Bændablaðið - 15.12.2022, Side 89

Bændablaðið - 15.12.2022, Side 89
89Bændablaðið | Fimmtudagur 15. desember 2022 BÚMINJASAFNIÐ Búminjasafnið Lindabæ, Skagafirði óskar gestum, velunnurum og styrktaraðilum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári. Þ ökkum heimsóknir og gjafir á árinu. Kveðja, Sigmar og Helga MSZ-RW er besta loft í loft varmadælan okkar. Hentar vel í nánast allar tegundir húsa t.d.: • Alrými einbýlishúsa • Sumarbústaði 60+ fm • Geymslur Kynningartilboð á MSZ-RW35 Varmadælu, innifalið er: • Góð þjónusta • Veggfesting • Mótorpúði • Flott skjólhus fyrir útieiningu Nánari upplýsingar á nýrri heimasíðu okkar: AÐEINS 333.333 ISK m/vsk Verð: 7.993 kr. Vattfóðruð skyrta J5157 Þunn skyrta J5138 Verð: 6.815 kr. Við leggjum áherslu á góða þjónustu við landsbyggðina. Frábærar skyrtur frá Jobman! Vefverslun: Khvinnufot.is Durability at work since 1975 Jólagjöfin í ár! Öll hjólin eru með beinni innspýtingu, rafmagnstýri, spili, dráttarkrók, handahlífum, háu og lágu drifi með læsingu. Vökvabremsum, álfelgum og eru tveggja manna traktorsskráð. Verð er með Vsk. Gleðileg jól og farsælt komandi ár. CFMOTO fjórhjólin fást hjá okkur CFMOTO 520 CFMOTO 1000CFMOTO 450 Nítró - Urðarhvarfi 4 - 557 4848 Nánari upplýsingar á nitro.is NÝTT ÚTLIT Kr. 1.459.000,- Án vsk. Kr. 1.176.613,- Kr. 1.599.000,- Án vsk. Kr. 1.289.516,- Kr. 2.690.000,- Án vsk. Kr. 2.169.355,- Í síðasta tölublaði Bændablaðsins skrifar hæstvirtur matvæla- ráðherra grein sem ber yfirskriftina „Bjartsýni í sauðfjárrækt“. Orð eru til alls fyrst og segja má að það sé góð byrjun hjá ráðherra landbúnaðarmála að vera bjartsýn á framtíð stórrar atvinnugreinar sem undir hana heyra. Atvinnugreinar sem hefur átt stóran þátt í að fæða og klæða landann frá landnámi og fram á okkar tíma. Atvinnugreinar sem að miklu leyti hefur verið og er enn byggðafestan í dreifðum byggðum Íslands. Að því sögðu er vert að benda hæstvirtum ráðherra á að staða sauðfjárbænda lagast ekki ef greinin er afskipt af hálfu ráðuneytisins, ef ekkert er gert, ef hausnum er stungið í sandinn í þeirri von að vandinn hverfi. Staða sauðfjárbænda lagast heldur ekki ef þeir sem eru betur settir verða skornir niður til að lagfæra stöðu hinna. Það helgast af því að þeir sem betur standa eru þrátt fyrir það í slæmri stöðu. Slík aðgerð væri ef til vill á pari við að taka af launum láglaunamanneskju og færa það annarri slíkri sem er einum launataxta neðar. Slíkt er ekki lausn heldur skrautlegar umbúðir um tómlegt innihald. Gjafmildi í orði Ráðherrann bendir á að hún hafi hlutast til um að 700 milljónir hafi verið greiddar til bænda úr ríkissjóði vegna hækkunar áburðarverðs síðastliðið vor. Ekki er ástæða til að vanþakka þann gjörning, en ef réttlátar hefði verið að verki staðið hefði upphæðin kannski nýst betur þeim sem henni var ætlað í orði kveðnu. Dæmi er um að af um 100% hækkun áburðarverðs á búi hafi þannig fengist um 8% vegna þessarar góðvildar ráðherra. Ef upphæðin hefði eingöngu verið greidd til þeirra sem keyptu áburð þetta vorið og þá í samræmi við keypt magn hefði hlutfallið hugsanlega verið hagfelldara þeim sem fengu stærsta skellinn þegar verð tilbúins áburðar tvöfaldaðist á skömmum tíma. Þá má benda hér á að fjármunir sem dreift var eftir aðkomu svonefnds „spretthóps“ ráðherra voru minni en það sem fram kom hér að ofan, allavega á þeim bæ sem um er rætt. Leikreglur stjórnvalda Í umræddum skrifum ráðherra bendir hún á að afkoma bænda sé háð fleirum en stjórnvöldum. Það er ánægjulegt að um það sé vitneskja í ráðuneytinu, en þá er líka rétt að skoða hvernig aðkoma stjórnvalda hefur á margan hátt stjórnað getu íslenskra bænda til að reka bú sín. Beinn stuðningur yfirvalda við greinina er nefnilega langt í frá það eina sem hefur áhrif á afkomuna. Þannig má ekki gleyma því að Alþingi og ríkisstjórn