Bændablaðið - 15.12.2022, Qupperneq 106
106 Bændablaðið | Fimmtudagur 15. desember 2022
Þriðja föstudag hvers desember-
mánaðar ár hvert klæðast margir
bráðskemmtilegum og miður
fögrum jólapeysum, sér og öðrum
til mismikillar gleði.
Ekkert lát virðist vera á hug-
myndum þeirra er hanna slíkar
peysur og má því sjá einstaklinga
í þeim oft prjónuðu voðaverkum á
virðulegum skrifstofum, á bæjarrölti
eða á samkundum af einhverju
tagi. Unnendur tísku jafnt sem
uppátektarsamur almenningur
eru þarna til jafns og blygðast
sín ekkert fyrir að klæðast sem
mestum ófögnuði.
Jólapeysan svokölluð, hóf feril
sinn sem tískuflík í kringum miðja
síðustu öld en þökk sé síbreytilegum
tískustraumum hefur hún – eins og
hinn ýmsi fatnaður sem áður þótti
viðunandi, eða jafnvel smart – ekki
alltaf haldið þeim titli.
Segir sagan að peysan hafi
upphaflega verið sett á markað í
Bandaríkjunum undir nafninu Jingle
Bell sweater. Var þá um að ræða
aðeins smekklegri peysur en þær
er tröllríða nú öllu, bæði er viðkom
litavali og skreytingum – en áttu
þó það sameiginlegt að minna á
vetrartímann og jólahátíðina. Form
hreindýra, jólatrjáa, skíðaiðkenda
auk einstaka snjókarls þóttu vinsæl
– mun látlausari en sú dýrð sem fram
undan var.
Níundi áratugurinn
Tíska níunda áratugarins er hins
vegar af mörgum talin uppspretta
hinnar svokölluðu ljótupeysu,
ef svo má að orði komast, en í
sjónvarpsþáttum þess tíma mátti
sjá úrval þeirra. Notaleg ímynd
peysuklædda heimilisföðurins var í
hámæli, en þó leið ekki á löngu þar
til almenningi ofbauð peysutískan
og hófu gárungarnir upp raust sína.
Jólapeysur níunda áratugarins fóru
þar ekki varhluta af enda gjarnan
ofhlaðnar og áberandi.
Margir (þá helst þeir er búsettir
voru í Bandaríkjunum) voru þó afar
hrifnir af þessari stemningspeysu
og drifu alla fjölskylduna í
samstæða gleði. Jólakvikmyndir
bíóhúsa sýndu hamingjusamar
fjölskyldur í múnderingunni og
máttu atvinnuljósmyndarar hafa
sig alla við er kom að jólamynda-
tökum fjölskyldna í samstæðu
dressi enda toppaði slík eign allt,
mikið stolt og gleði sem hægt var
að planta á arinhilluna.
Eftir því sem árin liðu fór
útlit svokallaðrar jólapeysu hratt
halloka. Fólk sem enn hélt í þann
sið að klæðast slíkum peysum varð
aðhlátursefni og nokkur lægð varð
á vinsældum hennar.
Upprisa hinnar ljótu
Í upphafi 21. aldarinnar var hins vegar
haldin hátíð „Ljótu jólapeysunnar“
í Vancouverborg í Kanada.
Tilefnið var söfnun fyrir krabba-
meinsmeðferð og tókst svo vel
til að bæði hófu menn þann sið
að klæðast sem herfilegustum
jólapeysum er fyrirfundust en einnig
hófu aðrir að halda daginn sem
allra hátíðlegastan. Fjáraflanir
urðu vinsælar og til að mynda lét
fyrirtæki Microsoft hanna fyrir sig
afar ljóta jólalega peysu og seldi
gestum sínum er sóttu viðburðinn,
„Ljóta jólapeysan – söfnun fyrir
háskólagöngu afburðanemenda.“
Var þá sú upphæð sem saman
safnaðist nýtt í þágu nemenda sem
stóðu sig vel, en sáu ekki fram á
frekari skólagöngu vegna fjárskorts.
