Bændablaðið - 15.12.2022, Page 71
71Bændablaðið | Fimmtudagur 15. desember 2022
Til sölu haganlega hönnuð Módúla hús
Einingahús - 57m2 til 125m2, 1 til 4 svefnherbergi
Hús sem hentar þér og er hægt að fá afhent á ýmsum byggingastigum eða fullbúið.
Sjón er sögu ríkari.
Meira um húsin á vefsíðu okkar. Þar eru ýmsar útfærslur og ýtarlegar upplýsingar.
www.mcabinline.com/is/element-house-models
Módúla hús - 8m2 til 54m2
Frábærar vinnustofur, skrifstofur, gestahús eða gistihús í ferðaþjónustu eða nánast
hvað sem er. Afhent nánast tilbúin til notkunar, bara eftir að koma þeim fyrir.
Lausn á frábæru verði. Allt um húsin á vefsíðu okkar. www.mcabinline.com/is/modular
Allar nánari upplýsingar um
Jólamarkaðinn í Heiðmörk,
Jólaskóginn á Hólmsheiði og
jólatrjáasölu á Lækjartorgi má
finna á heidmork.is
Skógræktin:
Páll ráðinn í starf
skipulagsfulltrúa
Páll Sigurðsson skógfræðingur
var nýlega ráðinn úr hópi 19
umsækjenda í stöðu skipulags
fulltrúa hjá Skógræktinni.
„Það er margt á döfinni í
skógræktarmálum núna og vonandi
tekst mér vel að halda því við og
þróa sem mér er trúað fyrir. Starfið
felst m.a. í umsögnum um skógrækt
í skipulagsmálum, leiðbeiningum
og aðstoð við sveitarfélög og aðra í
þeim málum. Nú og svo stendur fyrir
dyrum að vinna landshlutaáætlanir í
skógrækt og endurskoða gæðaviðmið
í skógrækt. Ég hlakka til að takast
á hendur krefjandi og skemmtilegt
starf,“ segir hann.
Páll er í doktorsnámi við Land-
búnaðarháskóla Íslands en hefur áður
lokið fimm ára námi í skógfræði frá
Arkangelsk-háskóla í Rússlandi
og doktorsprófi frá sama skóla.
Undanfarin misseri hefur hann
starfað sem brautarstjóri BS-náms
í skógfræði við LbhÍ og kennt bæði
við háskóla- og starfsmenntanámið.
Námið í Rússlandi
„Ég lærði skógfræðina við gamlan
og gróinn skóla norður í Arkangelsk.
Timbrið og skógurinn spila stórt
hlutverk þar, t.d. voru gangstéttirnar
í heilu hverfunum úr tréplönkum,
nokkurs konar trébrýr. Stundum
sleipar í rigningu, en mjúkt undir
fót,“ segir Páll aðspurður um námið
í Rússlandi.
Hann segir gott að tileinka sér
fagþekkinguna í landi þar sem er
löng og rík hefð fyrir nýtingu, iðnaði
og sambúð við skóg. Allt sé þetta
okkur Íslendingum kannski fjarlægt
á vissan hátt.
„Maður þarf líka að máta það
við veruleikann hér á landi. Við
erum að fást við öðruvísi aðstæður
og vandamál hér. Markmiðin og
leiðirnar að þeim eru þess vegna
aðrar. Þannig að það er nú ekki
síður margt sem maður lærir af því
að vinna í skógrækt hérna heima,
en maður lærir í skólum erlendis.“
Páll bjó í áratug í Arkangelsk
en kom heim fyrir sjö árum og býr
núna í Sandvíkurhreppi hinum forna
í Árborg, þaðan sem hann er ættaður.
„Ég hugsa með hlýju til þessa tíma
úti og alls fólksins sem ég kynntist.
En það hefur verið óskemmtilegt að
fylgjast með fréttum undanfarið tæpt
ár,“ segir Páll. /mhh
Páll Sigurðsson, nýr skipulagsfulltrúi Skógræktarinnar. Hann tekur við
starfinu um áramótin. Hann verður með skrifstofu á Selfossi.
Mynd /Linn Bergbrant.