Læknablaðið - 01.09.2022, Qupperneq 9
L ÆKNABL AÐIÐ 2022/108 385
R I T S T J Ó R N A R G R E I N
Surgery; In offence
and defence
Eiríkur Jónsson MD
Department of Urology
Landspítali The National
University Hospital, Reykjavík,
Iceland
Sókn og vörn
Guðmundur Magnússon læknir framkvæmdi fyrstu
opnu aðgerðina (laparotomi) á Íslandi vegna lifrar-
sulls árið 1893. Fram að því höfðu ástungur og þján-
ingarfull brennsluaðferð verið helsta læknisráðið.
Aðgerðin var framkvæmd í heimahúsi á Sauðárkróki
og markaði upphaf á farsælum ferli þessa ágæta
skurðlæknis og kennara.
Þegar kemur að stærri og flóknari skurðaðgerð-
um er eðlilegt að spurt sé: „Hvaða aðgerðir á að
framkvæma hérlendis og hverjar utanlands?“ Slík
spurning verður ágengari eftir því sem aðgerðir eru
flóknari og tilfellin sjaldgæfari. Kröfur um aukna
sérhæfingu læknis, teymis og tækjabúnaðar spila
þar inn í, sem og viðhald þjálfunar. Hér í blaðinu
er gerð grein fyrir lifraraðgerðum á Landspítala sem
falla undir þau skilmerki að vera flóknar og vanda-
samar. Unnið er á blóðríku líffæri sem heldur illa
saumi og býður upp á alvarlega fylgikvilla.
Rök sem hníga að því að framkvæma sem flestar
skurðaðgerðir hérlendis eru margvísleg. Í fyrsta lagi
er auðveldara að vera sjúklingur og aðstandandi
sjúkra á heimaslóðum. Þá þurfa skurðlæknar sem
afla sér þekkingar og þjálfunar utanlands að fá að
beita færni sinni þegar heim er komið. Það getur
ráðið úrslitum um að læknar ráðist yfirhöfuð hér til
starfa og ílendist.
Fyrir tæpum áratug tók ég þátt í því verkefni að
Landspítali eignaðist aðgerðarþjarka. Taldi á þeim
tímapunkti að komið væri lag þar sem vel þjálfaðir
skurðlæknar voru að koma til starfa og aðrir mögu-
lega á leiðinni. Efasemdaraddir heyrðust, ekki bara
frá heimafólki heldur einnig framleiðanda. Fyrir-
tækið vildi ógjarnan selja tæki sitt einhverju örsam-
félagi sem gæti í fákunnáttu sinni komið á það óorði.
Eftir fortölur tókst að sannfæra seljanda um annað
og samhliða dyggum stuðningi, innan spítalans sem
utan, gengu kaupin í gegn. Þessi ákvörðun reyndist
farsæl og nú eru við störf á Landspítala öflugir
skurðlæknar sem nota þjarkann við margvíslegar
skurðaðgerðir á kviðar- og grindarholi. Í því sam-
bandi má ekki gleyma mikilvirku teymi skurðhjúkr-
unarfræðinga sem lagði mikið af mörkum svo þetta
yrði að veruleika. Aðferðafræði þjarkans reynist inn-
gripsminni en þær eldri og hefur stytt legu-
tíma og jafnvel breytt aðgerðum sem áður
kröfðust innlagnar í dagaðgerðir.
Það skiptir því miklu máli að áskor-
uninni sé tekið og krefjandi aðgerðir eins
og lifrarskurðaðgerðir séu framkvæmdar
hérlendis enda er árangur sambærileg-
ur og hjá erlendum sjúkrahúsum. Slíkar
áskoranir virka bæði á breiddina og dýpt-
ina með því að sambærileg viðfangsefni
verða fyrirstöðuminni en ella. Á sama tíma steðj-
ar að skurðlækningum Landspítala einfaldara, en
þó snúið viðfangsefni sem er vaxandi biðlisti eftir
„rútínu“ skurðaðgerðum. Pestarfaraldurinn hefur
aukið hressilega á eldra vandamál og skilið eftir sig
fjölmennan hóp sem nú bíður átekta. Skjót lausn er
ekki bara nauðsynleg fyrir þetta fólk heldur þarf að
viðhalda þjálfun og starfsánægju skurðlækna og
samstarfsfólks sem ótækt er að nýti ekki kunnáttu
sína og getu til fulls. Í skurðlækningum þarf því að
spila bæði sókn og vörn. doi 10.17992/lbl.2022.09.703
Það þarf að viðhalda þjálfun og
starfsánægju skurðlækna og
samstarfsfólks sem ótækt er að nýti
ekki kunnáttu sína og getu til fulls.
Í skurðlækningum verður að spila
bæði sókn og vörn.
Eiríkur Jónsson
þvagfæraskurðlæknir
á Landspítala
eirikjon@landspitali.is
LÆKNAFÉLAG ÍSLANDS - MAIN LOGO + 100 YEARS ANNIVERSARY LOGO
Aðalfundur Læknafélags Íslands 2022
verður haldinn 14. október
í Hlíðasmára 8 í Kópavogi
Síðumúli 16 I 108 Reykjavík I Sími 580 3900 I fastus.is
fastus.is
NITRILE OG LATEX
ANSELL EINNOTA HANSKAR
Ansell er einn stærsti framleiðandi á hönskum í heimi og merkið þekkt
fyrir mjög vandaða vöru. Hanskarnir eru sterkir og áreiðanlegir og ekki
að ástæðulausu að margir vilja eingöngu nota Ansell í sínu starfi.
HVÍTIR LATEX MICRO-TOUCH
Latex Ultra II hanskarnir eru margreyndir hér á landi og henta fyrir allar aðstæður.
Extra sterkir með góðri teygju.
BLEIKIR NITRILE MICRO-TOUCH
Mjög vandaðir hanskar sem eru fyrir þá sem vilja smá lit í tilveruna.
Hluti af söluhagnaði fer í verkefni tengd brjóstakrabbameini. Bleikt er málið!
SVARTIR NITRILE MICRO-FLEX
Þunnir, mjúkir og sterkir svartir hanskar sem henta fyrir alla notkun.
Hanskarnir hafa fengið einstaklega góð meðmæli og flestir sem
prófa velja að kaupa þá aftur og aftur.
BLÁIR NITRILE MICRO-TOUCH
Bláu Nitrile hanskarnir hafa verið lengi í sölu hjá Fastus.
Þeir hafa reynst einstaklega vel og þeir eiga traustan aðdáendahóp.
Henta vel fyrir heilbrigðisstarfsfólk.
Ansell
einnota hanskar
1.500
kr/pk (100 stk)