Bændablaðið - 15.12.2022, Blaðsíða 73
73Bændablaðið | Fimmtudagur 15. desember 2022
Ísland hefur skráð inn 23 matvæli
sem teljast í útrýmingarhættu.
Ömmurnar muna hér heima
eftir þessum menningararfi, sem er
lifandi. Víða annars staðar er það
kynslóðin á undan sem varðveitti
þessa þekkingu og hún var farin
þegar menn vöknuðu til vitundar.
Ég lærði auðmýkt við að hlusta á
fyrri kynslóðir hér heima, lærði
að „glöggt er gests augað“ er líka
hárrétt orðatiltæki.“
Unnið með fullt af
ótrúlega góðu fólki
„Ég hef unnið með fullt af ótrúlega
góðu fólki sem hefur gefið mikið
af sér. Þátttaka Íslendinga í Terra
Madre hátíðinni í Tórínó og ýmsum
viðburðum er kannski ofarlega í
huga, því þar eru allir þenkjandi
um sama málefni og allar umræður
fleyta manni fram í rétta átt. Það er
ótrúlegur suðupottur með fólki sem
kemur alls staðar að úr heiminum –
maður er aldrei einn á Terra Madre.
Svo sitja eftir margir sannleiks-
molar sem ég hef safnað í gegnum
tíðina og koma oftast frá Carlo
Petrini, setningar eins og „aðgangur
að góðum og ómenguðum mat á
ekki að vera forréttindi, heldur
mannréttindi“ og „maður kýs
með buddunni“ – sem þýðir að
það er pólitískur gjörningur að
kaupa í matinn – og margt fleira
mætti nefna.“
Boðskapurinn skilar sér
til stjórnvalda
„Það er bara gleðiefni að heyra
valdamenn í stjórnsýslunni í
sífellt meira mæli tileinka sér
hugmyndafræði Slow Food fyrir
íslenska matvælaframleiðslu, jafnvel
án þess að nefna hvaðan áhrifin séu
komin. Það þýðir að við höfum gert
það sem þurfti og að skilaboðin frá
okkur hafa skilað sér á réttan stað.
Slow Food eru hagsmunasamtök já,
en í þágu allra. Ég verð að segja að
ég hef fulla trú á matvælastefnunni
sem er í mótun, og að sjálfsögðu
mun þurfa hugrekki til að gefa ekki
eftir í mikilvægustum atriðum.
Í þágu allra.“
LÍF&STARF
$
NUGENT
Gripakerra
2.250.000
T3718H
Heildarþyngd: 3500 kg
8 tonna tjakkur
Bluetooth
Solis 90 HP
Frábær vél. Lipur, eyðslugrönn
og sterk svo eitthvað sé nefnt.
Með húsi og vendigír.
NÝTT MÓDEL
Solis 50 HP
4.980.000
5.695.000
NUGENT
740.000
U2213S
Með upphækkunum og þaki:
1.640.000
NUGENT
Sturtukerra
Solis 26HP
3.490.000
4x4. Sjálfskipt með húsi:
L-4318H. 3ja öxla
www.vallarbraut.is
S: 454-0050 vallarbraut@vallarbraut.is
+vsk
+vsk
+vsk
+vsk
+vsk
+vsk
Með ámoksturtstækjum:
2.750.000 +vsk
Með ámoksturtstækjum:
5.300.000 +vsk
með ámoksturtstækjum:
6.970.000 +vsk
Beinskipt frá:
1.620.000+vsk
L-3618H. 2ja öxla
1.980.000 +vsk
Án upphækkana:
540.000 +vsk
STAGE V
STAGE V
Sláturfélag Suðurlands
Fosshálsi 1, Reykjavík - 575 6070
buvorur@ss.is | www.buvorur.is
Rúlluplastið sem bændur treysta
Fyrir frekari upplýsingar
um rúlluplast er hægt
að nota QR-kóðan hér.
Tenospin og Tenoplus rúlluplast
- Hagstætt verð til áramóta
Dominique með Carlo Petrini, stofnanda og forseta Slow Food, þegar hann kom til Íslands vorið 2017. Hann flutti
fyrirlestur í Háskóla Íslands.