Bændablaðið - 15.12.2022, Blaðsíða 85
85Bændablaðið | Fimmtudagur 15. desember 2022
Þetta er flott í garðinn þinn!
SMH Gróðurhús ehf.
Sími: 866-9693
Facebook: Gróðurhús SMH ehf
Þriggja arma LED ljos sem skrúfast í venjuleg perustæði og
hentar vel í stærri byggingar og skemmur
80W - 8000 Lúmen. Verð kr. 8.000
LED perur fyrir Flúrlampa!
3 Stærðir - Allar perur : Verð kr. 1.000
- 60 CM LED pera 9w - 4000K hvít
- 120 CM LED pera 18w - 4000K hvít
- 150 CM LED pera 22w - 4000K hvít
Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins áformar að halda örmerkinga-
námskeið í janúar 2023. Að námskeiði loknu geta þátttakendur
sótt um leyfi til örmerkinga hrossa hjá Matvælastofnun, á grund-
velli laga um velferð dýra.
Námskeiðin verða haldin á þremur stöðum, verði þátttaka næg:
√ Hvolsvöllur, miðvikudagur 4. janúar.
√ Blönduós, fimmtudagur 12. janúar.
√ Hvanneyri, fimmtudagur 19. janúar.
Um er að ræða eins dags námskeið, bæði bóklegt og verklegt,
frá kl. 09:00 til 16:00. Námskeiðsgjald er kr 50.000,- með einni
örmerkingablokk innifalinni í verði.
Áhugasamir eru vinsamlegast beðnir um að skrá sig til þátttöku
hjá Pétri Halldórssyni fyrir föstudaginn 30. desember næst-
komandi. Netfang: petur@rml.is / S: 862-9322 eða 516-5038.
ÖRMERKINGANÁMSKEIÐ
bondi@byko.is
Stöðluð stálgrindarhús
Stærðir: 80m², 150m², 250m² og 350m²
Stálgrindin er heitgalvaniseruð og er
sérsmíðuð fyrir íslenskar aðstæður. Húsin
standast mestu snjó-og vindálagskröfur
sem gerðar eru í byggð á Íslandi og henta
því sem geymslu-og vélaskemmur í öllum
landshlutum. Húsin eru klædd 60mm PIR
yleiningum á veggi og 80/125mm yleiningum á
þök. Mögulegt er að velja liti á klæðningarnar.
Húsunum fylgja allar nauðsynlegar teikningar
til að fá byggingarleyfi ásamt teikningum
af grunni og vinnuteikningum. Einnig fylgir
keyrsluhurð, einn gluggi og tvær gönguhurðir.
Reyklosunargluggar eru á þaki sem hleypa
inn birtu.
á hagstæðu verði
T.d. getur breytileiki í næringar-
innihaldi moltu verið mjög mikill.
Breytingar á forsendum við
matvælaframleiðslu kalla á
gæðastaðla fyrir afurðir sem vinna
má úr lífrænum (úrgangs) efnum
sem allir hagsmunaaðilar geta unað
við og treyst. Ljóst er að fjölmargir
hagsmunaaðilar þurfa að koma að
þessu máli og því er æskilegt að sett
verði á víðtækt samráð sem hefur
það að markmiði að þróa gæðastaðal
fyrir lífræn áburðaefni.
Í samráðinu yrði tekið mið af
mismunandi kröfum sem fyrir
liggja og staðallinn yrði öruggur,
stöðugur og raunhæfur. Verði slíkur
gæðastaðall almennt viðurkenndur
mun það auka notkunargildi á
þessum afurðum verulega og að
sama skapi verðmæti þeirra.
Keðjusamráð
Þó að margir framleiðendur,
þjónustufyrirtæki og stjórnvöld
séu hlynnt sjálfbærri þróun er hver
aðili fyrir sig oft ekki í þeirri stöðu
að geta umbreytt framleiðsluferli í
vörukeðju. Hann getur í besta falli
haft ákveðin áhrif á „nágranna“ sína,
t.d. seljendur hráefna, flutningsaðila
og kaupendur vara. En til að gera
heilar vörukeðjur sjálfbærri þarf
meira til, enda gerist slíkt oftast
ekki sjálfkrafa. Í fylkinu Fríslandi
í Hollandi hefur verið þróað nýtt
samvinnuform til að ná fram lokun
mismunandi efnahringrása.
