Veiðimaðurinn - 01.09.1967, Page 35

Veiðimaðurinn - 01.09.1967, Page 35
ODDUR HELGASON: Lftxaeldi í Svíðþjód. ELDI laxaseiða upp í göngustærð er nú hafið hérlendis. Ahugi manna er mikill, ekki sízt stangveiðimanna. En laxeldi er vandasamt og góður árangur næst ekki nema þar sem aðstaða er góð og kunnáttumenn að verki, sem leitað hafa þekkingar til annarra þjóða og byggja starf sitt síðan á fenginni reynslu hér. Mest hefur verið leitað til Bandaríkj- anna og Svía eftir þekkingu þessari og mun aðstæðum liinna síðarnefndu svipa meira til þeirra, sem hér eru fyrir hendi. En lítið hefur birzt hér um laxeldi í Svíþjóð og því birtast hér smákaflar, sem eru þýddir og endursagðir úr skýrslum „Laxforskningsinstitutet“ nr. 7—8 1963. Árið 1945 hófst skipulagt laxeldi í Sviþjóð að frumkvæði raforkustöðvanna, sem reknar voru með vatnsafli. Fyrst voru seiði alin í tjörnum, sem árið 1951 voru orðnar 105 hektarar að stærð og afköstin voru 490.000 sumargömul seiði. En til þess að ala seiðin í göngustærð í tjörnum, urðu þær að vera svo stórar og fóðurkostnaður varð svo hár, að eldi gönguseiða virtist óframkvæmanlegt. Auk þess var erfitt að ráða við sjúkdóma í tjörnum og seiðadauði oft mikill. Þá hurfu Svíar að því ráði, að ala seið- in innanhúss í kerjum, ýmist steyptum eða úr tré eða plasti. í þeim má ala margfalt fleiri seiði á hvern fernretra en í tjörnum, eða allt upp í 2—3 kg. á ferm. meðan á fóðrun stendur og allt að 10 kg. á ferm. yfir vetrarmánuði, meðan fiskurinn vex ekki. Vatnið er 15—30 cm djúpt í kerjunum og vatns- rennslið um 15 mínútulítrar á hvern ferm. Að innan eru þau máluð með sér- stakri málningu, sem hindrar að vatna- gróður setjist í veggina. Fyrst í stað var að mestu fóðrað með lifur, en með löng- um og margvíslegum tilraunum hefur þeim tekizt að framleiða þurrt fóður, að miklum hluta úr fiski, sem reynzt hefur hollara seiðunum og ódýrara og auð- veldara í meðförum. Þurrfóðrið er fram- leitt með misjafnri kornastærð til að hæfa seiðum á öllum aldri. Fyrst í stað gerðu Svíar ráð fyrir að einungis liluti seiðanna næði göngustærð á tveimur ár- um, en mest af þeim þyrfti til þess þrjú ár. Nú er árangurinn orðinn sá, að mest- ur hluti þeirra er göngubúinn eftir tvö ár, en nokkur liluti eftir eitt ár og að- eins örfá þurfa til þess þrjú ár. Standa vonir til að enn aukizt verulega sá hluti, sem vex í göngustærð á einu ári. Árið 1963 voru um 20 eldisstöðvar í Svíþjóð, sem ólu laxaseiði í göngustærð og heild- arframleiðsla þeirra var þá 1300.000 gönguseiði. o o Kynbótatilraunir. Við eldistilraunirnar hefur afkvæm- um hverra foreldra að miklu leyti verið 29 Vr.IÐIMABURINN

x

Veiðimaðurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.