Læknablaðið - 01.11.2022, Blaðsíða 50
526 L ÆKNABL AÐIÐ 2022/108
▼
PP
-X
A
R-
IS
-0
02
6-
1
N
óv
em
be
r
20
21
X
A
R
I0
0
0
2
–
B
ilb
o*án lokusjúkdóms. **ROCKET AF. NOAC = Segavarnarlyf til inntöku sem ekki eru K-vítamínhemlar.
Heimildir: 1. Samantekt á eiginleikum lyfs fyrir Xarelto, ágúst 2021. 2. Samantekt á eiginleikum
lyfs Pradaxa, Eliquis, Lixiana.
Verkun og öryggi Xarelto, saman-
borið við önnur NOAC lyf, hafa
verið rannsökuð í sjúklingaþýði:1, 2**
• með meiri hættu á heilaslagi
• þar sem 40 % voru með sykursýki
Verndaðu það sem er
dýrmætt sjúklingum með
gáttatif* og sykursýki
DÝRMÆTAR STUNDIR
Sagan er ekki endilega ný.
En þetta er sagan hans afa.
XARI0002_Xarelto_SPAF_A4_IS.indd 1 2020-05-19 12:302021-11-22 12:30
Ég er áhugamanneskja um nesti og
þreytist seint á að tala um skólanestið. Það
tengist móðurhlutverkinu en einnig starfi
mínu sem barnalæknir með næringar- og
meltingarsjúkdóma sem undirsérgrein.
Ég kynntist alveg nýrri
nestismenningu á meðan við bjuggum í
Bandaríkjunum við nám og störf. Ég tók
eftir því að starfsfólk mætti á spítalann
með litlar kælitöskur fullar af nesti. Mér
fannst alltaf áhugavert að fylgjast með
hvað fólk tók upp úr kælitöskunum á
hádegisfyrirlestrum. Jafnvel þótt margt
hollt og næringarríkt rati í nestisbox
Bandaríkjamanna má þar einnig finna
ýmislegt sem aldrei teldist við hæfi hér
á Íslandi. Matvörubúðir selja ógrynni af
fæðu sem er markaðssett fyrir hádeg-
isnestið í þar til gerðum pakkningum.
Einkum er um að ræða kartöfluflögur og
kexkökur sem fólk kaupir hugsunarlaust
í magnpakkningum til að auðvelda nest-
isundirbúninginn.
Á mínu heimili var enginn áskrifandi
að skólamat enda var hann almennt
ekki til fyrirmyndar. Nestið var útbúið
að kvöldi fyrir næsta dag og samanstóð
oftast af samloku með áleggi, ávöxtum,
og mjólkurmat. Ekki var strangt eftirlit í
skólanum með innihaldinu svo það mátti
alveg lauma kexköku eða kökubita með ef
mann langaði til.
Þegar við fluttum til Íslands varð
nestisgerðin nokkuð kvíðavekjandi.
Börnin borða ekki hvað sem er og
skólamatur varð því ekki fyrir valinu
alla daga vikunnar. Grunnskólinn hafði
mjög ákveðna stefnu hvað varðaði nesti.
Mjólkurvörur voru ekki leyfðar vegna
viðbætts sykurs, að því að mér skildist,
og vegna einnota umbúða sem ekki
samrýmdust umhverfisstefnu skólans.
Þarna var tekinn út heill fæðuflokkur.
Einnig var ákveðið að orkustykki
innihéldu of mikinn sykur, alveg óháð
eðli og uppruna þeirra, og kökur og kex
voru ekki leyfð. Hreinu sætindin gat ég
L I P R I R P E N N A R
Gott nesti
er gulls ígildi
Jóhanna Guðrún Pálmadóttir
barnalæknir á Landspítala
johannap@landspitali.is
alveg samþykkt sem bannvöru en ekki
að fæða sem innihéldi einhvern sykur
væri bönnuð með öllu. Allt er best í hófi
að mínu mati. Í gagnfræðaskólanum var
allt leyfilegt og ég gat leyft mér að setja
súkkulaðimjólk í nestið.
Það sem einnig var kvíðvænlegt
við nestið var krafan á sjálfa mig um
næringargildið og fjölbreytnina. Ég
ákvað að reyna að hafa meira gaman af
því að útbúa nestið og lagði mig fram
um að útbúa fallegt nesti með góðu
næringarinnihaldi. Og nú þegar ég lít á
þetta sem áhugamál sem felur í sér dálitla
áskorun er þetta auðveldara. Þegar ég
fæ góðar hugmyndir verð ég sérstaklega
spennt að útbúa nestið. Svo hleypur af og
til á snærið hjá mér þegar mamma mín
kemur með nýbökuð skinkuhorn eða
brauðbollur sem gleðja krakkana en mín
fyrsta hugsun þegar ég finn kræsingarnar
í eldhúsinu að loknum vinnudegi, er að
þetta verði nú aldeilis flott í nestið næsta
dag.
Það felst nefnilega rík umhyggja í
því að útbúa góðan og næringarríkan
mat fyrir aðra. Mér hefur verið bent á að
börnin geti útbúið nestið sjálf og það er
vissulega alveg rétt. En ég öðlast einhverja
hugarró þegar börnin mín fara í skólann
með nestið sem ég bjó til. Börn þurfa ekki
síður gott nesti þegar þau verða eldri og
námið og tómstundirnar verða meira
krefjandi. Ég heyri alltof oft af því að
eldri krakkar séu bara með pening inni
á kortinu og foreldrarnir telji að þeir séu
í góðum málum. Því er ég hjartanlega
ósammála, með fullri virðingu. Þarna er
viss hætta á ferðum að mínu mati. Sumir
kaupa sér auðvitað eitthvað hollt og gott
en ég heyri mörg dæmi um að það sé bara
keyptur kexpakki og íþróttadrykkur.
Annað sem ég sé talsvert af er að krakkar
fara á pizzastaðina og kaupa sér brauð-
stangir á leiðinni heim úr skólanum. Þetta
er áhyggjuefni á tímum vaxandi offitu.
Ég hvet alla lækna sem sinna börnum
að ræða mataræðið opinskátt við börnin
og foreldra þeirra og leggja áherslu á gott
skólanesti. Fræðum börn og foreldra,
reynum að mæta þeim þar sem þau eru og
setja raunhæf markmið til úrbóta eftir að-
stæðum. Margir útbúa fyrirmyndarnesti
og ég vona að það verði áfram venjan hjá
sem flestum. Látum þó ekki pening inni
á kortinu hjá krökkunum verða að enn
einni viðtekinni skyndilausninni í nú-
tímasamfélagi. Foreldrum ber skylda til
að sjá til þess að börn þeirra séu vel nærð
og tilbúin til náms, jafnvel þó að þau virð-
ist sjálfbjarga. Góð næring er ómetanlegt
veganesti út í lífið til jafns við það að
foreldrar séu til staðar fyrir börnin sín. Ég
get þó ekki varist þeirri hugsun að margar
fjölskyldur hafa lítið á milli handanna
og búa við þröngan kost þegar kemur að
matarinnkaupum. Það er á ábyrgð stjórn-
valda að koma þessum fjölskyldum til
hjálpar en okkar að minna á það.