Læknablaðið - 01.11.2022, Blaðsíða 48
524 L ÆKNABL AÐIÐ 2022/108
Sæmundur Rögnvaldsson varði dokt-
orsritgerð sína í læknavísindum við
læknadeild Háskóla Íslands 10. október.
Ritgerðin ber heitið: Klínísk þýðing góð-
kynja einstofna mótefnahækkunar: Að-
ferðafræðilegar lausnir til að rannsaka
einkennalaust forstig
Andmælendur voru Angela Dispenzieri
prófessor við Mayo Clinic í Bandaríkjun-
um og Lárus Steinþór Guðmundsson dós-
ent við lyfjafræðideild HÍ.
Umsjónarkennari og leiðbeinandi var
Sigurður Yngvi Kristinsson prófessor við
læknadeild. Auk hans sátu í doktorsnefnd
Elías Ólafsson prófessor, Gyða Björnsdóttir
rannsakandi, Ola Landgren prófessor og
Thor Aspelund prófessor.
Úr ágripinu
Góðkynja einstofna mótefnahækkun
er einkennalaust forstig mergæxlis og
skyldra krabbameina sem einnig hefur
verið tengt við fjölda sjúkdóma. Markmið
verkefnisins var að leita nýrra leiða til að
leysa aðferðafræðileg vandamál og öðlast
betri skilning á klínísku mikilvægi æxl-
isins.
Doktorinn
Sæmundur lauk stúdentsprófi frá MH og
embættisprófi í læknisfræði frá Háskóla
Íslands 2018. Samhliða doktorsnámi og
sérnámi í almennum lyflækningum stýrir
Sæmundur verkefninu „Graduate Program
in Medical Science“ við læknadeild og er
í rannsóknarhópi Nordic Myeloma Study
Group um faraldsfræðilegar rannsóknir á
mergæxli.
Doktorsvörn frá
Háskóla Íslands:
Sæmundur
Rögnvaldsson
Hvað segir nýdoktorinn?
Af hverju vildir þú verða læknir?
Fræðilegur áhugi dró mig mest í læknisfræði en líka hvernig
maður fær stöðugt tækifæri til að nýta fræðin í daglegu starfi við
að hjálpa fólki. Svo fannst mér æðislegt hvernig starfinu fylgdi
búningur. Ermastytting læknasloppa á Landspítala var því sér-
lega sár fyrir mig.
Hversu erfitt er að verða doktor á skalanum 1-10?
Þetta er langt ferli og erfiðleikastigið sveiflast til og frá. Mér
fannst (og finnst) þetta bara svo skemmtilegt að mér finnst erfitt
að stiga þetta. Ætli 5 sé ekki nærri lagi.
Hvað yrði þitt fyrsta verk sem heilbrigðisráðherra?
Við erum með allt of strjált og óljóst kerfi sem greiðir fyrir þjón-
ustu fyrir aldraðra, stundum sveitarfélög, stundum ríki, stund-
um félagasamtök sem eru svo styrkt af ríki eða sveitarfélögum
o.s.frv. Þetta gerir okkur erfitt fyrir að draga einhvern til ábyrgð-
ar fyrir skort á þjónustu sem sjúklingar þurfa og myndu leiða til
sparnaðar fyrir kerfið í heild. Mitt fyrsta verk yrði því að endur-
skipuleggja greiðslukerfi fyrir heimaþjónustu og endurhæfingar-
og hjúkrunarrými þannig að það væri sami „vasinn“ sem greiddi
fyrir þetta allt saman á lands-, landshluta- eða sveitarfélagsstigi.
Þannig er hægt að rukka einhvern þegar fólk er í óviðeigandi
úrræði, t.d. á spítala í stað hjúkrunarheimilis, og skapa hagræna
hvata til að veita betri og hagkvæmari þjónustu. Ég myndi svo
líka óska eftir samantekt á því hversu mikið almannafé fyrirtæk-
ið Origo hefur fengið til að þróa miðlægt lyfjakort og leita skýr-
inga á því af hverju það er ekki enn komið í gagnið.
Hvaða bók, þættir, músík, líkamsrækt er best?
Ég myndi alltaf segja að Janeway‘s immunobiology sé besta bókin en
ég veit ekki hvort það er í anda spurningarinnar. Ég hef haft mjög
gaman af bókum Bills Brysons um lífið og tilveruna en æviminn-
ingar Richards Feynmans Surely you‘re joking, Mr. Feynman er lík-
lega mín uppáhaldsbók.
Ég er loksins að komast í Stranger Things núna og mér finnst
það alveg geggjað en Breaking bad er ennþá uppáhaldsþáttaserian.
Ég hef alltaf hlustað talsvert á djass, frá Miles Davis til Avishai
Cohen og EST en gellupoppið hefur verið að koma sterkt inn að
undanförnu (Ariana Grande, Zara Larson o.s.frv.).
Badminton stunda ég mest en núna þegar vetur nálgast hlakka
ég til að komast á göngu- og svigskíði.
Hvað er skemmtilegast að gera þegar þú ert ekki í vinnunni?
Best þykir mér að njóta samveru með fjölskyldu og vinum. Ein-
hver skemmtilegasta samvera sem ég veit er að spila og syngja
saman. Skemmtilegast finnst mér að spila og syngja í góðri
stemmningu á sviði, í partíi eða á tónleikum, sérstaklega með
hljómsveitunum Salsakommúnan og Band-Aids. Svo er ég líka
agalegur kórfíkill og var í meira en áratug í Hamrahlíðarkórn-
um en syng núna í Kór Hallgrímskirkju. Það eru ótrúlegir töfrar
sem geta gerst í samspili og samsöng, þessi augnablik þar sem
allt gengur upp og tilveran víkur fyrir músíkinni eða stemmn-
ingunni. Þessi augnablik eru hreinlega fíknivaldandi, svo er ég
bara voðalega athyglissjúkur.
Sæmundur Rögnvaldsson tók doktorspróf frá Háskóla Íslands 10. október síðastliðinn. Mynd / Gunnar Sverrisson