Veiðimaðurinn - 01.09.1967, Síða 9

Veiðimaðurinn - 01.09.1967, Síða 9
verða talinn einn af brautryðjendunum d því sviði. Um 1920 varð Þórður Fln- ventsson, bóndi i Svartárkoti í Bárðar- dal, ráðunautur um laxaklak. Hefur þvi áhugi þá þegar verið orðinn nokkur um fiskrœkt, þótt flest skilyrði skorti til þess að koma henni í framkvæmd svo nokkru nœmi. Það er fyrst þegar Raf- magnsveita Reykfavikur byrjar klak- rekstur við Elliðaárnar, að nokkur skrið- ur kemst á málið. Er sú saga rakin í hinni fróðlegu grein Steingríms Jóns- sonar, fyrrv. rafmagnsstjóra, hér á eftir. Það var mikill fengur fyrir Veiðimann- inn, og jafnframt heiður, að Steingrímur skyldi vilja leggja á sig þá fyrirhöfn, að rita þessa grein. Hann er málunurn kunnugastur, og var sjálfur lífið og sálin i öllum þessum frarnkvæmdum um ára- tuga skeið. Nafn hans mun ávallt verða meðal þeirra, sem hœst ber í sögu fisk- ræktarmálanna á Islandi. Undantekningarlitið mun reynslan vera sú, bæði hér á landi og annars staðar, að allir, sem fara að vinna að fiskrækt, fá fljótt fyrir henni brennandi áhuga, jafnvel þeir, sem í upphafi ráð- ast til slikra starfa aðeins i atvinnuskyni, án nokkurrar sérstakrar löngunar eða undirbúnings til þess að sinna verkefn- inu. Menn fá strax löngun til að vernda þessar örsmáu lifverur, sem seiðin eru, og hlúa sem bezt að þeim; og þeir hafa ánægju af að fylgjast með vexti þeirra og þroska unz sleppt er af þeim hend- inni og náttúran sjálf tekur við þeim. En hún sýnir þeim enga miskunn, held- ur sóar þeim svo gegndarlaust, að á móti hverjum laxi, sem kemur aftur upp i ána, hafa jafnvel þúsund farizt. Þetta eru gífurleg afföll, og þvi hefur á síðari árum verið horfið að því ráði i æ rík- ara mæli, að ala seiðin lengur og gera þau þannig betur fær um að bregðast við þeim hœttum sem biða þeirra, bæði i ánni og hafinu. Forstumenn Stangaveiðifélags Reykja- víkur hafa ávallt haft góðan skilning á gildi fiskræktar og nauðsyn þess að bæta áinum upp þann skatt, sem af þeim er tekinn með veiðinni. Arangurinn er lika sá, að nokkuð jafnar og árvissar göngur eru í öllum ám, sem félagið hefur lengi haft umráð yfir. Kemur þar og til hóf- legt veiðiálag. Og nú, þegar félagið tek- ur við starfrækslu eldisstöðvarinnar við Elliðaár, batnar enn aðstaða þess til ræktunarstarfsins og möguleikar á þvi, að taka ný og fisklaus veiðivötn til ræktunar. Einnig mun verða unnt að hjálpa öðruni, þegar eldisstöðin hefur náð fullum afköstum. Fiskræktin felur í sér ótal möguleika og viðfangsefni, sem bæði eru hagnýt og gaman við að fást. Það er t. d. afar skemmtilegt að gera tilraunir með rœkt- un úrvalsstofna, eins og Erilt heitinn Mogensen var byrjaður á og þegar hafði borið nokkurn árangur er hann féll frá. Arangur slíkra tilrauna kemur hægt fram, en veiðimenn i Elliðaánum hafa siðustu sumurin séð nokkur merki um stækkandi stofn. Og ekki þarf að eyða mörgum orðum að því, hver ánægju- auk.i það er fyrir veiðirnennina, ef þær tilraunir bera góðan árangur. 1 þessum efnum., sem flestum öðrum nytsemdar- málum, verðum við að horfa fram og byggja upp fyrir ókominn tima. Ritstj. Veiðimaðurinn 3

x

Veiðimaðurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.