Bændablaðið - 15.12.2022, Qupperneq 76
76 Bændablaðið | Fimmtudagur 15. desember 2022
Lífræn framleiðsla – nú er lag
Á undanförnum árum hefur VOR
látið til sín taka með ýmsum hætti
til að hvetja til aukinnar lífrænnar
fram leiðslu hér á landi.
Sú vinna er
liður í samstarfs-
samningi matvæla -
r á ð u n e y t i s i n s ,
Bænda sam taka
Íslands og VOR
um ráðstöfun á
því fjármagni
sem gengur af
eftir úthlutun
aðlögunarstyrks til bænda
sem skilgreindur er í
búvörusamningum, en VOR fer
með framkvæmdina.
Sem liður í þessari vinnu er
Lífrænt Ísland verkefnið, sem
var komið á legg nýlega sem
heimasíða og umgjörð um vottaða
framleiðslu sem uppruna á hér á
landi. Lífrænt Ísland.is hefur nú
fengið nýja ásýnd og er síðunni
ætlað að gefa yfirlit um íslenska
framleiðendur á einum stað, veita
fræðslu til almennings um hvað
liggur að baki vottunarmerkinu,
gæði og eiginleika lífrænna vara.
Þar er líka að finna greinar
og pistla, vísað er á erlendar
rannsóknir sem gerðar hafa verið
í lífrænum landbúnaði o.fl.-
Lífrænt nær yfir fleiri vöruflokka
Lífrænt Ísland er auk þess
samstarfsvettvangur framleiðenda
lífrænt vottaðra vara og var
skipu lagður sýningarbás á
Landbúnaðarsýningunni í október
sl. hvar framleiðendur voru með
matvörur og snyrtivörur, en flest
þeirra fyrirtækja eru rótgróin og
hafa starfað innan vottunarkerfisins
um árabil. Vottaðar afurðir með
uppruna á Íslandi ná yfir breitt
svið og fyrirfinnast í nær öllum
matvöruverslunum; ylræktað og
útiræktað grænmeti, kornafurðir og
unnar vörur sem innhalda íslenskt
korn, egg, mjólkurvörur, nautakjöt
og nú er lambakjöt með lífræna
vottun aftur komið á markað.
Einnig er löng hefð fyrir vottaðri
snyrtivöruframleiðslu hér á landi.
Mikilvægt er að hafa í huga hina víðu
skírskotun sem vottun um lífræna
framleiðslu hefur; Evrópulaufið nær
nú yfir fleiri vöruflokka en áður í
kjölfar breytinga á Evrópureglugerð
sem tóku gildi í upphafi árs. Merkið
er nú hægt að nota t.d. í fiskeldi, á
ýmsar náttúrunytjar og salt. Þessu
ber að fagna því með auknum fjölda
framleiðenda eykst sýnileiki og
slagkraftur greinarinnar.
Tækifæri innan nýrrar
matvælastefnu
Lífrænn landbúnaður og framleiðsla
á mikið erindi inn í framtíðina. Í
nýframsettri matvælastefnu sem
matvælaráðuneytið hefur kynnt og
tók til umfjöllunar á Matvælaþingi
nýverið endurspeglast metnaður fyrir
íslenskri matvælaframleiðslu í fremstu
röð. Íslensk matvæli skulu vera hrein,
holl og þróa skal framleiðslugreinar
á grundvelli sjálfbærrar nýtingar
auðlinda. Sem rauður þráður í
umræðum á Matvælaþingi komu
fram væntingar um að náð sé utan
um t.d. næringarefnin og þeim skilað
inn í hringrásina, að varðveita þurfi
jarðveginn, enda ein mikilvægasta
auðlind til framtíðar. Lífrænn
landbúnaður gerir það sannarlega,
enda hefur hann heilsu jarðvegs
sem meginmarkmið og vinnur að
sjálfbærni á öllum sviðum samkvæmt
skýrum leiðbeiningum og eftirliti
óháðs vottunaraðila.
Matvælastefna ber einnig
með sér það markmið að auka
verðmætasköpun í matvæla fram-
leiðslu. Nýsköpun og öflug vöruþróun
einkennir þennan vöruflokk erlendis
og hér á landi hafa framleiðendur
staðið fyrir mikilli nýsköpun sem
hefur verið vel tekið af neytendum.
Eygló Björk
Ólafsdóttir.
Kristján Oddsson, Ása Hlín
Gunnarsdóttir og Helgi Rafn
Gunnarsson frá Bíóbú.
