Bændablaðið - 15.12.2022, Qupperneq 89
89Bændablaðið | Fimmtudagur 15. desember 2022
BÚMINJASAFNIÐ
Búminjasafnið Lindabæ, Skagafirði óskar
gestum, velunnurum og styrktaraðilum
gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári.
Þ ökkum heimsóknir og gjafir á árinu.
Kveðja, Sigmar og Helga
MSZ-RW er besta loft í
loft varmadælan okkar.
Hentar vel í nánast allar
tegundir húsa t.d.:
• Alrými einbýlishúsa
• Sumarbústaði 60+ fm
• Geymslur
Kynningartilboð á
MSZ-RW35 Varmadælu,
innifalið er:
• Góð þjónusta
• Veggfesting
• Mótorpúði
• Flott skjólhus fyrir útieiningu
Nánari upplýsingar á
nýrri heimasíðu okkar:
AÐEINS
333.333 ISK m/vsk
Verð:
7.993 kr.
Vattfóðruð skyrta
J5157
Þunn skyrta
J5138
Verð:
6.815 kr.
Við leggjum áherslu á góða
þjónustu við landsbyggðina.
Frábærar skyrtur
frá Jobman!
Vefverslun:
Khvinnufot.is
Durability at work since 1975
Jólagjöfin í ár!
Öll hjólin eru með beinni innspýtingu, rafmagnstýri, spili, dráttarkrók, handahlífum, háu og lágu
drifi með læsingu. Vökvabremsum, álfelgum og eru tveggja manna traktorsskráð. Verð er með Vsk.
Gleðileg jól og farsælt komandi ár.
CFMOTO fjórhjólin fást hjá okkur
CFMOTO 520 CFMOTO 1000CFMOTO 450
Nítró - Urðarhvarfi 4 - 557 4848
Nánari upplýsingar á nitro.is
NÝTT
ÚTLIT
Kr. 1.459.000,-
Án vsk. Kr. 1.176.613,-
Kr. 1.599.000,-
Án vsk. Kr. 1.289.516,-
Kr. 2.690.000,-
Án vsk. Kr. 2.169.355,-
Í síðasta tölublaði Bændablaðsins
skrifar hæstvirtur matvæla-
ráðherra grein sem ber yfirskriftina
„Bjartsýni í sauðfjárrækt“.
Orð eru til alls
fyrst og segja má
að það sé góð
byrjun hjá ráðherra
landbúnaðarmála
að vera bjartsýn
á framtíð stórrar
atvinnugreinar sem
undir hana heyra.
Atvinnugreinar sem
hefur átt stóran þátt í að fæða og
klæða landann frá landnámi og fram
á okkar tíma.
Atvinnugreinar sem að miklu
leyti hefur verið og er enn
byggðafestan í dreifðum byggðum
Íslands. Að því sögðu er vert að
benda hæstvirtum ráðherra á að
staða sauðfjárbænda lagast ekki
ef greinin er afskipt af hálfu
ráðuneytisins, ef ekkert er gert,
ef hausnum er stungið í sandinn í
þeirri von að vandinn hverfi.
Staða sauðfjárbænda lagast
heldur ekki ef þeir sem eru betur
settir verða skornir niður til að
lagfæra stöðu hinna. Það helgast
af því að þeir sem betur standa eru
þrátt fyrir það í slæmri stöðu. Slík
aðgerð væri ef til vill á pari við að
taka af launum láglaunamanneskju
og færa það annarri slíkri sem er
einum launataxta neðar. Slíkt
er ekki lausn heldur skrautlegar
umbúðir um tómlegt innihald.
Gjafmildi í orði
Ráðherrann bendir á að hún hafi
hlutast til um að 700 milljónir
hafi verið greiddar til bænda
úr ríkissjóði vegna hækkunar
áburðarverðs síðastliðið vor.
Ekki er ástæða til að vanþakka
þann gjörning, en ef réttlátar
hefði verið að verki staðið hefði
upphæðin kannski nýst betur
þeim sem henni var ætlað í orði
kveðnu. Dæmi er um að af um
100% hækkun áburðarverðs á búi
hafi þannig fengist um 8% vegna
þessarar góðvildar ráðherra.
Ef upphæðin hefði eingöngu
verið greidd til þeirra sem keyptu
áburð þetta vorið og þá í samræmi
við keypt magn hefði hlutfallið
hugsanlega verið hagfelldara þeim
sem fengu stærsta skellinn þegar
verð tilbúins áburðar tvöfaldaðist
á skömmum tíma. Þá má benda hér
á að fjármunir sem dreift var eftir
aðkomu svonefnds „spretthóps“
ráðherra voru minni en það sem
fram kom hér að ofan, allavega á
þeim bæ sem um er rætt.
Leikreglur stjórnvalda
Í umræddum skrifum ráðherra
bendir hún á að afkoma bænda sé
háð fleirum en stjórnvöldum. Það er
ánægjulegt að um það sé vitneskja
í ráðuneytinu, en þá er líka rétt að
skoða hvernig aðkoma stjórnvalda
hefur á margan hátt stjórnað getu
íslenskra bænda til að reka bú sín.
