Veiðimaðurinn - 01.09.1967, Qupperneq 7

Veiðimaðurinn - 01.09.1967, Qupperneq 7
SVFR VEIÐIMAÐURINN nr..,. SEPT. MÁLGAGN STANGAVEIÐIMANNA Á ÍSLANDI 1967 Ritstjóri: Viglundur Möller, ; Útgefandi: Stangaveiðifélag Reykjavikur. Ægissiðu 92, Reykjavik. dfgr. Bergstaðastrccti 12B, Reykjavik. Simi 19525. Simi 15755. Prentað í Ingólfsprenti. Lsktœktin O0 tftza/ntídin. SUMARIÐ sem nú er senn að kveðja, verður ekki lofað í annálum fyrir hlý- indi og árgœzku. Það hefur verið kalt og rysjótt, einkum á Norðurlandi, og afrakstur jarðarinnar eftir því. Verst er ef sú skoðun er á traustum rökum reist, að breytingar til batnaðar á tíðarfarinu sé ekki að vænta ncestu áratugina, held- ur muni þvert á móti fara kólnandi það sem eftir er aldarinnar. Þessi spá kvað vera frá veðurfræðingum komin, og vœri nú óskandi að þeim skjátlaðist. Ekki hafa auðlindir hafsins verið eins gjöfular og undanfarin ár, nema á lax. Sildin hefur að nokkru leyti brugðizt, þótt enn sé von um að hún geti bætt ráð sitt. Geri hún það ekki, verður það mikið þjóðhagslegt áfall, ofan á lélega vetrarvertíð og mikið verðfall á útflutn- ingsafurðunum. En ekki skal farið nán- ar út i þá sálma hér, þvi að lengri hug- leiðingar gætu leitt til þess, að einhver þœttist finna af þeim jiólitískan keirn, þvi að þótt undarlegt megi virðast sýn- ist það fara eftir stjórnmálaskoðunum manna, hvaða áhrif þeir telja að stór- lækkaðar þjóðartekjur þurfti að hafa á afkomu þjóðarbúsins. Um hitt ætti varla að geta verið ágreiningur, að afkoma íslendinga er enn sem fyrr háð sveiflum i tíðarfari, fiskigöngum og verðlagi á erlendum markaði, sem við fáum engu um ráðið. Vegna þess hve atvinnuveg- irnir eru einhæfir geta þessar sveiflur orðið þjóðinni æði þungar i skauti þeg- ar illa árar, og þvi er það skoðun margra, að nauðsynlegt sé að renna fleiri stoð- um undir atvinnulifið, auka fjölbreytni framleiðslugreinanna, svo að alltaf sé á eitthvað að treysta, þótt annað bregðist. Eitt af þvi sem margir hafa trú á og tengja miklar framtiðarvonir við, er aukin fiskrœkt í ám og vötnum. Þeir bjartsýnustu telja að þar megi skapa at- Veiðimaðurinn 1

x

Veiðimaðurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.