Veiðimaðurinn - 01.09.1967, Side 14
Eldisker i viðbyggingu eldishússins.
Ljósm. Oddur H. Þorleifsson.
voru skoðaðir o? áætlanir gerðar, en áður
en ákvörðun var tekin, opnaðist mögu-
leiki á því að SVFR tæki að einhverju
eða öllu leyti við rekstri eldisstöðvarinn-
ar við Elliðaár. Landsvirkjun tók við
rekstri vatnsaflsstiiðvanna við Sogið og
ráðgert að gamla Elliðaárstöðinverðiekki
notuð lengur. Myndu árnar þá renna
hindrunarlaust í farvegi sínum og skyld-
ur Rafmagnsveitu Reykjavíkur til að
bæta þeim tjón af völdum orkuvinnslu,
fallnar niður, og þar með þörf Rafmagns-
veitunnar á að reka eldisstöðina. A hinn
bóginn þarf átak til að viðhalda veiði í
Elliðaánum vegna annarra afleiðinga
þéttbýlisins og því var öllum aðilum á-
hugamál að eldisstöðin væri rekin þar
áfram.
Varð það síðan að samningum að
SVFR tók að sér rekstur stöðvarinnar
í fO ár, en síðan má semja um framhalds-
rekstur. Afkastageta stöðvarinnar er nu
35—45 þús. gönguseiði á ári. Nauðsynlegt
er að gera nokkrar endurbætur, einkum
að koma upp vatnssíu og útbúnaði til að
ná lofti úr vatninu þann árstíma, sem
það getur verið yfirmettað. Þá er einnig
æskilegt að auka vatnsrennsli til eldis-
hússins og fjölga eldiskerjum í því. Ef
jafnframt væri byggt þak yfir eldisþróna
á árbakkanum, svo að hægt væri að geyma
þar seiði að vetrarlagi, myndu afköst
stöðvarinnar allt að tvöfaldast. Þessar
framkvæmdir kosta mikið fé, en rekstur
stöðvarinnar yrði miklum mun hagkvæm-
ari. Samkvæmt samkomulagi við Raf-
magnsveitu Reykjavíkur myndi SVFR fá
slíkar framkvæmdir endurgreiddar eftir
mati að feigutíma loknum. í núgildandi
ársamningum eru ákvæði um að sleppa
árlega sent svarar 15000 gönguseiðum í
ár félagsins. Er það tæplega 40% af af-
kastagetu stöðvarinnar. í Svíþjóð, þar
sem talsverð reynsla er fengin af eldi,
er gert ráð fyrir að um 10% af slepptum
gíönsuseiðum veiðist aftur oo- búizt er við
að sá árangur fari batnandi. Ekki má
ætlast til að endurheimtur verði jafn-
góðar hér fyrst í stað, en vonandi verður
þess ekki langt að bíða. Sé miðað við
núverandi árangur Svía, myndu þau
seiði, sem eldisstöðin á að geta afkastað
nú, umfram hið samningsbundna seiða-
magn, skila 2000 —3000 veiddum löxum.
Verði ráðist í þá aukningu á afköstum,
sem rætt hefir verið um hér að framan,
myndi, með sömu endurheimtu, mega
auka veiði um 5000—8000 laxa á ári.
8
Veiðimaðurinn