Bændablaðið - 15.12.2022, Blaðsíða 65
Bændablaðið | Fimmtudagur 16. desember 2021 65
Lögvíma er ný bók eftir Þorstein
Úlfar Björnsson sem fjallar um
löglegu vímuefnin sem margir
nota, áfengi, tóbak, kaffi og sykur.
Flestir hafa takmarkaða hugmynd
um hvað þessi efni eru í raun og
hvað þau eru að gera neytendum.
Mörg okkar hafa alist upp við
þessi efni í umhverfi okkar og að
það sé sjálfsagt að neyta þeirra í
einhverjum mæli.
Hver eru áhrifin?
En hvernig virka þau? Hvaða áhrif
hafa þau? Eru þau slæm fyrir okkur?
Hver er saga notkunar? Þessum
spurningum og fleirum veltir
höfundur bókarinnar fyrir sér og
reynir að svara og víst er að svörin
eiga eftir að koma mörgum á óvart.
Þorsteinn segir að sennilega
séu fáir sem gera sér grein fyrir
því að þeir eru vímuefnaneytendur
vegna þeirrar einföldu athafnar að
þeir fá sér kaffi, te eða kóladrykk.
„Sum vímuefni eru svo algeng og
svo sjálfsögð að við skynjum þau
ekki sem slík þar sem þau eru fyrir
framan okkur allt lífið. Við ölumst
upp við þau og neyslu þeirra.“
Lengi í vinnslu
Að sögn Þorsteins er bókin búin að
vera lengi í smíðum, vel á annan
áratug, enda alltaf að koma fram
ný vitneskja um viðfangsefnið sem
þarf að endurnýja og skipta út. „Ég
hef skrifað nokkrar aðrar bækur um
svipað efni og hef getað nýtt mér
eitt og annað úr þeim og efni sem
ég viðaði að mér við vinnslu þeirra.“
Lögvíma er sjöunda bók
höfundar um vímuefni, sögu þeirra
og notkun. Þorsteinn er kvæntur,
eftirlaunaþegi og á fjögur börn og
tvö barnabörn.
Hann stundar garðrækt og grúsk.
Bókina má nálgast hjá höfundi eða
lesa án endurgjalds á issuu.com.
/VH
Lögvíma:
Áfengi, tóbak, kaffi og sykur
Mat á umhverfisáhrifum
Álit Skipulagsstofnunar
Blöndulína 3 frá Blöndustöð til Akureyrar
Skipulagsstofnun hefur gefið álit sitt um mat á umhverfisáhrifum um
lagningu Blöndulínu 3 samkvæmt lögum nr. 111/2021. Álitið og
umhverfismatsskýrslu Landsnets er að finna á vef stofnunarinnar
www.skipulag.is.