Veiðimaðurinn - 01.09.1967, Blaðsíða 42

Veiðimaðurinn - 01.09.1967, Blaðsíða 42
0,80x0,6 m, eða samtals rúmlega 57 m2 eldisflötur, en auk þess tvær steyptar hringþrær 4,5 m í þvermáþeða tæplega 16 m2 að flatarmáli hvor. Eldisrýmið í þess- um hluta eldisstöðvarinnar er því sem næst 89 m2. Vatn til eldisins er nú leitt um 3" leiðslu frá 6" stofnæð eldisstöðvarinnar og dreift í eldiskassana um vatnsskipti- stokk úr tré. Eldiskassar af þessari gerð þarfnast mikillar nákvæmni í allri umhirðu, og fóðrun seiðanna verður að stunda með sérstakri umhyggju. Sumareldi í þessum kössum hefur gengið eftir atvikum vel, en fyrning á seiðum hefur verið um 40—60%. Sumaralin seiði náðu ekki þeim þroska sem æskilegt var, til að halda eldinu áfram vetrarlangt við árvatnshita. Við þær aðstæður, sem voru í eldisstöðinni á þessum árum, var eina ráðið að stytta klaktímann með því að klekja hrogn- um út við 7—8° c hita og hefja eldi um miðjan apríl. Til að ná þessari aðstöðu voru gerðar tilraunir að klekja út hrogn- um í eldisstöðinni við 7—8° vatnshita. — Tilraunirnar voru gerðar við mjög frumstæðar og erfiðar aðstæður, og það er ekki sársaukalaust að lesa skýrslu um fiskræktina við Elliðaár frá þessum ár- um. Tilraunaklakið veturinn 1953—’54 hafði lánast svo vel, að ástæða var til að halda tilraunum áfram. Vorið 1954 fengust nokkur þúsund seiði úr tilrauna- klakinu og fóðrun seiðanna liófst um miðjan apríl, en í september höfðu seið- in náð um 6 cm meðallengd. Árangurinn af þessari tilraun var það góður, að ástæða var til þess að undir- búa frekari aðstæður til að ala seiði upp í göngustærð, en til þess þurfti eldis- tjarnir, sem hentuðu vetrareldi. Fyrsti áfangi í þeirri viðleitni, að skapa aðstöðu til vetrareldis, var að sumarið 1955 var steypt eldisþró af Washington- gerð á árbakkanum við Neðri Móhyl. Þróin er 25 X 8 m> eða 200 m2. Veturinn 1955—56 var gerð tilraun með vetrareldi í Washington-þrónni og eldisvatnið iljað með blöndun á heitu og köldu vatni, en þessi aðferð á upphitun eldisvatnsins reyndist ekki örugg og urðu verulegar sveiflur á vatnshitanum, sem voru skaðlegar fyrir seiðin. í maí 1956 voru seiðin í Washington- þrónni talin og vigtuð. Þá kom í Ijós að fyrningin í vetrareldi var 18,2%, en seiðin höfðu þyngst úr 8,2 kg upp í 37,3 kg, og að 25—30% seiðanna höfðu náð göngustærð, en á meirihluta hinna vant- aði aðeins herzlumuninn. Þar sem eftirspurn eftir sumaröldum seiðum fór sífelt vaxandi og árangurinn af fyrsta vetrareldi gaf góðar vonir um að vetrareldi í opnum þróm mundi tak- ast, var ráðist í að stækka eldisrýmið fyrir vetrareldi með því að grafa út eldis- tjörn og seiðaskurði í mýrlenda spildu norðan við Washingtonþróna. Jarðþró- in er 25^6 m, kantarnir hlaðnir úr sniddu en botninn þakinn með fíngerðri möl. Norðan við jarðþróna og samsíða henni voru grafnir út 7 seiðaskurðir 25 X 1 m. Bakkar þeirra eru einnig hlaðnir úr sniddu og botninn klæddur með fíngerðri möl, á sama hátt og jarðþróin. Til að anna vatnsþörf eldistjarna og seiðaskurða var lögð 6" leiðsla frá þrýsti- 36 Veiðimacurinn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Veiðimaðurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.