Frá því snemma á 20. áratugnum
hefur því ljóta jólapeysan hlotið
uppreisn æru og notið vafans á
viðburðum eins og fjáröflunum,
í vinnustaðapartíum og jafnvel
jólaboðum heimahúsa.
Að klæðast ljótri jólapeysu
þykir mörgum mikil skemmtan og
verður víst að láta það fylgja hér
með að árið 2010 tóku einhverjir
tískurisanna það verkefni að sér að
hanna slíka hátíðarlínu peysa.
Má þar nefna bæði Givenchy
og Dolce&Gabbana sem slógu
hreinlega í gegn með sínum
útgáfum ljótu jólapeysunnar.
Nú, eins og lesendur ættu að
hafa glöggvað sig á, er akkúrat
þriðji föstudagur mánaðarins á
morgun, 16. desember – eða dagur
peysunnar margumræddu.
Það er því ekki seinna vænna en
að dressa sig upp vegna þess tilefnis
og fara hnarreist út í daginn. /SP
UMHVERFISMÁL – TÍSKA
FUGLINN: GLÓBRYSTINGUR
Glóbrystingur er algengur um alla Evrópu. Hann heldur sig oft í kringum híbýli manna, sækir sérstaklega í garða þar sem hann er mjög lunkinn að finna sér æti. Hann er fyrst og fremst skordýraæta en á veturna
sækir hann einnig í ber, ávexti og fræ. Glóbrystingar hafa ekki sest að hérna á Íslandi en þeir eru algengir vetrargestir um allt land. Hér halda þeir gjarnan til í görðum þar sem fuglum er reglulega gefið að borða,
þar fá þeir einnig skjól og standa ágætlega af sér íslenskt veðurfar. Víða í Evrópu fylgja þeim miklar sögur og hjátrú. Margar þessar sögur eiga uppruna sinn í goðafræðum, keltneskum hefðum eða ýmsum
trúarbrögðum. Mjög algengt er að finna teikningar eða myndir af glóbrystingi á póstkortum, frímerkjum, myndskreyttu leirtaui, servéttum, hvers kyns ílátum og ekki síst jólaskreytingum. Sennilega er ein helsta
hjátrúin sú að hann sé boðberi látinna ættingja eða ástvina og að sjá glóbrysting tákni að andi þeirra sem maður hefur misst sé nálægt. Þegar póstmenn hinnar bresku konunglegu póstþjónustu klæddust
rauðum einkennisbúningum á Viktoríutímabilinu fengu þeir viðurnefnið Robin sem er enska heitið á glóbrystingi. Þetta varð til þess að á svipstundu urðu glóbrystingar algeng myndskreyting á umslögum,
póstkortum, frímerkjum og póstkössum þar sem þeir jafnvel héldu á umslögum líkt og póstmennirnir gerðu. Þessi hefð og hjátrú lifir enn þá góðu lífi í dag. Mynd og texti / Óskar Andri Víðisson
Sextándi desember:
Dagur ljótu jólapeysunnar
Útgáfa Microsoft fyrirtækisins af ljótri
jólapeysu. Vann þessi útfærsla hjörtu
margra, enda var fjáröflunin við sölu
hennar í þágu afburðanemenda sem
höfðu ekki efni á frekari skólagöngu.
Dolce&Gabbana slógu allsvakalega
í gegn með þessari jólapeysu, enda
ein söluhæsta flík síns tíma. Hefur
fyrirtækið reyndar ekkert haldið aftur
af sér er kemur að jólapeysum og
má finna nokkrar mismunandi undir
þeirra merkjum. Hvernig sem það
leggst nú í fólk.
Jólapeysutíska í kringum árið 1950.
Dæmi um afar ósmekklega jóla-
peysu. Eina þá verstu mætti ætla.