Beinn stuðningur yfirvalda við
greinina er nefnilega langt í frá það
eina sem hefur áhrif á afkomuna.
Þannig má ekki gleyma því að
Alþingi og ríkisstjórn setja leikreglur
í landbúnaði líkt og í öðrum geirum
íslensks mannlífs.
Íslensk stjórnvöld ákveða
hversu mikið er flutt inn til
landsins af landbúnaðarafurðum
með tollasamningum við önnur
ríki. Þannig er búið að stórauka
innflutning undanfarin ár sem
hefur haft bein áhrif á íslenska
framleiðslu og verð til bænda.
Samkeppni íslenskra fjölskyldubúa
er og verður aldrei samkeppnishæf í
krónum og aurum við erlend risastór
verksmiðjubú. Í því ljósi er það í
raun ákvörðun stjórnvalda hvort
íslenskur landbúnaður lifir eða deyr.
Íslensk yfirvöld setja sam-
keppnis reglur í landinu. Þessar
reglur og stofnanir sem um þær fjalla
hafa valdið því að lítil sem engin
samkeppni er í matvöruverslun
hér á landi. Viðskiptablokkir sem
ráða markaðnum alfarið og sjá
um innflutning, heildverslun og
smásölu matvæla á Íslandi eru á
ábyrgð yfirvalda. Þeirra hagur er
að kaupa vörur á eins lágu verði
og mögulegt er og selja þær með
eins miklum hagnaði og hægt er
til hagsbóta fyrir eigendur. Þannig
greiðir almenningur fyrir vörur
sem hafa farið í gegnum nokkur
fyrirtæki sem öll hafa bætt sinni
álagningu ofan á, en eignarhald
á keðjunni frá innflutningi til
neytenda er oft í höndum tengdra
eða ef til vill í einhverjum tilfellum
sömu aðila.
Þegar þessar stóru verslunar-
blokkir svo semja um kaup vara
frá íslensku afurðastöðvunum er
aðstöðu- og stærðarmunur milli
aðila svo mikill að litlar íslenskar
afurðastöðvar mega sín lítils í
samningaviðræðum um verð.
Þannig hafa ákvarðanir íslenskra
stjórnvalda um að leyfa of mikinn
innflutning landbúnaðarafurða
ásamt því að leyfa mjög þjappað
eignarhald í innflutnings-/,
matvinnslu-/, heildsölu- og
smásöluverslun matvæla risastór
og bein áhrif á rekstrarhæfi
íslensks landbúnaðar. Við bætist
svo vangeta íslenskra tollayfirvalda
við að fylgjast með innflutningi
og framfylgja reglum þar um, en í
því sambandi má vísa til misræmis
milli talna Evrópusambandsins
um útflutning landbúnaðarafurða
til Íslands annars vegar og
hins vegar talna íslensku Hag-
stofunnar um innflutning sömu
landbúnaðarafurða frá ESB, en
þar á milli er himinn og haf þar
sem stór hluti útflutnings frá ESB
er ekki skráður sem innflutningur
hér á landi.
Stuðningur við íslenskan
almenning
Ráðherra verður tíðrætt í grein
sinni um stuðning almennings við
sauðfjárrækt. Það er leitt að ráðherra
landbúnaðarmála virðist ekki gera
sér grein fyrir tilgangi stuðnings við
landbúnað, en það vita allir sem vilja
að tilgangurinn er að lækka verð
matvara til almennings.
Það hefur um leið þau áhrif
að framleiðsla matvæla stendur
betur undir kostnaði og tryggir að
framleidd séu matvæli í landinu
með því öryggi sem fylgir. Þó skal
ráðherra bent á að frumframleiðsla
matvæla er hér á landi lítils virt þegar
kemur að útdeilingu virðisauka af
framleiðslu, vinnslu, dreifingu og
sölu þeirra. Þar eru Íslendingar
eftirbátar margra annarra þjóða.
Lifað á loftinu einu saman
Það sem hæstvirtur matvælaráðherra
vísar ítrekað í sem stuðning við
bændur er í raun og sann stuðningur
við innlenda framleiðslu matvæla,
við fæðuöryggi, matvælaöryggi og
um leið við byggð í landinu í víðri
merkingu.
Ef ráðherra ætlar að breyta
stuðningi við framleiðslu matvæla í
stuðning við að framfylgja svonefndri
loftslagsstefnu stjórnvalda þar
sem ýmsum vafasömum full-
yrðingum, draumórum og að því
er virðist dulspeki ótilgreindrar
loftslagskirkju er fylgt, er um
grundvallar stefnubreytingu að
ræða. Rétt væri að leggja svo
afdrifaríka stefnubreytingu fyrir
Alþingi Íslendinga til umræðu og
ákvörðunartöku.
Slíkur við snúningur er tæpast
svo léttvægur að ein manneskja
geti ráðið þar um þrátt fyrir að
gegna virðulegu starfi hæstvirts
matvælaráðherra.
Högni Elfar Gylfason,
varaþingmaður Miðflokksins í
Norðvesturkjördæmi.
Högni Elfar
Gylfason.
Umbúðir án innihalds