Veiðimaðurinn - 01.09.1967, Blaðsíða 12
Viskrœktarstarfsemi S.V.$.ú(.
SAMKVÆMT lögum SVFR er til-
gangur íelagsins meðal annars sá, að
stuðla að ræktun fiskstofna á veiðisvæð-
um þeim, er félagið fær til umráða. Þá
er í lögunum ákvæði um að innheimta
skuli klaksjóðsgjald af seldum veiðileyf-
um og renni það í klaksjóð, sem kosíar
fiskræktarstarfsemi félagsins. Enn er
kveðið svo. á að stjórnin skuli skipa fasta
klak- og fiskræktarnefnd, sem fari með
framkvæmd þessara mála í samráði við
stjórnina.
Fiskrækt er því einn af meginþátt-
um félagsstarfsins og með þessari grein
er ætlunin að skýra, í nokkrum dráttum,
frá þeirri starfsemi á undanförnum ár-
um og fyrirhuguðum framkvæmdum á
næstunni.
Við samninga um hvert veiðisvæði
hefur félagið alltaf lagt mikla áherzlu
á ráðstafanir til að fjölga laxastofni þess
og auka þannig veiðimöguleika félags-
manna með sleppingu seiða. Veiðiréttar-
eigendur liafa einnig liaft fullan skiln-
ing á fiskræktinni og fúslega leyft að
veiða fisk til hrognaöflunar. Frarn til
þessa hefur mest verið sleppt kviðpoka-
seiðum í ár félagsins og uppeldisskilyrði
þeirra þannig nýtt. Virðist þessi starfsemi
liafa borið árangur, því að veiði í ám
SVFR hefur heldur farið vaxandi og árs-
sveiflnr á veiði hafa verið tiltölnlega
litlar, a. m. k. miðað við margar laxár,
sem litlu eða engu af seiðum hefur ver-
ið sleppt í. Forráðamenn félagsins sáu
því fljótt nauðsyn þess að relta laxaklak,
og árið 1958 var klakhús við Siokkalæk
á Rangárvöllum tekið á leigu og keypt
nokkrum árum síðar. Einnig var klak-
hús við Kaldárhöfða tekið á leigu einn
vetur. Árin 1959—1967 hafa kornið
kviðpokaseiði úr þessnm húsum sem hér
segir:
1959 410.000 seiði
1960 410.000 -
1961 600.000 -
1962 .............. 585.000 -
1963 443.000 -
1964 525.000 -
1965 490.000 -
1966 535.000 -
1967 .............. 192.000 -
Samtals 4.190.000 seiði
í ár félagsins hefur verið sleppt
3.345.000 pokaseiðum, 615.000 seiði
voru seld og 230.000 sett í eldi. Af þeim
hefur 47.500 aliseiðum verið sleppt á
ýmsum aldri og í Elliðaáreldissíöðina
voru sett 100.000 seiði í vor. í Stokka-
lækjarhúsinu er mjög gott vatn en held-
ur kalt. Hrogna- og seiðadauði hefir verið
mjög lítill þar, eða um 10%, nema s.l.
vetur, sem stafaði mest af því, að ekki
var hægt að kreista laxinn fyrr en seint
og þá í frosti. Samt er enginn vafi á að af-
föll hefðu orðið margfalt meiri ef hrogn-
in hefðu klakizt út í ánum.Sýnir þaðgildi
6
Veiðimaðurinn