Veiðimaðurinn - 01.09.1967, Síða 34
honum mikil eftirsjá, að hverfa svo fljótt
frá þessu brautryðjandastarfi, á því til-
raunastigi, sem þessi starfsemi er enn
hér á iandi.
Yfirumsjón með veiði og klaki í Ell-
iðaánum hafði Ágúst Guðmundsson yfir-
vélstjóri frá fyrstutíð Rafmgansveitunnar
fram til 1952, er hann iézt, en þá tók við
sonur hans, Inoólfur rafmasrnsverkfræð-
ingur, og hefir haldið vel í horfinu. Hef-
ir hann kynnt sér eldisstöðvar víða er-
lendis, sem til fyrirmyndar hafa verið.
Ingólfur sá um byggingu nýrrar eldis-
stöðvar í Ártúni á árunum 1964 og 65,
en gamla klakstöðin var þó notuð áfram,
og er í notkun enn, þótt frumstæð
þætti. í hinu nýja húsi eru nýtízku klak-
skápar, er rúmað geta margfalt fleiri
hrogn en gömlu klakkassarnir. Þar eru
og eldisþrær og allur umbúnaður til að
tryggja öruggt aðrennsli vatns, blöndun
þess og hitastillingu. Auk þess er þar fóð-
urgeymsla við frystingu og rannsóknar-
stofa. Þetta er þó aðeins fyrsti áfangi í
framtíðar ráðagerð, sem vonandi á eftir
að komast í verk.
Enn er eftir að búa betur að laxi, senr
ætlaður er til klaks, en unnt er með
geymslu í smáum kistum um langan
tíma. Það þarf að búa út þrær og malar-
skurði, sem laxinn gengur sjálfur í og
dvelur þar til að hrygningu kemur.
Hrygningin sjálf þarfnast og betri að-
búnaðar, einkum að vera varin gegn
frosti. Þá þarf og seiðaþrær, er seiðunum
er ætlað að fara í sjálfum er þau hafa
þroska til að fara út í ána á leið til sjáv-
ar.
Þá var og liður í ráðagerðunum, að
í sambandi við eldisstöðina gæti komist
upp fiskasafn. Þótt það sé kostnaðarsöm
viðbót, að því er húsakynni snertir, þá er
aðstaðan þarna góð, því allar tilfæringar
eldisstöðvarinnar geta komið að fullum
notum í fiskasafni. Hvergi er aðstaðan
betri en á þessum stað. Hvernig slíku
safni yrði stjórnað er allt óráðið, hvort
það væri á vegum Reykjavíkurborgar,
Náttúrufræðistofnunar íslands eða í sam-
lögun þessara eða fleiri aðilja er ef’tir að
vita, en á þessu ári, 1967, hefir Stanga-
veiðifélag Reykjavíkur tekið að sér umsjá
klak- og eldisstöðvarinnar af Rafmasrns-
veitu Reykjavíkur og fengið Ingólf Ág-
ústsson til aðstoðar við reksturinn. Þess
er að vænta að Stangaveiðifélaginu megi
auðnast að halda áfram þessu verki og ná
þeirri þróun, sem vonir hafa staðið til
að aðstaðan við Elliðaár veiti. Megi það
og verða til þess, að upp verði tekin í
ríkum mæli fiskrækt hér á landi.
Steingrimur Jónsson.
Veiðimenn!
Laxaflugur
Silunsraflugur
Túbuflugur
Hárflugur
Streamers.
Fluguefni og kennsla
í fluguhnýtingu.
ANALÍUS HAGVÁG
Barmahlíð 34. Sími 23056.
28
Veiðimaðurinn