Í fjölmörgum efnis- og
vörukeðjum í Hollandi eru
nú starfrækt svokölluð keðjusamráð,
sem má líkja við „klasar“
á viðskiptasviði (clusters).
Þátttakendur eru fulltrúar sex
hagsmunasviða sem tilgreina má í
vörukeðju (sjá mynd). Þessir aðilar
vinna saman í samráðskeðju við að
lágmarka efnis- og orkunotkun við
framleiðslu, dreifingu, pökkun,
flutning, geymslu og sölu á vörum
sínum. Markmiðið hverju sinni er að
vinna saman við að umbreyta þeim
hluta keðjunnar sem viðkomandi
aðilar ráða yfir og ná fram meiri
sjálfbærni en var fyrir.
Úrgangur frá einum aðila
verður að hráefni annars og við
það sparast ekki einungis verðmæt
og oft óendurnýjanleg efni heldur
einnig gríðarlegt magn af orku.
Samráðskeðjur í Fríslandi, Hollandi
eru starfræktar í eftirfarandi efnis-
og vörukeðjum: steypu, matvælum,
fatnaði, (umbúða)plasti, málningu,
þakdúkum úr biki, lífrænum
úrgangi o.fl. Hvert keðjusamráð
samanstendur af fulltrúum
sex hagsmunasviða, sem eru:
Framboð, Eftirspurn, Endurnýting,
Umbreyting, Stjórnvöld og Þekking.
Þátttakendur í samráðskeðju fyrir
lífrænan úrgang hafa það hlutverk
að greina hvaða vandamál eru í raun
mest áberandi er varða meðhöndlun
og vinnslu á lífrænum úrgangi.
Þeir eiga jafnframt að koma
með tillögur að hvernig leysa megi
vandamál og hvaða mögulegar
aðgerðir séu fyrir hendi. Síðan eru
þeir spurðir hvað hver og einn gæti
fyrir sitt leyti lagt að mörkum til að
vinna að lausnum. Þannig byggist
upp heildarmynd um hagsmuni
mismunandi aðila og gagnkvæmur
skilningur myndast á afstöðu hvers
og eins. Samhliða fæst yfirsýn yfir
möguleika allra, hvaða takmarkanir
og / eða hindranir eru til staðar og
hvað þurfi til að markmiðum verði
náð. Þar sem allir hagsmunaaðilar
eiga fulltrúa í keðjusamráðinu þarf
ekki að bíða eftir viðbrögðum aðila
sem ekki taka þátt.
Með þessum hætti myndast
fljótt jákvætt andrúmsloft meðal
þátttakendanna því strax verður
ljóst að hagsmunum hvers og eins
er best borgið með samvinnu, enda
þarf samstarf til að ná árangri.
Ef vel tekst til geta allir þátt-
takendur í endurskipulagðri
framleiðslukeðju grætt á samstarfinu
með það að markmiði að loka
hringrás sem sparar vinnu, efni
og orku og á endanum fjármagn.
Þessar nýju keðjur geta verið
fjárhagslega sjálfbærar, oft reknar
án þess að til komi styrkir þar sem
allir þátttakendur í samráðskeðju fá
greitt fyrir sitt (auka)vinnuframlag
með hagræðingu. Þátttakendur
sjá að þeir ná meiri árangri með
samvinnu en ef þeir stæðu fyrir utan
samráðskeðjuna.
Með keðjusamráði aukast líkur
á árangri og er það í raun öllum –
og þar með samfélaginu í heild
– til hagsbóta.
Cornelis Aart Meijles og
Sigurður Torfi Sigurðsson,
ráðunautar hjá RML.
Hagsmunasvið í samráðskeðju.
á bbl.is og líka á Facebook