Sölvanes í Skagafirði fékk afhent fyrsta vottunarskírteinið sitt á
Landbúnaðarsýningunni.
Á FAGLEGUM NÓTUM
Ýmsir vankantar við smíði nýju
norrænu næringarráðanna
Vinna við norrænu næringarráðin
(NNR), sem Norræna ráð herra
nefndin heldur utan um, hófst í
janúar árið 2019 og stefnt er á
að kynna þau hérlendis í júní á
næsta ári, þegar Ísland fer með
formennsku í nefndinni.
Undirrituð situr
í verkefnahóp
norrænna bænda-
samtaka og fleiri
aðila sem tengjast
landbúnaði, en
nýverið sendi
hópurinn bréf til
Norrænu ráðherra-
nefndarinnar, vegna
ýmissa vankanta sem þau sjá
á vinnu við nýju norrænu næringar-
ráðleggingarnar.
Norðurlöndin hafa frá árinu 1980
haft samstarf um næringarráðin
og hafa þær verið endurskoðaðar
reglulega en síðast komu þær út árið
2012. Nýju íslensku ráðleggingarnar,
sem fyrirhugað er að komi út
árið 2024, byggja á norrænu
næringarráðleggingunum, öðrum
rannsóknum á sambandi næringar og
heilsu ásamt niðurstöðum kannana
á mataræði Íslendinga, bæði barna
og fullorðinna.
Með bréfinu sem sent var til
Norrænu ráðherranefndarinnar í
nóvember lýsti verkefnahópurinn
yfir áhyggjum af þeirri vinnu og því
aðgerðarleysi sem er í framkvæmd
af starfandi nefnd um norræn
næringarráð (NNR). Dregið er í
efa hversu afdráttarlaus tilvísun er í
umhverfisleg áhrif og er hætta talin á
að norrænu næringarráðleggingarnar
muni ráðast frekar af loftslags-
markmiðum heldur en þáttum
sem snúa að næringu og heilsu.
Mikilvægt er að allir þættir
sjálfbærni séu með, ekki eingöngu
sem snúa að umhverfismálum,
heldur einnig efnahagslegri og
félagslegri sjálfbærni.
Fylgjandi róttækri
breytingu matvælakerfa
Norræna hópnum finnst skorta á
góða og vísindalega aðferðarfræði
ásamt gagnsæi við vinnu norrænu
næringarráðanna í því starfi sem
á endanum mun hafa áhrif bæði á
lýðheilsu og samfélagið almennt á
Norðurlöndunum, þá sérstaklega á
búskap og matvælaframleiðslu.
Í fyrsta lagi er samsetning
starfshópsins sem vinnur að
norrænu ráðunum áhyggjuefni.
Svo virðist sem horft hafi
verið framhjá sérfræðingum
og rannsóknarstofnunum með
hæfni og innsýn í sjálfbæra
matvælaframleiðslu á Norður-
löndunum. Þess í stað var bresk
hugveita, Chatham House, með
fulltrúana Helen Harwatt og
Tim Benton, fengin til að meta
sjálfbærnikafla ráðanna.
Þetta gerist án útboðsferils og
ekki virðist hægt að fá opinberar
upplýsingar um hvernig þessi
ákvörðun var tekin. Okkur finnst
það í hæsta máta óeðlilegt að bresk
stofnun, sem lýst er sem hugveitu,
sem líta má á sem hugmyndafræðilega
stofnun, beri meginábyrgð á því
að skapa vísindalegan grunn fyrir
ríkisvald í stað þess að vera í
samstarfi við landbúnaðarstofnanir
á Norðurlöndunum sem hafa unnið
við sjálfbæra matvælaframleiðslu
í áratugi.
Bæði Helen og Tim hafa lýst því
opinberlega að þau séu fylgjandi
róttækri breytingu á matvælakerfinu
og eru talsmenn mikillar fækkunar
á framleiddum matvælum úr
búfénaði. Róttækar breytingar á
matvælakerfinu og ráðleggingum
um mataræði munu hafa miklar
afleiðingar fyrir fæðuöryggi,
sjálfsbjargarviðleitni, nýtingu
staðbundinna auðlinda, líffræðilegan
fjölbreytileika, efnahag og atvinnu
á Norðurlöndunum.
