað nokkrar aðrar bækur um svipað efni og hef getað nýtt mér eitt og annað úr þeim og efni sem ég viðaði að mér við vinnslu þeirra.“ Lögvíma er sjöunda bók höfundar um vímuefni, sögu þeirra og notkun. Þorsteinn er kvæntur, eftirlaunaþegi og á fjögur börn og tvö barnabörn. Hann stundar garðrækt og grúsk. Bókina má nálgast hjá höfundi eða lesa án endurgjalds á issuu.com. /VH Lögvíma: Áfengi, tóbak, kaffi og sykur Mat á umhverfisáhrifum Álit Skipulagsstofnunar Blöndulína 3 frá Blöndustöð til Akureyrar Skipulagsstofnun hefur gefið álit sitt um mat á umhverfisáhrifum um lagningu Blöndulínu 3 samkvæmt lögum nr. 111/2021. Álitið og umhverfismatsskýrslu Landsnets er að finna á vef stofnunarinnar www.skipulag.is.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.