Veiðimaðurinn - 01.09.1963, Qupperneq 21
hverju? — Rotaranum. Nei, það ógeðs-
lega áhald skyldi hann ekki fá að nota á
minn fallega lax!
Eg spratt á fætur og hrópaði: „Nei,
slepptu honum!“ Hann leit upp og vissi
ekki hvaðan á sig stóð veðrið. „Hvað!
Þetta er fallegasti lax, sem ég hef séð“.
En þá varð honum litið í augu mín og
fór að reyna að telja mér hughvarf: „Við
látum stoppa hann og setjum hann í
mjög fallegan kassa. Þannig geturðu átt
hann alla ævi.“
„Slepptu honum!“ endurtók ég,
ósveigjanleg.
Eg kenndi dálítið í brjósti um hann,
þegar hann rölti með háfinn að ánni. En
eitt er ég viss um: Síðasta blakið, sem
laxinn gerði með sporðinum áður en
liann hvarf úr augsýn til frelsisins, var
kveðja — til mín.
V. M. þýddi.
Aths.
Eg spurði kunningja minn, veiðimann,
sem las hjá mér söguna, hvernig hann
hefði brugðist við undir þessum kring-
umstæðum. Hann kvaðst aldrei mundu
Jiafa fengist til að sleppa laxinum, en
sennilega hefði hún þá hent honum út í
sjálf — jafnvel þótt hann liefði verið
búinn að rota hann — nema hann hefði
beitt aflsmunar. Og svo bætti hann við:
„Eg skal segja þér hvað ég hefði gert við
þennan kvenmann." — En það verður
aldrei birt í Veiðimanninum. —
V. M.
STANGAVEIÐARFÆRI.
Höfum að jafnaði fyrirliggjandi alian útbúnað,
sem til stangaveiða þarf.
Margir verOflokkar: Allt frá hinu allra vandaðasta,
svo sem mörgum gerðum af veiðistöngum úr hin-
um heimskunna „Conoion Live Fiber", frönsku
Mitchell og ensku Young hjólunum víðfrægu, og allt
ofan i mjög ódýran sænskan, þýzkan og japanskan
vciðiútbúnað, fyrir unglinga, byrjendur eða sem
vara-„græjur".
Mikið úrval af íslenzkum og erlendum spónum,
flugum, spóna- og fluguboxum, veiðilínum, veiði-
töskum o.fl. o.fl. — góð vara á hagstæðu verði. —
Bæði fáanlegt í sölu- og gjafapakkningum.
Heildsala:
Smásala:
Sportvörugerðin Halldór Erlendsson
Mávahlíð 41. — Sími 18382.
Veidimaðurinn
11