Þar að auki eru margar rannsóknir
sem sýna fram á jákvæð áhrif
dýraframleiðslu á bæði næringu,
heilsu og sjálfbærni sem hefði mátt
vera með. Helen hefur meðal annars
lagt fram tillögur í Bretlandi þar sem
60-80% af landbúnaðarsvæði verði
fjarlægt og í stað þess komi búsvæði
fyrir villt dýr, ræktun grænmetis
og skóga. Harwatt er einnig hluti
af Animal Law, sem berst fyrir
réttindum dýra. Þar að auki er
Jelena Meinil höfundur kafla um
kjöt og kjötafurðir. Hún hefur gefið
út skýrslur þar sem fram kemur að
draga þurfi úr kjötneyslu, rautt kjöt
sé ekki sjálfbært og að matur úr
dýraríkinu sé ekki æskilegur.
Tekst ekki að viðurkenna
fæðuöryggi
Fyrsta bakgrunnsritgerð sem
gefin var út um sjálfbærni á
þessu ári í norrænu ráðunum
sleppir þeim jákvæðu áhrifum
sem búfjárframleiðsla hefur á
líffræðilegan fjölbreytileika.
Sauðfé, geitur og nautgripir eru
jórturdýr sem éta gras og jurtir.
Þegar þessir búfjárhópar fá að ganga
frjálsir um beitiland og á víðavangi
skapa þeir opið sléttlandslag með
búsvæðum fyrir þúsundir annarra
tegunda. Þess vegna gegna beitardýr
mikilvægu hlutverki í að viðhalda
líffræðilegum fjölbreytileika og
vistfræðilegri virkni beitar. Þar að
auki er ekki fjallað um jákvæð áhrif
nýsköpunar í matvælaframleiðslu
sem er sennilega ein öflugasta
leiðin í átt að loftslagshlutlausri
og sjálfbærri matvælaframleiðslu
í framtíðinni. Það sem er einnig
eftirtektarvert er að í norrænu
ráðleggingunum eru þættir sem
tengjast fæðuöryggi og mikilvægi
þess ekki viðurkennt, jafnvel þó að
fæðuöryggi sé órjúfanlegur hluti af
sjálfbærri matvælaframleiðslu. Ljóst
er að mikill svæðisbundinn munur
er á milli Norðurlandanna hvað
varðar auðlindir, loftslag, árstíðir
og framboð ljóss.
Norðurlöndin hafa takmarkaða
möguleika á grundvallarbreytingu
í matvælaframleiðslukerfinu.
Tilfinning nefndarinnar virðist
vera að auðvelt sé að nýta svæði
sem notuð eru til dýraframleiðslu til
matvælaframleiðslu úr jurtaríkinu.
Þetta er grundvallarmisskilningur
norræna matvælakerfisins, þar
sem dýr, og sérstaklega jórturdýr,
eru lykilaðilar í því að breyta
fæðuauðlindunum sem ekki henta
til manneldis, í mjög næringarríka
fæðu. Ríflegur samdráttur í
dýraframleiðslu myndi ekki aðeins
hafa versnandi áhrif á svæðisbundinn
landbúnað, heldur einnig draga úr
sjálfsbjargarviðleitni og fæðuöryggi.
Þar að auki myndi það leiða til
Erla Hjördís
Gunnarsdóttir.
Dönsku næringarráðin komu út í janúar árið 2021. Aðaláherslur dönsku ráðanna er að minnka kjötneyslu til muna, bæði á rauðu og hvítu kjöti, eða úr 500
grömmum á viku niður í 350 grömm á viku. Í Noregi er neysla á rauðu kjöti um 700 grömm á viku, í núverandi næringarráðum á Íslandi er mælt með að
takmarka neyslu á rauðu kjöti við 500 grömm á viku. Áður fyrr var mælt með allt að 500 millilítrum af neyslu mjólkurvara á dag en í nýju dönsku ráðunum
er sú tala komin í 350 millilítra. Á Íslandi er mælt með tveimur skömmtum af mjólkurvörum á dag sem samsvarar 500 millilítrum en í Noregi er sú tala 750
millilítrar. Hér á gröfunum má sjá muninn á milli Íslands, Danmerkur og Noregs í ráðleggingum á neyslu en þó skal tekið fram að ekki eru til sérstök ráð
um eggjaneyslu á Íslandi, það er magn eggja á viku, magnið hér á landi er áætlað út frá framleiðslutölum frá Hagstofunni. Í Noregi borðar hver íbúi um 4
egg á viku. Nýju dönsku ráðin mæla með neyslu á 2 eggjum á viku.