Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.11.2022, Blaðsíða 42

Læknablaðið - 01.11.2022, Blaðsíða 42
518 L ÆKNABL AÐIÐ 2022/108 A Ð A L F U N D U R L Í Formaður Læknafélags Reykjavíkur sagði gott að hlusta á ráðherrann tala um mála- flokkinn. „En svo sér maður fjárlögin. Það verður að lýsa yfir vissum vonbrigðum fyrir hönd sjálfstætt starfandi lækna að sjá ekki vilja ráðherrans þar,“ sagði hann. Fundurinn ályktaði einnig um samn- inga við sjálfstætt starfandi lækna. Hann skoraði á stjórnvöld að ganga til samninga með raunveruleg áform um að bæta og efla þjónustu við sjúkratryggða lands- menn. Ráðherra sagði heilbrigðiskerfið þurfa meiri innspýtingu. Hann kallaði eftir þarfagreiningu til að greina samnings- markmiðin svo horfa mætti á það sem raunverulega er samið um; verðið, magnið, gæðin og öryggið. Þórarinn Guðnason, fyrrum formaður Læknafélags Reykjavíkur, stóð upp og benti á alvarleika þess þegar láðist að framlengja reglugerð um greiðslur fyrir þjónustu sjálfstætt starfandi sérfræði- lækna í tíma í september. Áhöld hafi verið um hvort sjúklingar væru sjúkratryggðir í hálfan sólarhring. „Það eru sárindi eftir þetta og menn upplifðu að ráðuneytið hunsaði okkur sér- fræðilæknana,“ sagði hann og benti einnig á að þegar samningnum var lokað árið 2015 fyrir nýliðun hafi ungir læknar ekki séð sér fært að koma heim. Læknar flytji heim af fjölskylduástæðum, en ekki þegar ákveðin staða losni á Landspítala. „Þessi samningur við sérfræðilækna var svo dýrmætur fyrir nýliðun lækna að því leyti að hann var opinn,“ sagði hann og að yfirvöld þyrftu að skilja að það verði að vera opin leið fyrir lækna að koma heim þegar fjölskyldum þeirra hentar. Ráðherra þakkaði Þórarni og baðst afsökunar á klúðrinu í september. Hann taki ábyrgð á því enda stórmál fyrir fólkið í landinu. Benti á mikilvægi trausts við samningagerð Ráðherrann var kominn út á mitt gólf og í kaf í samræðurnar þegar leið á fundinn. Hér svarar hann Þórarni Guðnasyni varðandi það þegar láðist að framlengja bráðabirgðasamninginn við sjálfstætt starfandi sérfræðilækna og sjúklingar stóðu eftir ótryggðir. Mynd/gag Ragnar Freyr Ingvarsson, formaður Læknafélags Reykjavíkur, lagði áherslu á mikilvægi þess að það ríkti traust á milli viðsemjenda en félagið semur við Sjúkratryggingar Íslands ■ ■ ■ Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.