Veiðimaðurinn - 01.09.1967, Side 10

Veiðimaðurinn - 01.09.1967, Side 10
AGNAR KOFOED-HANSEK form. SVFR: CAmamót. Stangaveiðifélag Reykjavíkur liefur yfirtekið eldisstöðina við Elliðaár frá 10. júlí s.l. að telja og mun, ef að líkum lætur og ekkert óvænt hendir, reka hana næstu 10 árin. Er hér um svo merkan atburð að ræða í sögu félags vors, að segja má, að hann marki tímamót. Sú aðstaða, sem þetta skapar félaginu, mun um langa framtíð hafa veruleg áhrif til góðs, í öllum samn- ingum um veiðiár og yfirleitt í öllum málefnum félagsins. Láta mun nærri að mannvirki stöðvarinnar standi í um 5 milljónum króna og eigi full og æskileg afköst að nást, þarf sennilega að færa enn út kvíarnar fyrir allháa upphæð, sem fæst endurgreidd samkvæmt ákvæðum reksturssamningsins, að honum loknum, Veiðimenn! Úrin ganga rétt í veiðiferðinni, og endranær, ef þið látið okkur gera við þau. Sigurður Sivertsen úrsmíðavinnustofa. Vesturgötu 16. Simi 18711. ef verkið er framkvæmt með samþykki borgarstjórnar. Það er því augljóst að félagsmenn þurfa allir sem einn að taka til hönd- unum á næstu árum og safna fé til nauð- synlegra framkvæmda. Það er hinsvegar trú stjórnarinnar, að reksturinn geti innan 2ja ára staðið undir sér fjárhags- lega, en þó því aðeins, að leita megi til sjálfboðaliða þegar þörf krefur. Eins og allir vita byggist tilvera SVFR að verulegu leyti á slíku starfi, og hafa flestar stjórnir góða reynslu í því efni. Óformlegar viðræður við borgarstjóra og rafmagnsstjóra um hugsanlega yfir- töku hófust skömmu eftir að núverandi stjórn tók við störfum, en formlegar við- ræður síðla s.l. vetur. Af hálfu borgarstjóra tóku þátt í við- ræðunum rafmagnsstjóri, Jakob Guð- johnsen, borgarlögmaður, Jón Tómas- son, og Hjörleifur Hjörleifsson, fjár- málafulltrúi Rafmagnsveitu Reykjavík- ur, en stjórn félagsins f. h. SVFR. 4 Veiðimaðurinn

x

Veiðimaðurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.