setja leikreglur í landbúnaði líkt og í öðrum geirum íslensks mannlífs. Íslensk stjórnvöld ákveða hversu mikið er flutt inn til landsins af landbúnaðarafurðum með tollasamningum við önnur ríki. Þannig er búið að stórauka innflutning undanfarin ár sem hefur haft bein áhrif á íslenska framleiðslu og verð til bænda. Samkeppni íslenskra fjölskyldubúa er og verður aldrei samkeppnishæf í krónum og aurum við erlend risastór verksmiðjubú. Í því ljósi er það í raun ákvörðun stjórnvalda hvort íslenskur landbúnaður lifir eða deyr. Íslensk yfirvöld setja sam- keppnis reglur í landinu. Þessar reglur og stofnanir sem um þær fjalla hafa valdið því að lítil sem engin samkeppni er í matvöruverslun hér á landi. Viðskiptablokkir sem ráða markaðnum alfarið og sjá um innflutning, heildverslun og smásölu matvæla á Íslandi eru á ábyrgð yfirvalda. Þeirra hagur er að kaupa vörur á eins lágu verði og mögulegt er og selja þær með eins miklum hagnaði og hægt er til hagsbóta fyrir eigendur. Þannig greiðir almenningur fyrir vörur sem hafa farið í gegnum nokkur fyrirtæki sem öll hafa bætt sinni álagningu ofan á, en eignarhald á keðjunni frá innflutningi til neytenda er oft í höndum tengdra eða ef til vill í einhverjum tilfellum sömu aðila. Þegar þessar stóru verslunar- blokkir svo semja um kaup vara frá íslensku afurðastöðvunum er aðstöðu- og stærðarmunur milli aðila svo mikill að litlar íslenskar afurðastöðvar mega sín lítils í samningaviðræðum um verð. Þannig hafa ákvarðanir íslenskra stjórnvalda um að leyfa of mikinn innflutning landbúnaðarafurða ásamt því að leyfa mjög þjappað eignarhald í innflutnings-/, matvinnslu-/, heildsölu- og smásöluverslun matvæla risastór og bein áhrif á rekstrarhæfi íslensks landbúnaðar. Við bætist svo vangeta íslenskra tollayfirvalda við að fylgjast með innflutningi og framfylgja reglum þar um, en í því sambandi má vísa til misræmis milli talna Evrópusambandsins um útflutning landbúnaðarafurða til Íslands annars vegar og hins vegar talna íslensku Hag- stofunnar um innflutning sömu landbúnaðarafurða frá ESB, en þar á milli er himinn og haf þar sem stór hluti útflutnings frá ESB er ekki skráður sem innflutningur hér á landi. Stuðningur við íslenskan almenning Ráðherra verður tíðrætt í grein sinni um stuðning almennings við sauðfjárrækt. Það er leitt að ráðherra landbúnaðarmála virðist ekki gera sér grein fyrir tilgangi stuðnings við landbúnað, en það vita allir sem vilja að tilgangurinn er að lækka verð matvara til almennings. Það hefur um leið þau áhrif að framleiðsla matvæla stendur betur undir kostnaði og tryggir að framleidd séu matvæli í landinu með því öryggi sem fylgir. Þó skal ráðherra bent á að frumframleiðsla matvæla er hér á landi lítils virt þegar kemur að útdeilingu virðisauka af framleiðslu, vinnslu, dreifingu og sölu þeirra. Þar eru Íslendingar eftirbátar margra annarra þjóða. Lifað á loftinu einu saman Það sem hæstvirtur matvælaráðherra vísar ítrekað í sem stuðning við bændur er í raun og sann stuðningur við innlenda framleiðslu matvæla, við fæðuöryggi, matvælaöryggi og um leið við byggð í landinu í víðri merkingu. Ef ráðherra ætlar að breyta stuðningi við framleiðslu matvæla í stuðning við að framfylgja svonefndri loftslagsstefnu stjórnvalda þar sem ýmsum vafasömum full- yrðingum, draumórum og að því er virðist dulspeki ótilgreindrar loftslagskirkju er fylgt, er um grundvallar stefnubreytingu að ræða. Rétt væri að leggja svo afdrifaríka stefnubreytingu fyrir Alþingi Íslendinga til umræðu og ákvörðunartöku. Slíkur við snúningur er tæpast svo léttvægur að ein manneskja geti ráðið þar um þrátt fyrir að gegna virðulegu starfi hæstvirts matvælaráðherra. Högni Elfar Gylfason, varaþingmaður Miðflokksins í Norðvesturkjördæmi. Högni Elfar Gylfason. Umbúðir án innihalds
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.