Læknablaðið - 01.09.2022, Blaðsíða 39
L ÆKNABL AÐIÐ 2022/108 415
Þann 21. júní 2022 var hátíðisdagur á
endurhæfingardeild Landspítala Grensás
en þá afhentu hollvinir Grensáss formlega
skjólgóðan garð þar sem hollvinasamtökin
höfðu borið kostnað af hönnun og
framkvæmdum. Hátíðardagskrá var
við þetta tilefni og gestum boðið.
Dagskráin fór fram utandyra í ausandi
rigningu og þegar Willum Þór Þórsson
heilbrigðisráðherra steig í pontu hafði
hann á orði að það hefði verið á honum
einn þurr þráður sem nú væri orðinn
votur. Þar sem ég stóð úti í síðri regnkápu
með hettu og hélt regnhlíf yfir gesti í
hjólastól og það rigndi stöðugt ofan í
ermina á hendinni sem hélt regnhlífinni,
hugsaði ég: Hví í ósköpunum flytja þau
þetta ekki inn? Guðrún Pétursdóttir,
formaður Hollvinasamtaka Grensáss, er
tíður gestur á Grensás og í spjalli við hana
barst þetta í tal, en hollvinunum fannst
það að standa úti í rigningunni vera tákn-
rænt fyrir þá baráttu og þrautseigju sem
þarf til að ná bata. Flestar heilbrigðis- og
velferðarstofnanir eiga sér hollvinasamtök
sem eru nauðsynleg þar sem starfsfólkið á
nóg með sín verkefni í þágu skjólstæðinga
og hollvinasamtökin beita sér fyrir
bættum aðbúnaði.
Frá opnun í apríl 1973 hefur endurhæf-
ingardeildin á Grensási veitt sérhæfða
endurhæfingarþjónustu þeim sem verða
fyrir heilsutapi af völdum sjúkdóma eða
slysa og þjónar landinu öllu. Húsakostur-
inn stenst ekki nútímakröfur og er löngu
sprunginn utan af starfseminni. Stjórn-
völd hafa ákveðið að nú skuli byggt við
Grensás og hefur farið fram samkeppni
Ú R P E N N A S T J Ó R N A R M A N N A L Í
Í pistlunum Úr penna stjórnarmanna LÍ birta þeir eigin
skoðanir en ekki félagsins.
endurhæfingarlæknir
masgeirsdottir@mac.com
Magdalena Ásgeirsdóttir
um hönnun byggingarinnar. Dómnefnd
hefur valið hvað skal byggt og 23. ágúst
2022 skrifaði ráðherra undir samning
við hönnuðina sem urðu hlutskarpastir.
Nýbyggingin mun hýsa kjarnastarfsemi
sem lýtur að líkamlegum þáttum en það
er líka nauðsynlegt að hlúa að andlegri
vellíðan og byggingin verður að vera bæði
nytsamleg og falleg. Stofnunin er heimili
fólks meðan á endurhæfingunni stendur,
sem getur verið frá nokkrum vikum upp í
eitt til tvö ár.
Við endurhæfingu er unnið með alls
kyns skynörvun til að bæta færni. Allt
rýmið, bæði innan- og utandyra, er notað
í þeim tilgangi, samanber nýi garðurinn
sem mun nýtast allt árið um kring. Þar
er mismunandi undirlag, mismunandi
byggingarefni, litir, lýsing, tröppur og
brautir. Jarðlægur gróður, upphækkuð
beð og matjurtabeð og nú er komin upp-
skera og skjólstæðingar geta farið sjálfir
út og náð sér í ferskt grænmeti. Einn mik-
ilvægasti þátturinn í því að ná bata er að
nærast, neyta matar. Góð máltíð í fallegu
umhverfi bætir lífsgæði, bæði andleg og
líkamleg. Algengasta umkvörtunarefni
þeirra sem dvelja langdvölum á Grensás
er maturinn. Það væri óskandi að í nýrri
byggingu væri gert ráð fyrir að eldað
væri á staðnum, skjólstæðingum okkar til
hagsbóta. Markmið endurhæfingar geta
verið mismunandi, öllum er hjálpað til
sjálfsbjargar, með því aukast lífsgæði og
margir komast aftur til starfa eftir endur-
hæfingu. Það að sjá og finna bata veitir
innblástur.
Grensás virðist njóta bæði velvildar og
trausts í þjóðfélaginu. Í Hollvinasamtök-
unum er fólk sem á það sammerkt að það
sjálft eða aðstandendur þeirra hafa notið
þjónustu á Grensás. Hollvinasamtökin
munu á hálfrar aldar afmælisárinu 2023
standa fyrir fjölbreyttri dagskrá til að
vekja athygli á Grensás með það fyrir aug-
um að auka skilning á hlutskipti þeirra
sem missa færni, bæði andlega og líkam-
lega, og þurfa að takast á við breytt líf.
Við endurhæfingarfagfólkið erum full
tilhlökkunar og bíðum spennt eftir að
geta sinnt skjólstæðingum okkar við betri
aðstæður í nýju húsnæði.
LÆKNAFÉLAG ÍSLANDS - MAIN LOGO + 100 YEARS ANNIVERSARY LOGOFélag almennra lækna
Þórdís Þorkelsdóttir
Sólveig Bjarnadóttir
Félag íslenskra heimilislækna
Margrét Ólafía Tómasdóttir
Oddur Steinarsson
Félag sjúkrahúslækna
Theódór Skúli Sigurðsson
Magdalena Ásgeirsdóttir
Læknafélag Reykjavíkur
Ragnar Freyr Ingvarsson
Ingibjörg Kristjánsdóttir
Steinunn Þórðardóttir formaður
Stjórn Læknafélags Íslands
Grensás í nærri hálfa öld