Læknablaðið - 01.11.2022, Blaðsíða 49
L ÆKNABL AÐIÐ 2022/108 525
Gísli Þór Axelsson varði doktorsritgerð
sína í læknavísindum við læknadeild
Háskóla Íslands 30. september 2022.
Ritgerðin ber heitið Millivefslungna-
breytingar og öldrunartengdir þættir
Andmælendur voru Gisli Jenkins,
rannsóknarprófessor við National He-
art and Lung Institute, Imperial College
London, og Timothy Blackwell prófessor
við Division of Allergy, Pulmonary and
Critical Care Medicine, Vanderbilt Uni-
versity í Nashville, Tennessee.
Umsjónarkennari og leiðbeinandi var
Gunnar Guðmundsson prófessor og með-
leiðbeinandi var Thor Aspelund prófessor,
báðir við læknadeild HÍ. Auk þeirra sátu
í doktorsnefnd Gary Matthew Hunning-
hake, dósent við Harvard Medical School,
og Vilmundur Guðnason prófessor.
Úr ágripinu
Niðurstöðurnar sýna fram á tengsl milli-
vefslungnabreytinga við ýmsa öldrunar-
tengda þætti og klínískar útkomur. Til
viðbótar benda niðurstöður til margra
próteina sem nýrra lífvísa breytinganna
í blóði, en sum þeirra hafa þekkt tengsl
við öldrun. Í heild auka niðurstöðurnar
þekkingu á líffræðilegum eiginleikum
og faraldsfræðilegri áhættu fólks með
myndgreiningarbreytingar sem bent gætu
til snemmbúinnar lungnatrefjunar.
Doktorinn
Gísli Þór fæddist á Selfossi og lauk stúd-
entsprófi frá Fjölbrautaskóla Suðurlands.
Hann lauk embættisprófi í læknisfræði frá
Háskóla Íslands 2020 og samhliða dokt-
orsnáminu hóf hann sérnám í almennum
lyflækningum við Landspítala.
Doktorsvörn frá Háskóla Íslands: Gísli Þór Axelsson
Gísli Þór Axelsson
tók doktorspróf frá
Háskóla Íslands 20.
september síðast-
liðinn. Mynd / Krist-
inn Ingvarsson
Hvað segir nýdoktorinn?
Af hverju vildir þú verða læknir?
Það er merkilega erfitt að svara þessari spurningu. Ætli það
hafi ekki verið einhver samblanda af áhuga á fræðunum og því
að vilja gera eitthvað gagn.
Hversu erfitt er að verða doktor á skalanum 1-10?
Mjög misjafnt eftir því hvernig gengur þá stundina. Stundum
svona 5-6, stundum 9.
Hvað yrði þitt fyrsta verk sem heilbrigðisráðherra?
Vonandi verð ég aldrei heilbrigðisráðherra. En heilt yfir held
ég að það sé mikilvægt að það þeir hvatar sem innbyggjast í öll
kerfi auki skilvirkni, en dragi ekki úr henni.
Hvaða bók, þættir, músík, líkamsrækt er best?
Ég hef lesið allt of lítið mér til skemmtunar síðustu árin. Ég
held samt að ég geti mælt með bókinni Factfulness fyrir alla –
enda fjallar hún um að byggja skoðanir sínar á gögnum. Núna
er ég að horfa á Kominsky Method á Netflix sem eru fínasta af-
þreying. Ég er gömul sál þegar kemur að tónlist. Gamalt rokk er
gott, Pink Floyd er best. Besta líkamsræktin er körfubolti með
strákunum úr læknadeildinni.
Hvað er skemmtilegast að gera þegar þú ert ekki í vinnunni?
Að stunda útivist. Helst að labba á fjöll eða veifa flugustöng.
Yfir veturinn hef ég gaman af því að horfa á íþróttir.