Læknablaðið - 01.09.2022, Side 49
L ÆKNABL AÐIÐ 2022/108 425
„Dæmigerður“ dagur í lífi skurðlæknis á Akureyri
07:00 Vekjaraklukkan hringir. Við hjón-
in erum þegar vöknuð þar sem yngstu
tvö börnin eru frekar árrisul. Hringingin
þó ágætis áminning um að fara að huga
að dagsins önn. Vekjum elsta barnið, allir
klæða sig og borða.
07:50 Set börnin á hjólin og í hjólavagn-
inn. Af stað á leikskólann, þaðan á spítal-
ann. Komin ný hjólageymsla sem hægt er
að hjóla inn í og geyma allt örugglega.
08:05 Mæti í vinnuna. Fer beint og
merki fyrsta sjúkling dagsins á skurðstof-
unni. Fékk beiðni frá bæklunarlækni um
aðstoð við að fjarlægja fituæxli í nára sem
liggur djúpt í mjaðma- og lundarvöðva (m.
iliopsoas) en nærri náraæðum samkvæmt
myndum. Því vildi hann að við gerðum
þetta saman. Fer svo inn á deild á stofu-
gang.
10:05 Símtal frá skiptiborði. Beðinn að
koma strax upp á gjörgæslu að hitta Björn
Gunnarsson svæfingalækni. Velti fyrir
mér hvort eitthvað sé í gangi með sjúk-
linginn minn sem hefur slæma brisbólgu
en þegar ég kem þangað segir hann mér
að einstaklingi í aðgerð á Ísafirði sé að
fossblæða og óskað sé eftir sjúkraflugi
með blóð og skurðlækni. Er einn á vakt-
inni á Akureyri og þarf að setja skurð-
lækni í sumarfríi á standby. Gríp með
æðabakka og brunum svo á völlinn þar
sem vélin er klár. Allt í botn og í loftið.
11:00 Lending á Ísafirði, beint í
sjúkrabíl, brunað á sjúkrahúsið og inn á
skurðstofu þar sem allt er í gangi. Stöðv-
um blæðingu, klárum aðgerð ásamt lækni
á staðnum og komum manneskjunni í
flutningshæft ástand sofandi. Þegar að-
gerð er lokið og við að leggja í hann mætir
þyrluteymið með æðaskurðlækni og blóð-
flögur sem verða gefnar á leið í bæinn.
13:25 Brottför til Reykjavíkur. Æða-
skurðlæknirinn sem fylgdi með þyrlunni
fær far í bæinn ef þyrlan skyldi lenda í
öðru útkalli á leiðinni.
14:20 Skilum af okkur sjúklingi á gjör-
gæsluna við Hringbraut. Ahh, verður gott
að komast heim. Næ kannski að skutla
syninum á fótboltaæfingu kl. 16:15.
14:45 Á leið frá gjörgæslunni og til baka
á völlinn en þá eru flugmennirnir farnir
út að borða. Við hittum þá á staðnum,
ég í græna skurðstofugallanum eins og
kjáni á náttfötunum og peningalaus! Björn
býður upp á borgarann. Missi líklega af
æfingunni.
15:30 Brottför frá Reykjavík. Læt
Kristínu (eiginkonuna) vita að ég verði
seinn heim og hún skutlar í boltann.
16:10 Lending á Akureyri, NICE AIR
nýlentir úr jómfrúarfluginu. Samt engin
vatnsbuna frá dælubílnum við lendingu
hjá okkur! Tek græjurnar upp á spítala í
þvott og hjóla svo heim.
17:15 Náði að sækja á æfinguna, kem
nokkuð lúinn heim en Kristína tilbúin
með kvöldmatinn. Við borðum snemma
að sænskum sið enda fluttum við heim
fyrir ári síðan.
18:00 Horfi út um gluggann þar sem
ég er nýbúinn að steypa staura fyrir
skjólvegg í kring um allan garðinn. Grjót
og möl sem á eftir að jafna en ég nenni
ómögulega út núna enda orðið skýjað og
ég er ekki frá því að það sé alveg að fara
að rigna. Sófinn kallar. Horfum á sjón-
varpið í rólegheitunum meðan börnin
leika sér fram að svefntíma.
20:00 Horfi út um gluggann aftur, það
kom víst aldrei þessi rigning. Kristína
svæfir börnin og ég horfi á þvottinn.
20:30 Síminn hringir, er enn á vaktinni
og þarf að fara að kíkja á sjúkling á bráða-
móttökunni með kviðverki. Þvotturinn
fær að bíða.
21:00 Botnlangi! Kalla út skurðstofuna.
Sem betur fer einfaldur og fljót afgreidd-
ur. Kominn heim kl. 22:30. Kristína búin
með þvottinn. Slapp með skrekkinn
þarna. Beint í rúmið.
22:40 Ætli ég sé á vaktinni á morgun?
Já, er einn í vinnu næstu dagana, svo því
er fljótsvarað. Sofna og sem betur fer
hringir síminn bara tvisvar þessa nóttina.
Helgi Þór Leifsson
Sjálfa í flugtaki - Helgi Þór Leifsson.
Guðjón Páll Sigurðarson við störf í sjúkraflugvél.